Eimreiðin - 01.05.1915, Síða 12
88
heimsskautalöndunum; og má ráða það af rannsóknum í Noregi,
Frakklandi og Sviss.
Ef gerla vantar algjörlega einhversstaðar, þá er það efalaust,
þar sem jarðvegur og loft er þurt, og mikið sólskin; því að gerl-
ar þola illa vatnsleysi, og sólskinið er bráður bani fyrir flesta
þeirra.
Langflestir gerlar eru jarðgerlar og gróa í moldinni, eins og
aðrar jurtir. En margar af tegundunum eru ekki við eina fjöl
feldar, og lifa þá jafngóðu lífi í mold og vatni, eða jafnvel í lif-
andi skepnum. Sumir gerlar eru þó eingöngu í vatni, og sumir
eru aðeins sníkjugerlar.
í moldinni er gerlafjöldinn langmestur í sjálfu yfirborðinu.
Samkvæmt rannsókn, sem gjörð var í Berlín, voru í garðmold i
hverjum teningssentímetra í yfirborðinu 450.000 gerlar, í tveggja
metra dýpt 200,000. en í þriggja metra dýpt ekki nema 100.
Má af þessum tölum sjá, að gerlunum fækkar óðum, því dýpra
sem kemur uiður í moldina, og er venjulega álitið, að moldin sé
gerlalaus, eða að minsta kosti gerlalítil, í þriggja metra dýpt.
Svo má næstum því að orði komast, að langflestar gerla-
tegundir sé moldargerlar. En úr moldinni komast þær oft í vatn
eða loft. Einkum er moldin bústaður hins afarfjölskipaða rot-
gerlaflokks. Par er og bústaður saltpétursgerlanna, rótargerlanna
og margra annarra. Sóttgerlar eru og alloft í moldinni, og má
til þess nefna miltisbrandsgerilinn, Auk þess geta ýmsir aðrir
sóttgerlar lifað í mold, t. a. m. taugaveikisgerill, barnaveikis-
gerill, kólerugerill o. fl.
Vatnið er miklu snauðara af lífrænum efnum en moldin, og
er því ekki eins góður gróðrarreitur fyrir gerlana. Og þótt nokk-
uð sé af lífrænum efnum í vatni, þá mundu þau skjótt ganga til
þurðar, er gerlarnir tækju sér þar bústað. Og þótt vatnið í sjálfu
sér sé nauðsynlegt fyrir gerlana, þá gætu þeir þó ekki lifað af
tómu vatni, og mundu þá skjótt deyja úr sulti, er lífrænu efnin í
vatninu væru búin. Gerlalíf vatnsins er langfjölskrúðugast, þar
sem mikið er af lífrænum efnum. í rensli úr skolpræsum er mikið
af lífrænum efnum, og þar er þá líka mesti aragrúi af gerlum.
Skolpræsi ýmsra stórborga, er standa við ár, hafa afrensli í árnar.
í borgunum, og neðan við þær, er mjög mikið af lífrænum efn-
um, og gerlamergðin eftir því. Petta gerlavatn færist svo neðar
og neðar, en smámsaman minka lífrænu efnin í vatninu, og fer