Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1984, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1984, Blaðsíða 22
DV. MÁNUDAGUR12. MARS1984. 22 Verðlaunagripir og verðlaunapeningar i miklu úrvali fímebajl FRAMLEIÐI OG UTVEGA FÉLAGSMERKI PÓSTSENDUM meoa Magnús E. Baldvinsson Laugavegi 8 — Sími 22804 Vi VÖRULYFTARI Til sölu 2 1/2 tn. Hyster dísil vörulyft- ari, sjálfskiptur m. vökvastýri, í góðu ástandi. GUÐBJÖRN GUÐJÓNSSON H/F, Korngarði 5, Sundahöfn, sími 91-85677. Vélaverkstæði Sigurjóns Jónssonar hf. « Bygggörðum 1 — 170 Seltjarnarnesi Sími 91-25835 - Telex 2171 Nýir og notaðir rafmagns- og dísillyftarar. Aukabúnaður, svo sem; veltigafflar, hliðarfærsla, pallettuvagnar, ballaklær. Hleðslutæki 6-12-24-48-72 volt. Geymatengi fyrir rafmagnslyftara, margar gerðir. Slönguhjól. Útblásturshreinsarar fyrir disilvélar. sundfatnaður ÚTSÖLUSTAÐIR: Hólasport — Reykjavík Músík og sport — Hafnarfirði Sporthúsið — Akureyri Sportvík — Keflavík Sportvöruvers/un Póstsendum Ingólfs Óskarssonar Laugavegi 69 — sími 11783 Klapparstíg 44 — sími 10330 í Iþróttir 1 íþróttir fþróttir Njarðvíkingar lagðir að velli ÍR-ingar sigruðu Njarðvíkinga í úr- valsdeildinni í körfuknattleik í Selja- skóla í gærkvöldi með 88 stigum gegn 81. Staðan í hálfieik var 40—45 Njarð- vik í hag. Stigahæstir ÍR-inga voru Pétur Guðmundsson með 27 stig og Gylfi Þorkelsson með 21 stig. Hjá Njarðvík skoruðu mest Júlíus Valgeirsson og Gunnar Þorvarðarson með 14 hvor og Hreiöar Hreiðarsson með 12 stig. Njarövíkingar eru búnir að vera með yfirburðalið í vetur og hefur Valur Ingimundarson þar veriö máttarstólpi liðsins. Ef um hið heföbundna fyrir- komulag úrvalsdeildarinnar væri að ræða stæðu Njarðvíkingar nú uppi sem öruggir sigurvegarar. Nú verða möguleikar þeirra á Islandsmeistara- titlinum hins vegar að teljast verulega skertir þar sem Vals nýtur ekki lengur viö, og sýnir það hversu ranga mynd endanlegu úrslitin geta gefið af raunverulegri getu liðanna. -ÞS. Bragi Reynisson sést hér skora fyrir IR gegn Njarðvik ígærkvöldi. Bragi stóð sig vel í leiknum og er upprennandi körf uknattleiksmaður hjá félaginu. Valur Ingimundarson varð að láta sér nægja að fylgjast með félögum sinum af varamannabekk liðsins í leiknum gegn ÍR í gærkvöldi. Valur brotnaði fyrir skömmu og veröur ekki með Njarðvík í úrslitakeppni úrvalsdeildar. DV-mynd Óskar Örn Jónsson. Mótmæli fyrir- huguð í Waterschei — en f resta varð leiknum við CS Brugge. Standard vann Anderlecht Frá Kristjáni Bernburg, fréttamanni DV í Belgiu. Aðalieikurinn i 1. deildinni i Belgiu í gær var viðureign Anderlecht og Standard Liege í Briissel. Ahorfendur voru um 30 þúsund og mikil læti voru meðal þeirra fyrir leikinn, hrópað á leikmenn Standard vegna mútumálsins og voru lætin svo mikil að forráðamenn Anderiecht urðu að biðja áhorfendur að hafa sig hæga, svo leikurinn gæti farið fram. Það var gert gegnum hátalara og urðu áhorfendur við þvi. Anderlecht hafði verulega yfir- buröi framan af. Czermiatinski skor- aði strax á 7. mín. eftir snilldarsend- ingu Kenneth Brylle og fleiri færi fékk liöið. En Vandermissen tókst aö jafna fyrir Standard og eftir það náði Standard undirtökunum. Sigraöi 3—1 og þeir Plesser og Wintacq skoruöu hintvömörkin. Roland Janssen var settur úr liði Waterschei fyrir leikinn viö CS Brugge og sagöi þjálfari liösins aö þaö væri vegna þess aö leikmaðurinn væri yfirspenntur á taugum. Stuöningsmenn Waterschei voru meö fyrirætlanir um aö koma ekki inn á völlinn fyrr en hann væri hafinn og áttu það aö vera mótmæli vegna mútumálsins. Til þess kom þó ekki. Snjórinn sá um þaö, þaö svo aö fresta varðleiknum. Leikur Courtrai og Antwerpen var mjög lélegur. Ekkert mark skorað. Þulur belgíska útvarpsins hældi tveimur leikmönnum Antwerpen, Van Der Elst og Pétri Péturss. Af öörum úrslitum má nefna aö Gent sigraði Beveren 1—0 og FC Liege vann Lokeren 4—2. Beveren er efst meö 38 stig. Searing og Anderlecht hafa 33 stig, FC Brugge 32 og Stand- ard 31 stig. Oll liðin eftir 25 leiki. -KB/hsím. „Vissi strax væri brotimT I I „Eg var að hlaupa alveg á- I reynslulaust eftir gólfinu, þegar ■ ég fann að eitthvað gaf sig í ökkl- I anum. Ég vissi strax að um brot ■ væri að ræða þótt ég vonaði í I lengstu lög að svo væri ekki,” _ 1 sagði Valur Ingimundarson, hinn | snjalli körfuknattleiksmaður í * UMFN-liðinu, þegar við spurðum | hann hvernig það atvikaðist er hann hlaut slæm meiðsli í leik | UMFN og Hauka á dögunum. ■ Valur sat og horfði á leik IBK og | Vals, með gifs á vinstri fæti, þeg- | ar við náðum af honum tali. „Við _ myndatöku á sjúkrahúsinu kom í | ljós að ótti minn hafði við rök að ■ styðjast. Eg verð í gifsi næstu þrjár vikurnar og má láta mér | nægja að horfa á félaga mina í ■ UMFN heyja baráttuna í úrvals- I deildinni. Aftur á móti geri ég | mér vonir um að geta leikið meö I landsiiðinu verði ég til þess I valinn.” Missir UMFN er mikill og ■ meiðsli Vals setja stórt strik í | reikninginn hjá liðinu enda er _ hann þeirra besti skorari og | stigahæstur i úrvalsdeildinni. ■ Ekki vildi Vaiur neinu spá um úr- I slitin i úrvalsdeildinni en óskaði I félögum sinum alls hins besta í • baráttunni um Islandsmeistara- I titilinn. -emm. " c

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.