Eimreiðin - 01.01.1915, Síða 43
43
flóa hafi, að minsta kosti á vetrarvertíðinni, mest verið notuð
fjögramannaför. Árið 1903 voru 10 fjögramannaför í Rvík, og
eitt sexmannafar, og er það hiklaust eins mikið eða meira, en
verið hefir 1703; en auk þess áttu Reykvíkingar 1903 35 þil-
skip. Væri eignum Reykvíkinga nú skift jafnt milli allra íbúa
bæjarins, kæmi allmiklu meira á hvern íbúa, en 1703, og fátækt
manna minni nú en þá; en það, sem máske er þó ennþá ein-
kennilegast og mest eftirtektarvert, er, að landbúnaður Reyk-
víkinga er meiri nú, en þegar landið var að öllu leyti notað
til ræktunar, eftir þeirrar tíðar hætti. Petta virðist mér vera
ein af sönnunum þess, að bættar samgöngur bæti landið, þ. e.
betri markaður; og það er ég sannfærður um, að ekkert gæti
bætt og eflt landbúnaðinn meira en járnbraut frá Rvík norður
sveitir til Akureyrar, og járnbraut frá Rvík til Rangvell-
inga.
Næsta manntal, er farið hefir fram á íslandi, mun hafa farib
fram árib 1727. I »Skýrslum um landshagi« I, 2 er manntalið
1769 talið næsta manntalið; en það er ekki rétt. Víst er um
það, að Hannes skjalavörður Porsteinsson á manntal frá 1727
yfir Rangárvalla, Árness og Hnappadals sýslur; eru það frumrit
og með sama fyrirkomulagi og manntalið 1703. Að líkindum
hafa þessi manntöl verið tekin þá í tilefni af bygging Grænlands.
Það var þá mikið rætt um Grænlands bygging, og að fá íslend-
inga til að flytja þangað; en ekkert varð úr því. En um mann-
tal fyrir aðrar sýslur en þessar 5 fyrtöldu er ókunnugt.
Árið 1735 hafa verið taldir allir heimilisfeður á íslandi. Sú
skýrsla er gjörð með tilliti til verzlunarinnar og hvar hver bóndi
á að verzla. Pær skýrslur eru í frumriti í Ríkisskjalasafni
Dana.
Árið 1762 fer fram manntal á íslandi, og það lítur út fyrir,
að um það manntal hafi þeim verið með öllu ókunnugt, er hafa
haft með hagfræðisskýrslur landsins að gera. Petta manntal er
á prentuðum eyðublöðum, og er geymt í Ríkisskjalasafni Dana.
Er það í fjórum pökkum, en talsvert vantar á, að það sé úr
öllum sveitum landsins. Munu sumir skýrslusemjendur ekki hafa
gjört skyldu sína í þessu efni, og sumpart hefi ég líka fundið
skýrslur úr þessu manntali í öðrum pökkum frá íslandi, óskyldum