Bókasafnið


Bókasafnið - 01.04.1997, Page 34

Bókasafnið - 01.04.1997, Page 34
söfnum sem bjóða allítarlegar heimildaleitir á ýmsum fræða- sviðum og fullnægja upplýsingaþörf margra. Hefðbundnar tölvu- leitir í sérhæfðum gagnasöfnum upplýs- ingamiðstöðva eins og Dialog, DataStar, ESA/ IRS, Questel o.fl. standa þó enn fyllilega fyrir sínu og eru mikilvægar þeim sem stunda rannsókn- ir, vöru- eða markaðs- þróun svo dæmi séu nefnd. Leitarheimtur í þeim eru mun mark- vissari en t.d. í Un- Cover eða ýmsum öðrum ókeypis gagnasöfnum á Vefn- um. Þeir sem nota þessa þjónustu safns- ins eru einkum sér- fræðingar rannsóknastofnana háskólans og fólk úr atvinnulífinu. Notendafrœðsla Sem bókasafni Háskóla Islands ber safninu að styðja við kennslu og rannsóknir í háskólanum. Hluti af því er að kynna safnið og hin ýmsu gagnasöfn, svo og að kenna nýjustu tækni við öflun upplýsinga. Þetta er gert með ýmsu móti. Við upphaf haustmisseris er leitast við að fá sem flesta nýnema Háskóla Is- lands í heimsókn í safnið. Auk fyrirlestra um aðstöðu og tilhög- un í safninu er kennt að leita í Gegni og Greini og safnið skoð- að eftir því sem tími og aðstæður leyfa. Hægt er að taka á móti allt að 90 manns í sæti í fyrirlestrasal, sem er vel tækjum búinn. Þar er m.a. fullkominn skjávarpi fyrir tölvur og myndbönd sem gerir salinn vel fallin til kennslu á gagnasöfn, jafnt fyrir stóra hópa sem smáa. Auk frumkynninga er boðið upp á framhaldsfræðslu þar sem helstu upplýsingaleiðir eru kynntar, gagnasöfn á geisladiskum, Internetið, tölvupóstur o.fl. sem óskað er eftir. í framhalds- fræðslunni eru hópar yfirleitt talsvert minni en í frumkynningum og lögð er áhersla á verklegar æfingar í tölvuveri safnsins, en þar eru tíu tölvur. Aukin eftirspurn er eftir þessum kynningum bæði fyrir nemendur og einnig fyrir kennara háskólans. Einnig færist í vöxt að kennarar annarra skóla óski eftir að koma með nemendur sína í safnið. Þá er ýmist beðið um almenna kynningu eða framhaldskynningu þar sem kennt er á Gegni og önnur gagnasöfn. Leiðbeiningarit, heimasíða og kynningarefni af ýmsum toga er ómissandi þáttur í notendafræðslu og almenningstengslum. Leitast er við að útbúa einfalda bæklinga um sem flesta þætti safnþjónustunnar, einstök gagnasöfn og aðstöðu í því skyni að gera gesti sem mest sjálfbjarga og þar eiga allar deildir safnsins hlut að máli. Almannatengsl Þeir þættir almannatengsla sem upplýsingadeildin sinnir eru einkum þjónusta við notendur eða samskipti við þá sem í safnið koma. Þar er m.a. átt við merkingar og texta á skiltum og til- kynningatöflum, gerð dreifibréfa, umsjón með opnum svæðum og geymsluskápum, kannanir á viðhorfi gesta og nýtingu á aðstöðu, móttöku og leiðsögn hópa og gerð heimasíðu. Unnið er að flestum þessum þáttum í náinni samvinnu við aðrar deildir, einkum útlánadeild og kerfisþjónustu. Til þess að kynnast viðhorfum gesta til safnsins og þjónust- unnar hefur verið kallað eftir skriflegum ábendingum og athuga- semdum. Fyrsta árið bar mikið á sömu athuga- semdunum, en gestir átt- uðu sig ekki á því að safnið var ekki fullbúið þegar það var formlega opnað og gerðu strax miklar kröfur til tækni og þjónustu. Ur mörgu hef- ur verið bætt og gestir virðast nú nokkuð sáttir við aðbúnaðinn. Munn- legar og skriflegar ábendingar sem berast eru skoðaðar og beint til þeirra sem málið varðar hverju sinni. A fyrsta starfsári safnsins kom mikill fjöldi gesta annarra en stúdenta til þess að skoða safnið og fá leiðsögn um það. Um var m.a. að ræða bæði innlenda og erlenda hópa, samtals um 1200 gesti í 60 hópum, fólk á öllum aldri og úr öllum stéttum þjóðfélagsins. Enn er talsvert um að fyritæki, félagasamtök eða klúbbar fái afnot af sal og veitingastofu fyrir félagsfundi og óski jafnframt eftir leiðsögn um safnið. Þjónustumœlingar Þjónustumælingar og notendakannanir eru eins og fyrr segir á verkefnaskrá upplýsingadeildar. Mannafli deildarinnar gefur þó mjög takmarkað svigrúm til skipulags og framkvæmda slíkra viðfangsefna svo og úrvinnslu gagna. Vissir þættir, svo sem nýt- ing á lesborðum og notendatölvum á opnu rými á 3. og 4. hæð og fyrirspurnir við upplýsingaborð á 2. hæð, hafa þó verið kannaðir nokkuð reglulega frá upphafi í samvinnu við útlánadeild. Vorið 1996 voru ýmsir ólíkir þættir í starfsemi safnsins kann- aðir, einkum þeir sem snertu þjónustu við notendur. Ráðist var í þetta verkefni vegna þátttöku safnsins í veggspjaldasýningu um þjónustumælingar í tengslum við ráðstefnu BVFÍ í maí 1996 og þar voru niðurstöðurnar kynntar. Flestar deildir safnsins tóku þátt í verkefninu og niðurstöður voru fróðlegar. Á súluritinu hér að ofan má sjá meðaltalsnýtingu á ýmissi aðstöðu í safninu vikuna 25.-30. mars 1996. Tón- og mynddeild Tón- og mynddeild safnsins er á vegum upplýsingdeildar og er Anna Jensdóttir deildarstjóri hennar. Deildin er á 4. hæð en þar eru jafnframt útlánsbækur og Kvennasögusafnið, auk lestr- Starfsfólk upplýsingadeildar (Ljósm. Helgi Bragason) 34 BÓKASAFNIÐ 21. ÁRG. 1997

x

Bókasafnið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.