Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1987, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1987, Blaðsíða 38
50 LAUGARDAGUR 5. DESEMBER4987. Popp (birtu daganna Flass nefnist plata sem kom út í vikunni sem leiö. Tvírætt nafn. „Það er engin sérstök pæling bak viö þetta,“ fullyröir Einar Oddsson sem stenaur aö baki útgáfunni og kaffær- ir um leið hugsanir um ósiðlegar ;ifhjúpanir. „Nafnið merkir einfald- iega skyndilega birtu, nokkurs konar uppljómun." Platan varö enda til í hálfgerðu bríaríi. Einar ogÞorsteinn Jónsson unnu saman grunnana og kölluöu svo til menn til að ljúka verkinu. Platan var tekin upp á 100 tímum í Sýrlandi og Hljóðrita. „Við Þorsteinn 'orum töluverðan tíma að finna rétta tóninn,“ segir Einar. „Erf það tókst um síðir. Tónlistin? Ja, þetta er rokk- ið popp. Við notum mikið af hljóm- borðum til uppfyllingar og gítarinn er að sjálfsögðu settur framarlega. Eiginlega er ekki hægt að lýsa þessu >ðruvísi.“ Einar Oddsson er óþekkt stærð í islensku poppi. „Ég hef alla vega okkert komið upp á yfirborðiö áð- ur,“ segir hann sjálfur. Hann hefur verið í hinum og þessum bílskúrs- böndum, auk þess sem hann var í jassdeild FÍH. „Það eru sex lög á bessari plötu, öll eftir mig. Þetta er ;fni sem ég hef verið að semja heima að undanfórnu." Einar gefur Flassið út sjálfur. Vhættusamt? „Jú, vissulega. Þetta /ar spurning um að hrökkva eða stökkva. Mér fannst tími td kominn ið leyfa öðrum að heyra það sem ég 'ar að fást við og tók áhættuna. “ Sögurúr dýraríkinu Þegar Pax Vobis lagði upp laupana sneri hljómborðsleik- arinn Geiri Sæm. sér ekki að öðru. Þvert á móti, hann hélt áfram eins og ekkert hefði í - skorist. Árangur mikillar vinnu er núna að sjá dagsins ljós. í gær kom út fyrsta sóló- platan hans, Fíllinn. „Ég átti mikið efni þegar ég réðst í að gera þessa plötu, 15-20 lög,“ segir Geiri. „Af þeim valdi ég átta til að nota á plötuna. Það liggur gífurleg vinna að baki. Eg hef unnið í plötunni allt þetta ár og síð- ustu mánuðina hefur maður minnst lítið sofið. Þetta efni, sem ég er með hér, er popp- aðra heldur en það sem Pax Vobis var að fást við. Ég held að það sé erfitt að greina ákveðin áhrif í þessari tónlist. Ég hef leitast við að skapa minn eigin stíl.“ Stanslaus vinna í eitt ár. Er nálægðin við efnið ef til vill of mikil? „Nei, það álít ég ekki,“ svarar Ásgeir. „Auðvitað þekkir maður lögin orðið út og inn. En það sem ég hafði að leiðarljósi við gerð plötunn- ar var að vinna úr fyrstu áhrifunum sem efnið hafði á mig. Það er ákveðið þema í gangi og heildarsvipurinn er sterkur. Eitt ár er heldur ekki svo langur tími til að vinna plötu ef út í það er farið. “ Hunangstungl Geiri tók upp plötuna í félagi við ýmsa góða menn. Af þeim er gítar- leikarinn Kristján Edelstein einna mest áberandi. „Ég lét hann nokkuð leika lausum hala í stúdíóinu," segir Geiri. „Þar er á ferðinni afbrags- góður gítarleikari sem gefur plötunni sérstöðu. Stemningin, sem ríkti í upptökunum, var lifandi og menn voru alls ekki njörvaöi niður hver á sinn bás heldur létu tilfinninguna ráöa. Tónlistin á plötunni er mjög myndræn. Lögin eru litlar sögur, eins konar „soundtrack", svipað og tíðkast í bíómyndum. Þemað í text- unum myndar þannig eina heild.“ Hvar skyldi Fíllinn koma inn í þá mynd? „ Jú, Fíllinn er tilbúin persóna milli tveggja einstaklinga. Það er í raun dálítið erfitt að útlista það frek- ar. Áheyrandinn verður að ráða fram úr því sjálfur." Geiri Sæm. fylgir plötunni úr hlaði með tónleikum. Sveitin hans heitir Hunangstungl og hefur meöal ann- ars innan sinna vébanda gítarleikar- ann Kristján. Piltarnir munu spila vítt og breitt á næstu vikum. skóiirn Snarl númer tvö. Veröldiner veimdtíta heitir Snarlspólan sem nú er komin á markað. Að þessu sinni hefur Erðanúmúsík vaxiö heldur betur fiskur um hrygg. Hvorki fleiri né færri en 16 sveitir kynna þama af- urðir sínar, hver annarri ákafari. Nöfn eins og Sogblettir, Sykur- molar, S.h.draumur og fleiri láta vitaskuld kunnuglega í eyrum. Nýrri af nálinni eru bönd á borð viö Óþekkt andlit, Balli og blómálf- amir, Mosi frændi og Yesminis Pestis. Sem fyrr er öllum heimdt aö festa kaup á gripnum. Af fyrstu breiöskífu S .h.draums er þaö annars aö frétta aö áætlaö er að hún komi út um miöjanmán- uðinn. Hún hefur hlotið nafnið Goð, Eftir frækilega frammistöðu tríósins á MH tónleikunum á dög- unum er við góöu aö búast. Draumurinn gengur nú vaskleg- ar td verks en nokkru sinni - krafturinn líkt og Helmut mótor- hjólakappi keyritryllitækið í tvö hundmö.Sanniðitil. Stórsöngvarinn Johnny Triumph. Válynd veður Athyglisverðustu jólaplöturnar í ár koma frá Smekkleysu s/m. Hér eru á ferðinni svokallaðar 12 tommu plötur meö Sogblettum, Bleiku böst- unum og Sykurmolunum, ásamt stórsöngvaranum Johnny Triumph. „Það hefur verið ákveðin lenska upp á síðkastið að gefa út jólaplötur," segir Einar Örn Sykurmoli, einn for- svarsmanna Smekkleysunnar. „Þetta eru hins vegar plötur sem ekki eru bundnar við hátíðir eins og jólin. Hvað þá páskana! Þær eru gjaldgengar hvenær sem er.“ Plata Sykurmolanna inniheldur auðvitað Afmælið, svo og Mótorslys- ið margfræga sem ekki hefur komið út á plötu. Stjarna skífunnar er svo Sjón sem tekur Lúft gítar með álíka tilþrifum og á tónleikum hér heima. Alveg stórskemmtdegt. Plata Bastanna inniheldur sex lög. Þetta er frumraun þeirra á þessu sviði og spennandi að sjá hvernig til tekst. Spennan nær þó hámarki meö Popp Þorsteinn J. Vilhjálmsson plötu Sogbletta. Blettimir eru besta veðurspá sem heyrst hefur í popp- heiminum í langan tíma. Platan inniheldur 3 lög og 5 gírinn marg- frægi flýtur með á b-hliðinni. Skífan hefur verið skýrð eitthvaö á þessa leið: Foreldrar, lokið dætur ykkar inni. Hér koma Sogblettir. Stormuríaðsigi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.