Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1915, Side 59

Eimreiðin - 01.01.1915, Side 59
59 átti við. Þetta var það, sem menn kölluðu »fluguna í höfðinu á honum«. Séra Keli hélt áfram: »Pað eru sérréttindi ykkar prestanna, sem engum hefir dott- ið í hug að skerða, að mega tala þar, sem engir aðrir hafa málfrelsi. Hvernig notið þið þessi sérréttindi? — Eða hefir ykkur aldrei komið til hugar, að einhvern tíma kynnuð þið að þurfa að svara til þess, sem þið segið í stólnum?* »Það er um launakjör presta, sem hér er verið að tala,« dirfðist fundarstjórinn að grípa fram í, og hringdi bjöllunni um leið. En séra Keli lét ekki slá sig af laginu. »Já, það er einmitt um launakjör presta, sem ég er líka að tala,« mælti hann, og var þá alment hlegið. »En ég vil minnast á það um leið, hvað þeir hafa til launanna unnið. — Eg var kom- inn að lyginni, vinir mínir. Lyginni — þessari dóttur djöfulsins, sem sáir illgresi í alt okkar þjóðlíf. — Eg tek rétt til dæmis: Á þessum síðustu og verstu tímum eru hér á landi tveir stjórn- málaflokkar, annar, sem hefir völdin, hinn, sem vill ná þeim. En lygin skiftist á milli þeirra. Henni er þjónað í báðum flokkun- um. Stjórnarflokkurinn ver gerðir stjórnar sinnar með lygum; hinn flokkurinn reynir að steypa henni með lygum. Við allar kosningar lýgur hvor flokkurinn blygðunarlaust upp á annan. Lygar, sem allir vita, að eru lygar, eru breiddar út hátt og í hljóði, í því trausti, að einhver glæpist á þeim og ekki sé hægt að hnekkja þeim fyr en um seinan. Og prestarnir? Hvað gera þeir? f*eir skiftast auðvitað á báða flokkana, eins og lygin. En þeir rísa auðvitað móti henni af alefli og beita sínum miklu og góðu áhrifum til að hnekkja lygunum og brennimerkja lygarana. Er ekki svo? — O-nei, þeir eru nú betri flokksmenn en svo, blessaðir! Peir hylla lygina, eins og aðrir, og halda fyrir henni skildi. Peir styðja hana, þjóna henni og þykir vænt um hana, gera sér gælur við hana eins og góða veiðibrellu, líða flokki sínum að nota hana sér til hagsmuna, nota hana sjálfum sér til gengis og — fljóta sumir inn á þingið fyrir hennar full- tingi.« »Petta er ósatt!« gall við í prófastinum, sem líka var þing- maður.

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.