Bókasafnið - 01.04.1997, Qupperneq 49
mest notaðar til ýmissa þroskaleikja s.s. til að læra lit og lögun.
Algeng sjón er að sjá börn frá fjögurra ára aldri önnum kafin við
að leysa skemmtileg þroskaverkefni á tölvunum í barna-
deildinni.
Símaþjónusta
A bókasafninu í Loveland í Colorado geta lánþegar t.d. endur-
nýjað bækur sínar í gegnum síma en þó ekki oftar en tvisvar. Það
er einnig hægt að hringja í sérstakt símanúmer á bókasafninu og
hlusta á nýja sögu vikulega (Dial-a-Story).
Útlán og skil
I öllum söfnunum er þjófavarnarkerfi. Á skólasafni gagn-
fræðaskólans í Gillette í Wyoming var nýlega búið að setja upp
þjófavarnarkerfi en áður höfðu tapast unt 2000 bækur.
Afgreiðslan er alls staðar vel merkt. Það eina sem er frá-
brugðið því sem tíðkast á íslandi er að lánþegar skila safnefninu
í sérmerkta lúgu í afgreiðsluborðinu. í öllum almenningsbóka-
söfnum er upplýsingaborðið staðsett annars staðar en útlán og
skil fara fram.
Húsbúnaður
Ekki er alltaf fylgt nýj-
ustu tísku í húsbúnaði
safnanna. Sum söfnin eru
eins og stigið sé inn í
bfómynd frá því milli
1965-1975 hvað litaval og
stíl húsgagna snertir. Allt
er samt mjög snyrtilegt og
vítt til veggja víðast hvar.
Sérstaklega er vel hlúð að
barnadeildum og þær gerð-
ar hlýlegar með fallegu og
hugmyndaríku skrauti.
Barna og
unglingastarf
Á öllum almenningsbókasöfnum þykja sögustundir vera eitt
það mikilvægasta í barnastarfinu. Þær eru einu sinni til tvisvar í
viku. Sögustundir og sögustundadagskrár eru vel undirbúnar af
bókasafnsfræðingi barnadeildar og aðstoðarmanni hans. I
sögustund er lesið, gerðar léttar teygjur eða grettur á milli atriða,
sungið eða leikið brúðuleikhús og rabbað saman. Sögustundir
eru flestar ætlaðar börnum frá tveggja ára aldri.
Á bókasafninu í Gillette í Wyoming, sem er ungur bær þar
sem mikið af ungu fólki býr, er sérstaklega mikið gert í barna-
deild almenningsbókasafnsins. í Gillette eru um 10 þúsund
bækur lánaðar út úr barnadeildinni mánaðarlega en í bænum búa
25 þúsund manns. Þar eru að sjálfsögðu sögustundir en einnig
„night-programs” fyrir foreldra með ung börn. Við getum kallað
þetta rökkurstundir þar sem foreldrar koma á bókasafnið með
ung börn sín og sungnar eru vögguvísur. í barnadeildinni er
einnig að finna sérstaka hillurekka með bókum um barnauppeldi
svo foreldrarnir þurfi ekki að fara út úr deildinni til að finna þess
konar bækur. í deildinni er sömuleiðis herbergi með barnarúmi
þar sem sá sem kemur með lítið barn og annað stærra getur setið
og lesið eða skipt á því yngra meðan eldra barnið dvelur í barna-
deildinni. Litla barnið veldur þá engum ónæði á meðan. í barna-
deildinni í Gillette er einnig hugað sérstaklega að þjónustu við
dagmæður. Þær koma inn á safnið með börnin og fá afhenta sér-
staka poka með bókum í til að lesa heima svo þær þurfi ekki að
eyða tíma í að velja bækur sjálfar og geta því sinnt börnunum á
meðan á bókasafnsdvölinni stendur. Barnadeildir þjóna einnig í
auknum mæli þeim foreldrum sem kjósa að kenna börnum sín-
um heima í stað þess að senda þau í skóla.
í Scottsbluff í Nebraska fá öll fjögurra ára börn í leikskólum
bæjarins send boðskort þar sem þeim er boðið að koma í
heimsókn á bókasafnið og eignast bókasafnskort.
Sumarlestur er í öllum bókasöfnum og er þá reynt að tengja
lestur og hreyfingu. Ungir sjálfboðaliðar hjálpa oft til og er svo
boðið á pizzastað í lok sumarlestursins (í boði veitingastaðar-
ins). Sumarlestur krefst mikils undirbúnings og er þemað ákveð-
ið með löngum fyrirvara, heimilda aflað, barnadeildin skreytt og
ákveðið hvað skal gera úti við í tengslum við lesturinn.
í öllum almenningsbókasöfnum eru unglingadeildir (Young
Adult Area frá 12-18 ára) og eru þær oftast frekar aflokaðar. Þar
er að finna bækur sérstaklega ætlaðar þessunt aldri, alls kyns
bæklinga með upplýsingum um getnaðarvarnir, sjálfsmorð, rétt-
indi manna o.fl. Á vissum aldri vita lánþegar ekki alveg hvort
þeir tilheyra barna- eða fullorðinsdeild. Mikilvægt er að missa
unglingana ekki út af safninu á þessum aldri og því er reynt að
hafa efni sem vekur áhuga
þeirra í unglingadeildum.
Því má við bæta að vin-
sælustu bækurnar fyrir 8 til
12 ára börn eru svokallaðar
„Goose pimples" bækur
sem fást allstaðar og kosta
lítið. Þetta eru „léttar"
hrollvekjur eftir R.L. Stine
sem hafa heltekið banda-
rísk börn og bókasöfn.
Starfsfólk
I flestum bókasöfnum
eru nýráðnir starfsmenn
þjálfaðir sérstaklega í byrj-
un starfstímans. í almenn-
ingsbókasafninu í Laramie
í Wyonting fá nýjir starfs-
menn starfsþjálfun sem
tekur eina viku. Þar er einnig sérstök starfsmannahandbók sem
alltaf er hægt að líta í. Allir sem starfa í bókasafninu eru
þjálfaðir til að svara spurningum notenda. Þar fer enginn út án
þess að fá einhverja vísbendingu um hvar best sé að leita svara
ef ekki er hægt að veita svörin í bókasafninu.
Starfsmannafundir eru reglulega. Eg var viðstödd starfs-
mannafund í almenningsbókasafninu í Laramie í Wyoming. Þar
eru starfsmannafundir haldnir mánaðarlega og deildarstjóra-
fundir hálfsmánaðarlega. Starfsmannafundir eru undirbúnir til
jafns af almennu starfsfólki og yfirmönnum svo dagskrá geti
legið fyrir nokkru áður en fundur hefst. Starfsfólk fær tækifæri
til að koma hugmyndum sínum og kvörtunum á framfæri og
verkefni og dagskrá bókasafnsins eru skipulögð. Fundirnir eru
um klukkustunda langir.
í Bandaríkjunum þykir starf sjálfboðaliða alveg sjálfsagt.
Stundum eru sjálfboðaliðar mjög stór hluti af vinnuafli bóka-
safnsins. Þeir eru á öllurn aldri með ýmiskonar bakgrunn og
menntun. Sumir raða upp, aðrir hjálpa til við undirbúning í
barnadeild eins og að klippa út föndur, sumir plasta bækur, gera
við bækur eða vinna önnur störf sent oft eru ómetanleg og tíma-
frek.
Á safninu í Rock Springs í Wyoming er valinn sjálfboðaliði
ársins og starfsmaður ársins. Myndir af þeint eru hengdar upp í
bókasafninu. Þykir þetta vera mjög hvetjandi fyrir starfsmenn.
Góð vinnuaðstaða í bókasafninu í Rock Springs í Wyoming
BÓKASAFNIÐ 21. ÁRG. 1997 49