Bókasafnið - 01.04.1997, Qupperneq 3
BÓKASAFNIÐ
21. árgangur 1997
Efni blaðsins:
Frá ritstjóra:
5 Uin þann ómerkilega stað, Paradís
Jón Kalman Stefánsson
7 Lestrarfélög í Arnessýslu
Ingibjörg Sverrisdóttir
13 Sameiginleg markmið bókasafna á Akureyri
Sigrún Magnúsdóttir
16 Samstarf framhaldsskólasafna og
almenningsbókasafna
Margrét Loftsdóttir
18 Bókasafns- og upplýsingaþjónusta fyrir fjarnema
Þórhildur S. Sigurðardóttir
25 Ævintýrin gerast enn...
Regína Eiríksdóttir
29 Lœrum meðan lifum
Aslaug Agnarsdóttir
33 Upplýsiitgar og almannatengsl
Halldóra Þorsteinsdóttir
36 Kvennasögusafn í Þjóðarbókhlöðu
Erla Hulda Halldórsdóttir
38 Notendaþjónusta í Bókasafni Kópavogs
Hrafn Harðarson
40 Notendaþjónusta í Borgarbókasafni
Anna Torfadóttir
42 Þjónusta almenningsbókasafna við nýbúa
Kristín Aðalsteinsdóttir
46 Ferðalangur á bókasafni
Jón Sævar Baldvinsson
48 Bókasöfn í villta vestrinu
Margrét Ásgeirsdóttir
51 Markaðssetning almenningsbókasafna á Islandi
Karítas Kvaran
57 Fundir forstöðumanna almenningsbókasafna
Marta Hildur Richter
58 Flokkun í Landsbókasafni íslands -
Háskólabókasafni
Guðrún Karlsdóttir
63 21. útg. Dewey-kerfisins. Dewey for Windows
Auður Gestsdóttir
68 Hvað lastu um jólin?
71 Ritdómar
76 Islenskar frœðibœkur ársins 1996
77 Af rannsóknarritvellinum
81 Afgreiðslutími safna í apríl 1997
Að þessu sinni prýðir ljósmynd af danskorti frá 1901 í eigu
Kvennasögusafns íslands forsíðuna. Kvennasögusafnið, sem
stofnað var af miklum myndarskap á heimili Önnu Sigurðar-
dóttur árið 1975, var opnað í Þjóðarbókhlöðu 5. desember sl.
Erla Hulda Halldórsdóttir, forstöðumaður þess, gerir grein fyrir
tilurð safnsins og sögu í þessu hefti.
I síðasta hefti voru tvær deildir Landsbókasafns íslands -
Háskólabókasafns kynntar. Haldið er áfram með þessar kynn-
ingar og nú er röðin komin að upplýsingadeild og útlánadeild.
Auk þess eru fjölmargar aðrar greinar í blaðinu sem fjalla um
notendaþjónustu á einn eða annan hátt. Notendaþjónusta er því
eins konar þema þessa heftis. Haft var samband við forstöðu-
menn nokkurra almenningsbókasafna og þeir beðnir að segja frá
nýjungum í notendaþjónustu á sínu safni. Það gerði m.a. Hrafn
Harðarson. Sumir völdu að fjalla almennt um efnið og birtast
hugleiðingar þeirra hér. Það á t.d. við grein Önnu Torfadóttur.
Einnig eru áhugaverðar greinar um upplýsingaþjónustu við
ferðamenn, þjónustu við nýbúa og samvinnu bókasafna.
Það þykir ávallt sæta tíðindum þegar ný útgáfa af flokkunar-
kerfi Deweys sér dagsins ljós og í tilefni af útkomu 21. útgáf-
unnar skrifar Auður Gestsdóttir um helstu breytingar frá 20. út-
gáfunni og segir einnig frá rafrænu útgáfunni Dewey for win-
dows. Guðrún Karlsdóttir skrifar um flokkun í Landsbókasafni.
Rithöfundurinn Jón Kalman Stefánsson hefur starfað f Hér-
aðsbókasafni Kjósarsýslu í Mosfellsbæ í vetur. Hann var beðinn
að skrifa í blaðið um eitthvað sem tengdist bókasöfnum. Að
öðru leyti fékk hann að ráða efnistökum. Með skrifum hans mun
vonandi myndast hefð fyrir birtingu skáldskapar í Bókasafninu.
Mjög hefur færst í aukana að bókasafnsfræðingar taki meist-
aragráðu í fjarnámi og gera þrír fjarnemar grein fyrir meistara-
prófsverkefnum sínum hér. Auk ofangreinds efnis er að finna
ýmislegt annað forvitnilegt og vona ég að lesendur hafí bæði
gagn og gaman af þessu hefti.
Þetta blað er það fyrsta sem ég ritstýri. Vil ég þakka forvera
mínum í starfinu, Regínu Eiríksdóttur, fyrir fjallmyndarlegt blað
undanfarin þrjú ár og góða aðstoð við óvanan byrjanda á þessu
sviði. Einnig þakka ég ritnefndinni fyrir alla þá vinnu senr hún
hefur innt af hendi í vetur og ekki síst aðstoðina og stuðninginn
sem hún hefur veitt mér. Ritnefndin þakkar svo öllum sem lagt
hafa til efni í blaðið. Merktar greinar eru á ábyrgð höfunda.
Aprfl 1997 Áslaug Agnarsdóttir
Útgefendur/Publishers:
Bókavarðafélag íslands
The Icelandic Library Association
Félag bókasafnsfræðinga
The Association of Professional
Librarians
Bókafulltrúi rikisins
The Director of Public and
School Libraries
Heiniilisfang/Address:
Bókasafnið, c/o Áslaug Agnarsdóttir
Landsbókasafn íslands -
Háskólabókasafn
Arngrímsgötu 3
107 Reykjavík
Ritnefnd/I''ditoriaI board:
Áslaug Agnarsdóttir, ritstjóri/editor
Guðrún S. Gísladóttir
Magnea Bára Stefánsdóttir, ritari
Margrét G. Bjömsdóttir
Pálína Magnúsdóttir
Þóra Óskarsdóttir, gjaldkeri
Prentun: Gutenberg - Steindórsprent
Ljósmynd á kápu: Helgi Bragason
ISSN 0257-6775
Bókasafnið hefur frá árinu 1989
verið lyklað í Library & Information
Science Abstracts (LISA).
Eldri blöð fást hjá:
Þjónustumiðstöð bókasafna
BÓKASAFNIÐ 21. ÁRG. 1997 3