Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1987, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1987, Side 3
LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 1987. 3 Án skattkorls -enginn persónuafsláttur RSK RÍKISSKATTSTJÓRI MEÐFERÐ SKATTKORTS Það er mikilvægt að lesa vel þær leiðbein- ingar sem skattkortinu fylgja og gera viðeigandi ráðstafanir. Síðan ber að afhenda launagreiðanda skattkortið til vörslu, annars verður ekki tekið til- littil persónuafsláttar í staðgreiðslu. Launagreiðandi ber ábyrgð á skattkorti meðan það er í vörslu hans. Þegar skipt er um vinnu afhendir launa- maður nýjum launagreiðanda skattkort sitt. Þeir sem ekki vinna utan heimilis varð- veita kort sín sjálfir ef maki getur ekki nýtt sér persónuafsláttinn. Athugaðuvel. Afhentu launagreiðanda þínum skattkortið í tæka tíð fyrir fyrsta launaútreikning næsta árs. Mundu að það er ávísun á persónu- afslátt þinn. Lestu bækiinginn um stað- greiðsluna - það borgar sig. NOTKUN SKA TTKORTS Launamaður skal afhenda launagreið- anda sínum skattkortið fyrir upphaf stað- greiðsluárs. Launagreiðandi reiknar síðan staðgreiðslu launamanns á grundvelli þeirra upplýsinga sem fram koma á skattkortinu. Hafi launagreiðandi ekki skattkort launamanns í vörslu sinni, reiknar hann staðgreiðslu launa- mannsins samkvæmt skatthlutfalli (35.2%) og launamaður fær engan persónuafslátt frá stað- greiðslu. Persónuafsláttur í staðgreiðslu fæst aðeins gegn framvísun skattkorts. Tekjulaus aðili getur afhent maka sínum skattkort sitt. Makinn getur þá nýtt 80% þess persónuafsláttar sem fram kemur á kortinu til viðbótarsínum. Ef launamaðurfullnýtir ekki persónuafslátt sinn á einum vinnustað, vinnur ef til vill á fleiri stöðum eða vill afhenda maka sínum ónýttan persónuafslátt, getur hann fengið aukaskatt- kort þar sem mánaðarlegum persónuafslætti erskipt. Skattkort vegna staðgreiðslu opinberra gjalda verða send landsmönnum á næstu dögum. Allir sem verða 16 ára og eldri 1988 fáskattkort. HLUTVERK SKATTKORTS Skattkort gegnir mikilvægu hlutverki í staðgreiðslu. Það er lykill að réttum afdrætti. Á skattkortinu kemurfram: • Skatthlutfall það sem draga skal af launum. • Mánaðarlegurpersónuafsláttur. • Persónulegar upplýsingar s.s. nafn, heimili, kennitala. • Nafn og kennitala maka. Telji launamaður að þær upplýsingar sem fram koma á skattkortinu séu ekki réttar, ber honum að snúa sér með skattkortið til næsta skatt- stjóra, sem metur hvort gefa beri út nýtt skattkort.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.