Bókasafnið - 01.04.1997, Síða 70
fimmtándu aldar, eru tekin saman í bókina Philokolia og lýsa af
einlægni samfélagi Guðs og manns í klaustrum miðalda.
Philokaliuna fékk ég í bókaverslun Kaþólsku kirkjunnar við
Hávallagötu, sem aðeins er opin eina klukkustund í viku - milli
5 og 6 á miðvikudögum. Þeim sem ekki hafa fundið það sem
þeir eru að leita að í almennu bókabúðunum, er óhætt að benda
á þessa verslun, svo og verslunina Jötu í húsi Fíladelfíu við
Hátún.
Sigrún Antonsdóttir,
10 ára nemi í Vesturbœjarskóla
I fyrsta sinn á ævinni fékk ég enga
bók í jólagjöf. I fyrra fékk ég fjórar.
Eg las samt margar. Ég las Ungfrú
Nóra, Jólaöskjuna og áreiðanlega
1000 Andrésblöð. Ég las Sól yfir
Dimmubjörgum og Beinagrind með
gúmmíhanska og fyrstu bókina um
Svan. Mér finnst ævintýrabækur
alltaf skemmtilegar, sérstaklega bæk-
urnar eftir Enid Blyton og svo
Narníu-bækurnar. Allt sem ég las var
skemmtilegt en Ungfrú Nóra var best.
Ævintýrið í henni var svo skemmtilegt. Það voru kettir og ... hún
var bara best.
Ólöf Pétursdóttir,
starfsmaður í mötuneyti Landsbókasafns
Ég bað um að bókagjöfum yrði stillt
í hóf í þetta sinn, en eina bók fékk ég,
Alþingismannatal 1845-1995. Um
jólin las ég Híbýli vindanna og
Lífsins tré eftir Böðvar Guðmunds-
son. Að vísu var ég byrjuð á fyrri
bókinni fyrir jól. Þá las ég að mestu
Húsafellsætt, gluggaði töluvert í Al-
þingismannatalið og Islenskar tal-
símakonur. Þá bók keypti ég, var ein
þeirra á tímabili. Nú er ég að Ijúka við
bók Agnars Þórðarsonar I vagni
tímans. Hún er fróðleg og skemmtileg aflestrar. Ég hef ferðast til
flestra staða sem nefndir eru í bókinni.
Bókin Lífsins tré er mjög áhugaverð. Þar er góð lýsing á
erftðleikum vesturfaranna, bæði hörmungum þeirra á leiðinni
yfir hafið og einnig við að koma sér fyrir og yftr sig þaki er
vestur var komið. I bókinni eru sendibréf sem skrifuð voru að
vestan til gamla landsins eins og þeir orðuðu það. Þau bréf lýsa
vel samtímanum. Fyrri bókin var líka mjög góð.
Síðastliðið sumar ferðaðist ég um slóðir íslendinga í Vestur-
heimi. Eftir þessa ferð er ég nokkuð kunnug staðháttum
landnemanna. Ég hitti og talaði við marga sem enn tala íslensk-
una mjög vel. Flest var þetta fólk um og yfir sjötugt. í Norður-
Dakóta vestur af Cavalier skoðaði ég gamalt hús á landnema-
jörð. Það hefur verið gert að safni til minningar um íslensku
landnemana. Uppi á lofti í húsi þessu sá ég gamalt fornfálegt
koffort, sennilega frá íslandi komið. Ég opnaði koffortið og það
var fullt af gömlum bókum.
Vegna þessarar vesturfarar minnar og viðtölum við gamla
fólkið hafði ég meiri skilning á efni bóka Böðvars og mesta
ánægju af lestri þeirra um jólin.
Valva Árnadóttir,
Bókabúð Máls og menningar, Laugavegi
Ég fékk fjórar bækur í jólagjöf: Þætti
af einkennilegum mönnum eftir Einar
Kárason, Blóðakur eftir Ólaf Gunn-
arsson, Hestahvíslarann eftir
Nicholas Evans og Merkisdaga á
mannsævinni eftir Árna Björnsson.
Ég er búin að lesa Þætti Einars og
Hestakvíslarann, Merkisdagana hef
ég gluggað í en Blóðakur lánaði ég
öðrum. Ég keypti mér líka nokkrar
bækur fyrir jólin, bæði erlendar og
íslenskar, m.a. Islandsförina (Guð-
mundur Andri Thorsson), Úr plógfari Gefjunar (Bjöm Th.
Björnsson), Brotahöfuð (Þórarinn Eldjárn) og Engar smá sögur
(Andri Snær). Bók Árna þótti mér mjög skemmtileg. Það er bók
sem er ekki lesin beint heldur gluggað í. Hestahvíslarinn er
ágætis afþreying en bók Einars í lélegri kantinum. Ég hef enn
ekki haft tíma til að lesa annað. Ég fékk nokkrar lánaðar sem ég
hlakka til að lesa.
Bryndís Loftsdóttir,
Bókaverslunin Eymundsson, Austurstrœti
Ég fékk fjórar bækur í jólagjöf og
fannst mér Blóðakur best þeirra. Hún
er skemmtilega súperrealistísk. Hún
gerist á stöðum sem em til og lýsir
raunverulegum húsum við raunveru-
legar götur. Ég hef gengið um borg-
ina og skoðað nokkur þeirra húsa sem
koma við sögu. Starfsfólk Eymunds-
son- og Pennabúðanna var í leshring
fyrir jólin. Við völdum hvert okkar
bækur til að lesa en reyndum að
skipta nokkuð á milli svo sem flestar
yrðu lesnar. Við lásum líka barnabækur. Svo hittumst við á
kvöldin og spjölluðum um bækurnar. Þetta var mjög skemmti-
legt og gott fyrir okkur að þekkja bækurnar til að geta ráðlagt
fólki við kaup á bókum í jólagjafir.
70 BÓKASAFNIÐ 21. ÁRG. 1997