Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1984, Qupperneq 23
\ IV?
kr r.c. , t * « r cji r *» * r\T :T.f ö t j>
DV. MANUDAGUR12. MARS1984.
23
íþróttir
íþróttir
íþróttir
Torfi Magnússon átti mjög góðan leik
með Val gegn Njarðvík og skoraði 38
stig fyrir lið sitt. Valsmenn töpuðu hins
vegar leiknum 91—101.
„VIÐ KVEÐJUM MEÐ REISN”
— segja Kef Ivíkingar sem unnu Val í sínum síðasta leik f úrvalsdeildinni að sinni
Urvalsdeildin. ÍBK-.Valur, 101:91
(57:44)
„Við kveðjum úrvalsdeildina með
reisn,” sagði Sigurður Valgeirsson,
formælandi körfuknattleiksdeildar
IBK, eftir leikinn við Valsmenn syðra á
föstudagskvöldið, en þar gekk botnlið-
ið með sigur af hólmi, 101:91, eftir að
staðan í leikhléi hafði verið 57:44
heimamönnum í vil. Keflvíkingar voru
þegar fallnir í fyrstu deild fyrir þennan
leik. Sigurinn kom þeim því ekki að
neinu gagni nema til að sýna hvað liðið
gat á góðum degi og mörgum varð
spurn. Hvar voru þessir menn í haust
og vetur? Hvernig stendur á því að lið
sem hefur góðum leikmönnum á að
skipa,hæfum þjálfara, ágætum aðstæð-
um stærstum áhorfendahópi, sem
hefur stutt það með ráðum og dáð,
skuli falla?
Svarið er ekki einhlítt en vafalítið á
reynsluleysiö einna mestan þáttinn í
hrakförunum. IBK þaut á skömmum
tíma úr n. deildinni upp í næstefsta
sæti úrvalddeildarinnar í fyrra. 1 haust
varö svo sú breyting að Brad Miley og
Axel Nikulásson, sem voru tveir mátt-
arstólpar liðsins hættu að leika meö
IBK. Erlendum leikmönnum var
bannað að spila með íslenskum liðum
og Axel hélt til USA. Þeirra skarð
tókst ekki að fylla og yngri leikmenn-
irnir blómstruðu ekki fyrr en undir
lokin — einum of seint. „Við höfum
gott af því að vera eitt ár í 1. deild-
inni,” sagði Sigurður, svo að auðheyrt
var að IBK mun ekki láta deigan síga
næsta vetur.
Engu var líkara en Valsmenn ætluöu
aö „sjóða Keflvíkingana niður” á
fyrstu mínútunum. Torfi Magnússon,
sem átti frábæran leik, skoraði 38 sfig,
Tómas Holton hinn lagni og haröjaxl-
inn Kristján Agústsson, fóru létt með
að varpa knettinum á IBK-körfuna.
Valsmenn voru því ávallt með
nokkurra stiga forustu, þar til 5 mín.
voru til hlés að Sigurður Ingimundar-
son jafnar 37:37. Torfi og Valdimar
Guðlaugsson taka forustuna aftur fyrir
Valsmenn en þá er eins og IBK vakni
af „vetrardvalanum”. Á rúmum 4
mínútum laga þeir stööuna úr 39:42 í
57:44 í hálfleik og reyndar tveimur
stigum betur í byrjun þess seinni, en
þá léku þeir Jón Kr. Gíslason, Þor-
steinn Bjarnason og Bjöm Víkingur
Skúlason eins og þeir áttu að sér. Guð-
jón Skúlason hreifst með og skoraði
með fallegum langskotum og annar
unglingur, Olafur Gottskálksson,
sýndi, meö mjög sterkum vamarleik,
að þar er mikill efnispiltur að koma
fram í sviðsljósið. Oskar Nikulásson
blandaði sér líka í baráttuna og náöi
mörgum fráköstum og skoraöi einnig
drjúgum.
Þegar staðan var síðan orðin 79:60
fannst Valsmönnum sýnilega kominn
tími til að fara aö blaka vængjunum
aftur. Torfi Magnússon tók á sig rögg
og vatt sér snarlega mörgum sinnum í
gegnum IBK-vörnina en Kristján
Agústsson og Tómas Holton skomðu
eina og eina körfu á milli þess sem
Torfi sveiflaði knettinum ofan í körfu-
hringinn. I þessum hluta leiksins
sýndu Valsmenn sínar réttu hliðar og
þær sem þeir verða að sýna í úrslita-
keppninni — öflugan varnarleik, mik-
inn hraða og góða hittni — ef þeir ætla
sér að höndla meistaratitilinn.
Þessi fjörkippur Vals dugði þeim
samt ekki. Að vísu söxuðu þeir ört á
forskot IBK og minkuðu bilið í 91:85 en
Guðjón Skúlason og Þorsteinn Bjama-
son áttu góöan endasprett og tryggðu
IBK sigurinn með góðri skothittni, sér-
staklega Þorsteinn, sem skoraði sein-
ustu körfuna — og kannski verður sú
hinsta af hans hálfu í deildarkeppni í
körfuknattleik — því að hann hyggst
hætta iðkun þeirrar göfugu íþróttar í
vetrarlok.
Dómarar voru þeir Sigurður Valur
Halldórsson og Jón CXti Olafsson og
unnu sitt verk með miklum ágætum.
Stigin. IBK. Jón Kr. Gíslason 27,
Guðjón Skúlason 20, Þorsteinn Bjama-
son 18, Oskar Nikulásson 18, Björn
Víkingur 10, Sigurður Ingimundarson
6, Olafur Gottskálksson 2.
Stig Vals: Torfi Magnússon 38,
Tóinas Holton 18, Kristján Agústsson
16, Leifur Gústafsson 9, ValdimarGuð-
laugsson 4, Björn Zöega 4, Páll Amar-
son 2.
Maður leiksins: Torfi Magnússon,
Val.
Juventus enn efst
hefur fjögra stiga forskot á næsta lið í 1. deildinni ítðlsku
Juventus heldur enn góðri forystu
sinni í 1. deildinni i ítölsku knatt-
spyrnunni en 22. umferðin var leikin
um helgina og þá mætti Juventus liði
Sampdoria en með því leikur Trevor
Francis sem lék áður með Notthing-
ham Forrest. Leik liðanna lauk með
jafntefli 1—1 en næstu lið unnu öll
þannig að bilið minukaði agnarlitið.
Urslit í leikjum urðu þessi:
Catania-Avcilino 1-1
Fiorentina-Verona 2—0
Inter Milan-Pisa 3-0
Lazio-AC Milano 0-0
Napoli-Roma 1—2
Sampdoria-Juventus 1—1
Torino-Genova 2-1
Udinese-Ascoli 0-0
Juventus hefur hlotið 33 stig en í
öðru sæti er meistaraliöið frá í fyrra,
Roma, með 29 stig. 1 þriðja sæti er
Torino með 28 og fjórða sætið vermir
Verona, hcfur einnig hiotið 28 stig,
tveimur stigum meira en Inter Milan
sem er í sjötta sæti 1. deildar.
-SK.
2 SPORTUVERSLANIR
LAUGAVEGI49 OG INGÓLFSSTRÆTI8
TRXTraining
nr. 36-47, kr. 1.343,
ADIDAS markmannsbúningar.
Buxur nr. 5—6—7,
kr. 1.362,- Treyjur
nr.1/2-3/4
5/6—7/8,
kr. 1.126,-
KARATEGALLAR
nr. 150-160
170-180
190- 200
Verðfrákr. 1249,
Einnig belti
i mörgum litum
ADIDAS NEW YORK
nr. 36-54,
kr. 2.992,-
TRX Competition
nr. 38-45, kr. 1.343,
ADIDAS FÓTBOLTASKOR
SPORTVÖRUVERSLUNIN
Laugavegur 49, simi 23610. Ingólfsstræti 8, simi 12024
PATRICK FÖTBOLTASKÖR