Eimreiðin - 01.01.1913, Page 19
19
hlíf gegn sjúkdómum, og ættu allir að geta metið gildi þessa; en
kúamjólkin veitir barninu enga slíka vernd.
Líkindi eru til, að ýms efni gangi á þenna hátt frá móður
til barns með brjóstamjólkinni, og létti því baráttuna fyrir tilver-
unni, sem er hættulegust og erfiðust á barnsskeiðinu. Ungur
líkami framleiðir lítið af varnarefnum sjálfur, og er þessa því
meiri þörf.
Petta sýnir oss ljóslega, að um tíma og eilífð muni það
ókleift, að telja nokkurt annað fæðuefni jafngildi hinnar lifandi og
heilnæmu lindar móðurbrjóstsins.
Gildi og yfirburðir kvennamjólkur koma einnig greinilega í
ljós, ef vér virðum fyrir oss brjóstbarn og pelabarn. Brjóstbarnið
er rjóðleitt í andliti og sællegt; pelabarnið er fölleitt, oft með út-
þotum og ígerðum; vöðvar þess eru linir og afllitlir og fitukvap
á því; það byrjar seinna að ganga, er fjörminna, og andlegur þroski
þess líka seinni; oft er það önugt og angurvært, sefur órótt og
er altaf magaveikt. Brjóstbarnið sleppur hjá þessum kvillum oft-
ast nær. Enginn má þó skilja orð mín svo, að eigi geti verið
undantekning frá þessu; það er algengast, að svona sé, og ein-
staka undantekningar sanna ekkert.
4. Hve mikið þarf brj óstbarnið af mjólkf
Eins og minst hefur verið á, er það alsiða, að konan hætti
að hafa barnið á brjósti, af því að hún heldur, að það fái eigi
nóg, sé svangt. Pað getur og verið að svo sé, en engin ástæða
er til þess að svifta barnið brjóstinu, nema því að eins, að þetta
hafi við rök að styðjast: að barnið horist. Oftast er það hræðsl-
an og þekkingarleysið, sem hér ræður mestu um; móðirin heldur,
að barnið þurfi meiri mjólk en það í raun réttri þarf.
En hve mikið þarf það?
Eftirfarandi tafla er samin af lækni þeim, er Cranmer heit-
ir, og er hún tekin úr þýzkri barnalækningabók eftir próf. Salge.
Hún sýnir okkur þetta ljóslega:
Aldur barns: 1. dagur
Mjólk á sólarhr.: o___10 gr.
Aldur barns: */, mán.
Mjólk á sólarhr.: 500 gr.
2. d. 3. d. 4. d.
90 gr. 190 gr. 310 gr.
mánaðarg. 2.ja mán.
600 gr. 800 gr.
5. d. 6. d. 7. d.
350 gr. 390 gr. 470 gr.
3_ja mán. 6 mán.
900 gr. 1000 gr.
Prífist barnið eigi á brjóstinu, skal vega það fyrir og eftir
máltíð; þungaaukinn sýnir þyngd mjólkurinnar, er barnið neytir.
2'