Eimreiðin - 01.01.1915, Side 8
8
Eg er jafnt í sögum kappa og klerka
kyntur, sama lund í hamaskiftum.
Sat með grímu og andlit Ögmunds fióka
Oddi fyrir, bæði á sjó og landi.
Krossinn helga og hálftungl Arabíu
hengi á stangir yfir val og þýjum.
Aftur og fram frá Faraós pýramídum
fótspor mín um kynslóðirnar liggja.
Til að þenja á þjóðlönd eyðisanda
þrælum fékk eg skorðurnar um Nílá.
Gríp með krumlum heimsku og illra heilla
hug og sálir, jafnvel góðra manna.
Sérhvert morðvopn, alla heimsins heri
hef ég vígt til glæpa og afturfara.
Dreka Pynar1). dauðatól frá Essen8),
drápsvit manna brýni fram til heifta.
Hákon Saxa, Hölgabrúði Engla
herði, að blóta Erlingi, til sigurs.
Viti kendi eg leiðir, til að ljúga
lýti af því, sem stendur fyrir sönnu.
Norður á Finnmörk, austur yfir Indland,
allra sveita ráð og Kaupa-Héðinn,
Alþýðunum sel eg kött í sekknum,
sjóðum ek í Fofnisbæli auðsins.
Eg geng um í allri kenslu-sögu
undir gervinafni smáðrar dygðar:
Ef að frelsi auðnast það, að sigra,
að kemst ég og legg því glaparáðin;
ber svo róg um of-frelsi og ærsli
allar götur milli skyns og heimsku.
Sue3) kpm að mér. Horfði á mig henda
') Pyn, fornt árheiti. Hér áin Tyne á Englandi. ’) Essen, þar standa
vígvélasmiðjur Krúpps. 8) Sue = Eugene Sue (framb. Sý).