Eimreiðin - 01.01.1915, Blaðsíða 2
2
Einar Jónsson ekki réttmæti neinnar einstakrar listastefnu fram
yfir aðrar. Eðlishvötin er æðsta listaboðorð hans.
Fyrir 2 árum síðan gerði hann uppdrátt að minningarmarki
yfir Viktoríu Engladrotningu, keisaradrotningu Indlands. Situr
hún þar í veldisstól, er hvílir á baki indversks fíls, en skrautklæði y
eru breidd yfir fílinn (sjá I. mynd). Sitt hvoru megin sjást 7
höfðingjar; eru það eigi myndir undirkonunganna á Indlandi,
heldur að eins ímynd æðstu trúnaðarmanna drotningar, þeirra er
drotning hafði mestar mætur á í stjórnartíð sinni. Pá eru 4
myndir alla vega: morgunn, dagur, kvöld, nótt, og tákna þær
I. Minningarmark Viktoríu Engladrotningar.
ríkisstjórnartíma drotningar og líf hennar; sést »morgunn« á
myndinni. Loks sjást neðst upphleyptar myndir af ýmsum við-
burðum úr sögu Indlands á dögum drotningar. En þó eigi raun-
veruleg atriði, heldur ímynd ein, og sést hér glögglega, hve
raunsæisstefnan er tjarri Einari Jónssyni, og hve mikið hugsjóna-
skáld hann er.
Trúhneigður hefir hann ætíð verið og kynt sér mjög siðfræði
og ýmsar trúarskoðanir, þær er nú eru efst á baugi með stór-
þjóðum heimsins. Er því eigi að furða, þótt hann sæki oft yrk-
isefni sín úr trúarhugmyndum manna. »Ragnarök« nefnir hann
málverk eitt, er hann gerði fyrir nokkrum árum. Eru það síð-