Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1913, Síða 17

Eimreiðin - 01.01.1913, Síða 17
i7 að líffæri úrkynjist, týni niður starfi sínu, þarf miklu lengri tíma en i öld eða þar um bil. Til þess að hrekja svona staðleysur nota menn nú á dögum tilraunir, reynsluna, sem altaf er ólygnust, og hvað segir hún oss í því efni? Franskur yfirsetulæknir, Budin að nafni, sannaði af reynslunni, að 90 mæður af hundraði gætu alið börn á brjósti þann tíma, sem nauðsynlegast er, sem sé 1. missirið; örfáar þeirra mjólkuðu ekki nóg, og var bætt úr því á þann hátt, að börnun- um var gefin með brjóstinu kúamjólk eins og síðar mun á drepið. Að svipaðri niðurstöðu hafa menn komist, þar sem tilraunir hafa verið gerðar annarstaðar, svo að óhætt má fullyrða, að 90 mæður af hundraði geti haft börn sín á brjósti. Konan á því að hafa barn sitt á brjósti, af því að hún hefur getu á því, og sú skylda fellur á hennar herðar. Með því ber hún margvísleg laun úr býtum, því fulla ást til barnsins fær hún ekki, fyr en hún hefur int þessa skyldu af hendi, og eigi heldur fær hún ást barnsins að fullu fyr; með öðrum orðum: konan varpar úr hendi sér tveimur þeim gimsteinum, sem henni eiga að vera dýrmæt- astir og mest skart að, móinirdstinni og barnsdstinni. Björn próf. Halldórsson skýrir frá því í »Atla« sínum, að kona Katós hafi ekki aðeins haft sín börn á brjósti, heldur hafi hún oft gefið börnum ambátta sinna að sjúga sig; en laun henn- ar voru ást barna þeirra til hennar. Lesi menn og aðra sögu, er þar stendur um son konu einnar, sem kom auðugur heim úr hernaði; móðurinni, sem ekki hafði alið hann á brjóstum sér, gaf hann silfurmen, en fóstru sinni, sem það hafði gert, gaf hann gullmen. Ást, ánægja og gleði eru tíðust laun móðurinnar frá barns- ins hálfu, og hún hefur góða samvizku af því, að hafa fram- kvæmt móður-skyldu sína og sýnt sanna móðurást til barnsins. 3. Hvaða gildi og yfirburði hefur kvennamjólk fram yfir dýramjólk? Hér á landi, eins og víðast erlendis, er það algengast, að gefa ungbörnum kúamjólk í stað brjóstamjólkur; skal því saman- burðurinn gerður með sérstöku tilliti til þess, þó að hið sama gildi um mjólk annarra dýrategunda að öðru jöfnu. Kvennamjólk er ólík kúamjólk að því er efnasamsetning 2

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.