Bókasafnið


Bókasafnið - 01.04.1997, Page 74

Bókasafnið - 01.04.1997, Page 74
landi. Hann fékk líka prentað eftir sig rit um efnið, t.d. Stutt rithöfundatal á íslandi 1400-1882. (Rvk. 1884.) Af öðrum íslendingum finnst mér rétt að nefna Halldór Hermannsson (1878-1958). Hann var bókavörður við Cornell-háskóla í New York og gaf út bókaskrár með vísindalegri nákvæmni og tímarit (ritröð?) sem nefndist Islandica. Það var fyrsta tímaritið um íslenska bókfræði og kemur út ennþá, slitrótt þó hin síðari ár. (Sjá fylgiskrá I aftan við Auðlegð íslendinga.) Að sjálfsögðu ber að telja Böðvar Kvaran sjálfan f flokki hinna fróðustu um bókfræði her á landi enda hefur hann með þessari bók sannað það ótvírætt. Þá erum við komin að þeirri spurningu: hvaða erindi á bókfræði við bókaverði á tölvuöld? Mér er ekki grunlaust að tæknileg vandamál og viðfangsefni hafi ýtt fræðilegum og menningarlegum viðfangsefnum nokkuð til hliðar hin síðari ár. Það er skiljanlegt meðan tölvubyltingin er að ganga um garð en nú eru flestir bókaverðir búnir að læra á tölvur og er þá rétt að þeir snúi áhuga sínum að menningarheimi bókarinnar en þar er Auðlegð íslendinga gullnáma og raunar eina ritið á markaðnum sem ég veit til að geri því einhver skil. Böðvar Kvaran hefur notfært sér rannsóknir og rit eldri höfunda eins og varðandi prentlistarsöguna o.fl. en sumt hefur hann rannsakað sjálfur fyrstur manna, t.d. margt það sem hann segir um blöð og tímarit og útgáfu þeirra fyrr og síðar. Söfnun hans hefur einmitt beinst fyrst og fremst að blöðum og tímaritum og er því mikils virði að hann skuli fjalla um það efni tiltölulega rækilega. Yfirleitt finnst mér að vel og skynsamlega sé metið hvað taka eigi með af því sem aðrir höfðu skrifað og er það að sjálfsögðu stórmikill kostur á yfirlitsriti. Páll Skúlason Á BÓKASAFNINU Stefán Jónsson: Að breyta fjalli (Svart á hvftu, 1987) Það var ekki fyrr en um miðjan þorra, að ég komst upp á lag með að nota bókasafnið. í byrjun sótti ég þangað öll heftin, sem ég átti enn ólesin af hinum Tarsanbókunum, hvert á fætur öðru. Og þarna var hann sem sagt fyrir innan borðið, pínulítill, ævaforn og skorpinn, skeggjaður og mjóróma karl, sem ekki fékkst orða bundist um það er lauk rarsanstúderingum mínum og lýsti fyrir mér vegferðinni, sem mér væri búin, ef ég héldi áfram að lesa eintóma djöfulsins vitleysu... Þegar ég skilaði svo þessu síðasta hefti í nefndum bókaflokki, þá sá ég ekki öldunginn. Þarna var þá kominn annar agnarlítill karl og alveg eins hrukkóttur. Siggi í Stapa sem var með mér, hvíslaði því að mér að þessi héti líka Benedikt Jónsson og væri sonarsonur gamla Bensa og kallaður Bubbi speni til aðgreiningar. Ég netndi við hann bókina, sem ég vildi fá í staðinn fyrir Tarsan og gimsteina Ópalaborgar og þá ætlaði hann að rifna ai hlátri og kallaði svo inn í bókavarðarherbergið: „Nú er hann að skila Tarsan afi og biður um Manninn með stálhnefana í staðinn,1' og hinn karlinn hoppaði eins og þröstur út úr herberginu og skrækti: „Við fáum góðmenni á Tjörnesi til að drepa helvítis kvikindið og kasta því í poka með grjóti fram af andskotans Höbbðanum. Það er það minnsta sem við getum gert fyrir mömmu hans." (Að breyta fjalli, bls. 184-185) 74 BÓKASAFNIÐ 21. ÁRG. 1997

x

Bókasafnið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.