Eimreiðin - 01.01.1915, Qupperneq 5
5
Kjarnann í kristinni trú sýnir Einar Jónsson í listaverki því,
er hann lauk við 1913 og nefnir: »Komift til mín —«; eru það
orð meistarans: »Komið til mín allir þér, sem erfiðið og þunga
eruð hlaðnir, og ég mun veita yður hvíld.« Petta er hvort-
tveggja í senn (sjá 3. mynd) málverk og höggmynd: upphleypt
mynd (úr silfri) af Kristi, er breiðir líknarfaðm sinn móti vesöl-
um jarðarbúum; stafar geislum af myndinni alt í kring, en
bak við kristsmyndina og neðan til sjást sól og jörð á blá-
um grunni. Samlíkingin er því: sólarljósið—jörðin, Kristur—
mannkynið.
4. Eróun A.
Síðasta, og ef til vill bezta, listaverk Einars Jónssonar er
i>Þrðun<i (1913—1914). Lýsir hún framsóknarbaráttu mannanna
að fullkomnunartakmarki trúar og siðgæðis. 3 stig eru sýnd.
Lægsta stigið er dýrseðlið (sjá 4. mynd). Dýrið liggjandi líkist
helzt uxa, vísundi, en er raunar að öðru leyti hugarburður lista-
mannsins. í listum er uxi tákn afls og ruddaskapar. Pví næst
sést risi, er leitast við að rísa á fætur, en getur eigi. Heldur
hann annarri hendi um horn dýrsins og sýnir baráttuna við dýrs-
eðlið, er hann megnar ekki að losa sig við, þó viljann hafi hann,
því hinni hendinni styður hann við upprétta manninn, sem er
fulltrúi þriðja stigsins. Heldur hann á hugsjónaheimi sínurn,