Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1988, Side 26
26
l
Helgarpopp
Það er ekki tekið út með eintómri
sæld að vera poppari úti í hinum
stóra heimi. Mörg stórstjaman verð-
ur til að mynda af miklum tekjum
vegna framtakssamra náunga sem
hafa það að lifibrauði að hljóðrita
hljómleika ólöglega. Sumir ganga
meira að segja svo langt að stela með
einhverjum ráðum upptökum sem
hætt hefur verið við að nota á hljóm-
plötur. Þetta er að sjálfsögðu kolólegt
en er hinn arðvænlegasti atvinnu-
vegur. Nema auðvitað ef allt kemst
upp.
Svört plata
Prince hefur orðið illþyrmilega fyr-
ir barðinu á ólöglegum framleiðend-
um upp á síðkastið. Fyrir siðustu jól
átti að koma út með honum plata sem
almennt er kölluð Svarta albúmið.
Útgefandanum þóttu textar á plöt-
unni full blautlegir og því var hætt
við útgáfuna. Þessa plötu er hins
vegar hægt að fá keypta á götunni
víða um lönd þótt hvergi sjáist hún
í plötuverslunum. Upptökunum var
einfaldlega hnuplað dagsstund, þær
afritaðar og nú selst platan afbragðs-
vel á neðanjarðarmarkaðinum.
Prince fær ekki sent með gati í sinn
hlut.
Til skamms tíma var nær eingöngu
hægt að kaupa ólöglegu upptökurnar
á vinylplötum. Kassettur ryðja sér
hins vegar til rúms núna og sérfræð-
ingar telja geisladiska vera á næstu
grösum. Þá má fastlega búast við
ýmsu sjaldgæfu, ólöglegu á DAT
spólum þegar sú tækni breiðist út.
Geisladiskar eru reyndar þegar fam-
ir að fást í Bandaríkjunum. Þeir
koma aðallega frá Japan og ítalíu.
Þar teljast diskarnir löglegir vegna
frjálslegra höfundarréttarlaga.
Listamennirnir
Tónlistarmennirnir hafa brugðist
misjafnlega við þessari svörtu iðju.
Bruce Springsteen og liösmenn U2
lögðu samtökum bandarískra útgef-
enda til að mynda lið við málarekstur
á hendur ólöglegum framleiðanda í
Kentúcky. Sá var nappaður í júlí síð-
astliðnum og reyndist vera með um
500 hljómleikaupptökur í geymslu
hjá sér. Reyndar náðist-ekki að dæma
Þótt Svarta albúmið hans Prince seljist dável fær hann ekki túskilding í sinn hlut. Platan hefur aldrei komið opin-
'berlega út.
kauða vegna formgalla á kærunni.
Liðsmenn hljómsveitarinnar
Grateful Dead hafa brugðist ólíkt
flestum öðrum við óvelkomnum upp-
tökumönnum. Þeir láta ekki henda
þeim út ef til þeirra sést heldur er
þeim ætlaður sérstakur staður í
hljómleikasölum þar sem þeir geta
verið óáreittir við iðju sína. Talsmað-
ur hljómsveitarinnar segir ógjörning
að koma í veg fyrir ólöglegar upptök-
ur og því sé eins gott að ganga bara
í lið með andstæðingnum.
Til að gefa lesendum hugmynd um
hversu umfangsmikill hinn ólöglegi
hljómplötuiðnaður er fylgir hér með
listi sem Hot Wacks „biblía ólöglegu
framleiðendanna“ tók saman um þá
listamenn og hljómsveitir sem helst
hafa orðið fyrir barðinu á neðanjarð-
arstarfsemi bootleggaranna svo-
nefndu. Tölur í svigum segja til um
fjölda útgefinna titla.
Helgarpopp
Ásgeir Tómasson
1. The Rolling Stones.....(440)
2. TheBeatles.............(352)
3. LedZeppelin............(258)
4. BobDylan............. (226)
5. Bruce Springsteen......(211)
6. DavidBowie.............(135)
7: Frank Zappa............(123)
8. ElvisPresley...........(115)
9. PinkFloyd..............(105)
10. GratefulDead............(83)
11. JimiHendrix.............(80)
12. TheWho,.................(77)
13. Genesis.................(72)
14. DeepPurple..............(68)
15. PaulMcCartney...........(59)
16. Queen................. (53)
17. U2......,................(48)
18. NeilYoung...............(46)
19. JohnLennon..............(45)
20. TheDoors................(44)
21. The JoyDivision.........(43)
22. Marillion...............(42)
23. Kiss....................(41)
24. AC/DC...................(37)
24. ElvisCostello...........(37)
Ný Bítlavinafélagsplata
á næstu grösum
- Jónas R Jónsson og Stefán Eggertsson í gestahlutverkum
Bítlavinafélagið gerir viðreist um þessar mundir og kynnir nýju plötuna.
Hljómsveitin verður í Glæsibæ um næstu helgi.
Senn líður að því að platan „12 ís-
lensk Bítlalög" með Bítlavinafélag-
inu komi út. Útgáfudagur er áætlað-
ur 20. október.
Eins og nafn plötunnar gefur til
kynna eru á henni tólf lög. Öll eru
þau íslensk og komu út á sjöunda
áratugnum. Þau eru: Gvendur á Eyr-
inni, Glugginn, Vetrarnótt, Miðsum-
amótt, Léttur í lundu, Dimmar rósir,
Það er svo undarlegt, Ertu með,
Leyndarmál, Skuldir, Ég er frjáls og
Kling klang.
Bítlavinafélagið skipa þeir Eyjólfur
Kristjánsson, Jón Ólafsson, Stefán
Hjörleifsson, Haraldur Þorsteinsson
og Rafn Jónsson. Nokkrir blásarar
eru þeim til aöstoðar á nýju plöt-
unni. Tveir gestasöngvarar koma viö
sögu. Jónas R. Jónsson syngur
Gluggann eins og með Flowers fyrir
tveimur áratugum og Stefán Eggerts-
son, háls-, nef- og eyrnalæknir, syng-
ur Dimmar rósir. Stefán var einmitt
söngvari hljómsveitarinnar Tatara
um skeið og átti drjúgan þátt í vin-
sældum lagsins er það kom út á
hljómplötu.
Bítlavinafélagið er þegar byrjað að
kynna plötuna væntanlegu. Hljóm-
sveitin var í gærkvöldi í Neskaupstað
og leikur að öllu forfallalausu á Höfn
í Hornafirði í kvöld. Um næstu helgi
ætlar hljómsveitin meðal annars að
leika fyrir dansi í Glæsibæ!
ÁT
Hljómsveltin Strax kom nokkrum sinnum fram síðastliðlð sumar, meðal
annars ó útihátíð f Atlavik um verslunarmannahelgina.
íslenskur tónlistardagur er fram-
undan - þann 22. október - og öðru
hvorum raegin viö hann sendir
hljómsveitin Strax frá sér sína
þriðj u plötu. Hún hefur hlotið nafn-
ið Eftir pólskiptin.
Það eru sex manns sem standa á
bak við Straxnafnið um þessar
mundir, Jakob Magnússon, Ragn-
hildur Gísladóttir og Egill Ólafsson
hafa öll komið viö sögu hljómsveit-
arinnar áður. í hópinn hafa síöan
slegist bassaleikarinn Busta Jones,
Alan Murphy gítarleikari Level 42
og Preston Ross Hayraan trommu-
leikari.
Fleiri tónlistarmenn láta í sér
heyra á plötunni Eftir pólskiptin.
Þeirra á meðal eru Þórður Árna-
son, Karl Sighvatsson, Jóhann Ás-
mundsson og Ámi Scheving. Höf-
undar efnis eru -Valgeir Guðjóns-
son, Egill Ólafsson, Sigurður Bjóla,
Steinunn Þorvaldsdótör, Sjón og
Strax.
Eitt lag af Eftir pólskiptin hefur
hljómað nokkuð í útvarpi undan-
fama mánuði, lagið Havana. Strax
kom lítilsháttar frara í sumar.
Fyrst á Listahátíð í Reykjavík sæll-
ar minningar og síðan á útihátíð í
Atlavík um verslunarmannahelgl
ÁT