Eimreiðin - 01.01.1915, Side 68
68
sem ekki verða upp taldar; auk skýrslna og reikninga. — Að eins
eitt enn. Birtar eru tillögur um gróðrartilraunir frá búnaðarmálafund-
inum í Reykjavík 1912, er þar voru samþyktar. Má af því marka,
að vaknaður sé hugur á, að fá tilraunum vorum fasta stefnu, svo
þær í framtlðinni megi starfa sem samverkandi heild, búnaði vorum til
þrifa.
V. S.
ÁRSRIT RÆKTUNARFÉLAGS NORÐURLANDS 1913. Ak-
ureyri 1913.
Félagið þá 10 ára. Glögt yfirlit yfir starfsemi félagsins þetta 10
ára bemskuskeið þess flutti formaður þess, Stefán Stefánsson, í
ræðu á aðalfundi, og er hún prentuð í Ársritinu. Félag þetta hefir
átt sína bamasjúkdóma — og, sem betur fer, hefir það lifað þá
prýðilega af. Yfirlitið sýnir, að starfsemin eykst og verksviðið verður
víðtækara, eftir því sem lengra líður, jafnframt því sem félaginu vex
fiskur um hrygg; og það stendur með ári hveiju á fastari fótum.
Ræktun landsins var fyrsta markið og einasta. En ræktunin sem
grundvöllur búnaðarins var og sjálfsögð byijun. Seinna færir fé-
lagið sig upp á skaftið. Búnaðarframfarir, hveiju nafni sem nefnast,
eflir það og styður, og telja má þess vísa von, að um næsta 10 ára
skeið þoki það búnaði Norðurlands enn rösklegar fram á við. —
Yfirlit yfir starfsemi félagsins þetta ár ritar Jakob Líndal fram-
kvæmdarstjóri; þá og aðra ritgerð : » Bunaðarathuganir«. Er hún um
athuganir og skýrslur hinna svonefndu sýslubúfræðinga, er Ræktunarfé-
lagið sendir um alt Norðurland á hveiju sumri. Starf þeirra er meðal
annars, að safna skýrslum um ýms mikilvæg búnaðaratriði, og skapa
á þann hátt tryggan og réttan grundvöll undir sjálfstæð innlend bú-
vísindi. Ritgjörðin sýnir fram á, hve mikla þýðingu slíkar athuganir
hafa. — Sigurður Sigurðsson skólastjóri ritar «um jarðepli*. Er
saga þeirra hér á landi þar ýtarlega rakin og ræktun þeirra og með-
ferð allri nákvæmlega lýst, eins og hans er von og vísa. En Jakob
Líndal skýrir frá tilraunum í jarðeplarækt þessi 10 félagsár. Ræktun-
artilraunir eru erfiðar, en jafnframt nauðsynlegar í öllum menningar-
löndum. En þegar tilraunir eru gjörðar, þarf árangur þeirra að birt-
ast, helzt á hveiju heimili á landinu. Hér má sjá, hve langt er kom-
ið tilraununum, hver árangur er af þeim orðinn, og hvert stefnt er.—
Æskilegt væri þó, að dregið væri saman í stutt mál og ákveðið alt
það. er birta má sem vissan árangur eftir þetta 10 ára starf.
V. S.
TlMARIT KAUPFÉLAGA OG SAMVINNUFÉLAGA. VII. ár.
Ritstjóri: Sigurbur Jómson. Akureyri 1913.
Hér er vel haldið í horfinu sem fyr, og efnið tiltölulega marg-
breytt, þótt alt stefni að sama marki og nálega alt (að undanteknum
ýmsum skýrslum) sé ritað af einum manni, ritstjóranum. Hann ritar
t. d. um ýmsar eldri kenningar hagfræðinga og áhrif þeirra, um Eim-
skipafélag íslands. ýmislegt frá útlöndum (um kaupfélög og samvinnu-
félög o. fl. erlendis), um hag og horfur, kjötútflutning, mjólkurvörur