Bókasafnið


Bókasafnið - 01.04.1997, Blaðsíða 53

Bókasafnið - 01.04.1997, Blaðsíða 53
Af skipulegum uppákomum á söfnunum er algengast að vera með sýningar og fá höfunda til að lesa upp úr nýútkomnum verkum sínum. Sögustundir fyrir börn eru algengar og einnig var nefnt brúðuleikhús fyrir börn. Á öllum söfnunum nema einu voru húsnæðisþrengsli nefnd sem ástæða fyrir því að erfitt væri að standa fyrir uppákomum af ýmsu tagi. Kynningar á starfsemi safnanna eru flestar ætlaðar notendum. Kynningar sem ætlaðar eru sveitarstjórnarmönnum og stjórnmálamönnum bæjarfélag- anna eiga sér ekki stað reglulega. Forstöðumannahópurinn sendi þó frambjóðendum stjórnmálaflokkanna bréf fyrir bæjar- stjómarkostningar sem fram fóru 1994. Frambjóðendunum var boðið að koma í heimsókn á almenningssafnið í sinu umdæmi. Á a.m.k. einu safninu reyndist þetta skila góðum árangri og þekktust frambjóðendurnir boðið og komu á safnið og var þeim kynnt starfsemi þess. Allir forstöðumennimir héldu því fram að fé til að standa straum af markaðssetningu og kynningarmálum væri mjög tak- markað. Einn forstöðumaðurinn lýsti því þannig að kynningar- starfið væri tilviljunum háð, gert af vanefnum og án stefnumörk- unar. Það reyndist erfitt að meta þann tíma sem eytt er í markaðs- og kynningarmál á söfnunum. Einn nefndi sem ágiskun eina klukkustund á viku, annar nefndi að kynningarstarfið væri bund- ið árstíma, aðallega unnið á vorin, haustin og í kringum jólin. Engir af starfsmönnum safnanna hafa menntun eða þjálfun á sviði markaðssetningar. Margir af starfsmönnum safnanna hafa farið á námskeið, þar sem fjallað er um mannleg samskipti og sótt fyrirlestra um almannatengsl. Einn forstöðumaðurinn hafði sótt námskeið í auglýsingagerð. Allir voru forstöðumennirnir jákvæðir þegar þeir voru spurðir um þjálfun starfsfólks á þessu sviði. Þrír nefndu að aðeins þeir starfsmenn sem ættu að sjá um markaðs- og kynningarmál ættu að fá fræðslu og þjálfun á þessu sviði. Fræðsla eða þjálfun um markaðs- og kynningarmál var ekki álitin nauðsynleg fyrir alla starfsmenn, en það var talið æskilegt að allir starfsmenn yrðu gerðir meðvitaðir um mikilvægi markaðs- og kynningarmála og um mikilvægi framkomu starfsfólk gagnvart notendum. Allir viðmælendur nefndu þátt almannatengslanna sem mikilvægasta þáttinn í markaðssetningunni. Þrír viðmælendur nefndu að almenningbókasöfn gerðu lítið af því að markaðssetja þjónustu sína og að fáar aðferðir væru notaðar til þess. Einn hélt því fram að markaðssetningin væri ekki nógu framsækin. Annar hélt því fram að kynningarefni safnanna væri illa hannað og ófagmannlega gert. Enn annar hélt því fram að greinar þær sem birtust í blöðum og væri ætlað að kynna starfsemi safnanna væru ekki líklegar til að auka áhuga á þeim, þær væru of langar og lítið áhugavekjandi. Flestir viðmælendur nefndu að markaðssetning safnanna ætti að hluta til að vera sameiginleg, með uppákomum sem væru skipulagðar í sameiningu auk framtaks einstakra safna. Einstök söfn þyrftu að hafa frumkvæði að staðbundinni markaðssetn- ingu. Atburðir eins og bókasafnavika og kynning í dagblöðum eru álitnar vera áhrifamestu aðferðirnar til að koma starfsemi safnanna á framfæri. Einn viðmælandi nefndi mikilvægi við- horfs forstöðumannsins til safnsins. Hvort forstöðumaðurinn liti á safnið sem geymslustað og safn, eða nútíma þjónustustofnun væri grundvallaratriði. Það er yfirmaður stofnunarinnar sem hefur mest áhrif á þau viðhorf og vinnuaðferðir sem viðgangast a safninu. Ef forstöðumaðurinn hefur ekki áhuga eða skilning á mikilvægi markaðssetningar verður hún í skötulíki. Einn nefndi að ímynd bókavarðastéttarinnar væri mikilvæg og að henni þyrfti að breyta. Það yrði að koma þeim skilaboðum til al- mennings að bókasafnsfræðingar væru fagfólk, sem innti af hendi mikilvæga þjónustu við almenning. Allir viðmælendur töldu að auka ætti markaðssetningu á söfnum þeirra. Fjórir viðmælendur töldu að almenningsbóka- söfn á Islandi almennt legðu of litla áherslu á markaðssetningu. Helstu ástœður sem nefndar voru fyrir lítilli áherslu á markaðssetningu: • Söfnin ekki í stakk búin til að inna af hendi meiri þjónustu en þau gera í dag • Aukin kynning/markaðssetning mundi auka vinnuálag á starfsfólk • Peningaskortur • Tímaskortur • Húsnæðisþrengsli • Lélegur bókakostur • Bókaverði skortir hugrekki til að kom starfsemi safnanna á framfæri opinberlega. Bent var á að víða erlendis þar sem markaðs- og kynningarstarf hefði tekist vel tengdist það persónu þess starfsmanns sem hefði haft veg og vanda af markaðsstarfinu. - Hverjir nola söfnin mest - minnst. Enginn af viðmælendum vissi með 100% áreiðanleika, hverjir notuðu safnið mest og hverjir minnst, en allir höfðu skoðanir á því. Það er staðreynd að meirihluti af fullorðnum lánþegum sem hafa bókasafnsskírteini eru konur. Tölurnar 60-70% kvenlán- þegar á móti 30-40 % karla voru nefndar. En á það var bent að þessar tölur þýddu ekki endilega það, að karlarnir notuðu bækur safnsins miklu minna. Skýringinn gæti verið sú að eiginkonur sæju um að fara á bókasafnið og fá bækur lánaðar fyrir menn sína á sama hátt og algengara er að þær sjái um innkaupin til heimilisins. Þeir hópar sem nota söfnin mest eru að áliti við- mælenda, grunnskólabörn, konur eldri en 20 ára og karlar eldri en 50 ára. Einn nefndi almenning á aldrinum 13-66 ára, þar af konur í miklum meirihluta. Einn nefndi fólk sem hefði menntun, annar millistéttar konur, sem þá hópa sem nota söfnin mest. Þeir sem nota söfnin minnst eru að mati viðmælenda unglingar og fullorðnir karlmenn. Einn nefndi þá sem hafa mestu menntunina og eru best settir fjárhagslega. Markhópar sem söfnin leitast við að ná til eru börn, aldraðir, fatlaðir, skólar og dagheimili. Tvö söfn eru með sérþjónustu fyrir áhafnir skipa og stofnanir eins og fangelsi. Markaðsrannsóknir eru ekki stundaðar á söfnunum. - Tœkifæri, ógnanir ogframtíð safnanna Allir viðmælendur nefndu bága fjárhagsstöðu safnanna og lítinn áhuga og skilning stjórnmálamanna og þeirra sem úthluta fjármagninu á starfsemi safnanna, sem helstu ógnun þeirra. Tveir nefndu sem leið dl að bæta úr þessu tvíhliða markaðs- og kynningarstarf, annars vegar ætlað stjórnmálamönnum og fjár- málayfirvöldum og hins vegar markaðsstarf ætlað almenningi. Bókasöfnin keppa við ýmsa um tíma og athygli almennings. Samkeppnin er við fjölmiðla, myndbandaleigur, aðrar menning- arstofnanir og íþróttafélög svo eitthvað sé nefnt. Aðrar menn- ingarstofnanir eru helstu keppinautar bókasafnana um fjármagn, en íþróttafélögin eru það einnig í ýmsurn bæjar- og sveitar- félögum. Enginn viðmælenda áleit að samkeppni væri veruleg ógnun við safnið þeirra. Einn taldi að söfnin hefðu gott af hæfilegri samkeppni. Allir viðmælendur litu björtum augum til framtíðarinnar hvað varðar stöðu almenningsbókasafna. Ný tækifæri sem þeir eygðu sínu safni til handa fóru eftir því þjón- ustusdgi sem þau voru á þegar viðtalið fór fram. Flestir litu á þátt upplýsingaþjónustunnar sem helsta tækifæri safnanna. BÓKASAFNIÐ 21. ÁRG. 1997 53
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.