Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1913, Side 40

Eimreiðin - 01.01.1913, Side 40
40 einnig Rómaborg, samkoniu- og sambræðslustað allra trúarbragða og hindurvitna. Sjálfur hinn þröngsýni þjóðernisflokkur í Júdeu komst eigi undan áhrifum utan að í trúarskoðunum, þótt hann þversynjaði þess; ræður Faríseanna eru þess vitni. Því fremur sem þeir héldu fast fram kröfum sínum um tilkomu Messíasar, því fremur neyddust þeir til að fá að láni orðalag grískra heimspekinga og dulfræði Austur- landa, til að sýna dýrð hans og vegsemd. Ymsar alþýðu-hugmyndir um það efni virðast hafa verið ærið öfgafullar; spár um síðustu tíma (apokalypses) lágu eins og í lofti og í öllum var Messías oddviti; ýmist var hann þjóðhöfðingi af húsi Davíðs, meiri hetja en Júdas Makkabeus, gæddur gáfum af himni ofan til þess, að leysa ættjörð sína frá öllu illu; ellegar hann átti að koma beint frá himnum og vinna hið sama end- urlausnarverk; aðrir kendu, að hann væri útstreymi (emanation) frá- veru guðdómsins, eða þá því, er menn nefndu frumsköpun, eða sá aeingetnis, sem skapað hefði alla heima. Menn verða að muna, að eftir almennri hugsun tímans, jafnt Persa sem Grikkja, þótti slíkrar veru við þurfa sem meðalgangara milli guðs og sköpunarverks hans. í viðbót við þessa margbreytpi og rnörgu einkenni hugmyndarinnar kemur svo kenningin um frelsarann frá syndinni og hennar afleið- ingum, og trúin á upprunalegt guðlegt manneðli, er allir menn væru komnir af og ættu tilkall til. Þetta getum vér komist lengst og full- yrt að svo komnu, og munu flestir játa, að efni þetta sé frámunalega flókið og margbrotið. Og það er enginn hægðarleikur að ákveða, hver eða hvað margar af þessum skoðunum hafi haft mest áhrif á lýðinn í Galíleu eða Jerúsalem í upphafi kristindómsins. En hvaða þýðingu hafa þær nú? Það er spurning, sem eigi þarf lengi að bíða svars. Vér megum óðara vísa á bug Messíasi Gyðinga — nema að svo miklu leyti sem hann hefur átt að tákna allsherjar- ríki réttlætisins; er þó ærið efasamt, hvort aðrir en sár-fáir hafi hugsað- hann svo. Heimur vor nú á dögum væntir eigi eftir fyrirmyndarkon- ungi, jarli guðs eða fulltrúa, þótt talað sé um komandi bróðerni allra þjóða; vér búumst og eigi við, að upp rísi maður gæddur himneskum- yfirburðum, sendur til að afreka slíka hluti. Nauðsyn logos-kenningar- innar er einnig horfin; hugsun nútímans þarf hennar eigi, og mundi verða hrundið með þeirri hjátrúarbreytingu, sem var í för með henni. Hvað »manninn af himnis snertir, megum vér betur gæta vor. Því í rauninni verður eigi komist hjá að hugsa einhverja einkunn eða eigin- leik guðdómsins, sem sé eða sýni nú þegar það fyrirmyndarmanneðli, er betur og betur sé að birtast í mannkyninu, leiði það og viðhaldi því. Á stríðsvelli tímans eru mestu afreksverkin unnin af frumheijum, er allir mega kallast líðandi og stríðandi þjónar guðs. Siðmenningar- framfaraspor kynslóðanna eru eigi keypt með afslætti eða lágu verði; á hverjum vegamótum bíður krossfesting hvers frumherja. Þegar vér því höfum takmarkað og tekið saman hinar fornu Krists hugmyndir og haldið hinu einfaldasta eða því, sem hugmyndir nútímans bezt fá skilið og tileinkað sér, þá verður það hugsjón fyrirmyndarmannsins, sál alheimsskipulagsins, sú, er vera skal lífsfræ í hverjum einstökum, og birtast betur og betur, eftir því sem tímar líða, í vaxandi framþró- un alls mannkynsins. Kristur er kosmist (p: allsherjar) nafn, að því

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.