Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.1990, Blaðsíða 2
2
LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 1990.
Fréttir
Áfangaskýrslu skilað um málefni geðsjúkra afbrotamanna:
Ríkisstjórnin fjallar um
tillögur að réttargeðdeild
- 8-12 manna deild verði stofnuð í tengslum við sjúkrahús
Áfangaskýrslu var skilað á
firamtudag til heilbrigðisráðherra og
dómsmálaráðherra um að stofnuð
verði réttargeödeild í tengslum við
geðdeildir sjúkrahúsa. Ráðherrarnir
skipuðu nefndina. í gær var gert ráð
fyrir aö tillögumar yrðu á dagskrá
ríkisstjórnarfundar. Svo fór þó ekki
vegna anna. Ríkisstjómarfundur
hefur hins vegar verið boðaður í dag.
í áliti hennar kemur fram að kom-
ið verði á fót deild fyrir 8-12 menn.
Hlutverk hennar á að vera að vista
menn sem sæta öryggisgæslu, sinna
geðlæknisþjónustu fangelsanna og
að vista gæsluvarðhaldsfanga sem
gert er að sæta geðheilbrigðisrann-
sókn. Einnig er lagt til að fjárlaga-
heimild verði veitt til að kaupa eða
taka á leigu hús og breyta því fyrir
starfsemina. Gert er ráð fyrir að 30
milljónir króna þurfi til reksturs
deildarinnar. Auk þess er lagt til að
samningar verði teknir upp við
stjórnendur sjúkrahúsanna um að
koma þjónustunni fyrir.
Eins og fram hefur komið á undan-
förnum ámm er ekki hægt að vista
ýmsa afbrotamenn á svokölluðu
„viðeigandi hæli“ eða réttargeödeild.
Slíkt er ekki fyrir hendi hér á landi.
Gleggsta dæmið kom fram þegar
Hæstiréttur vísaði frá kröfu ákæru-
valdsins um að vista Steingrím
Njálsson í öryggisgæslu að lokinni
afplánun refsingar í fangelsi. Það
ástand hefur einnig skapast að geð-
sjúkir menn séu vistaðir í fangelsum
landsins. Oftsinnis hefur þurft aö
senda menn til útlanda þar sem aö-
staða hefur ekki verið fyrir hendi hér
á landi. Aö sögn landlæknis kostar
um 20 þúsund krónur á dag, eða 7
miUjónir á ári, að vista einn mann á
slíkri stofnun erlendis.
Finnur Ingólfsson, aðstoðarmaður
heUbrigðisráðherra, er formaður
nefndarinnar. í henni eiga einnig
sæti þeir Sigurður Jónsson, aðstoð-
armaður dómsmálaráðherra, Ólafur
Ólafsson landlæknir, Haraldur Jo-
hannessen fangelsismálastjóri og
Þorsteinn A. Jónsson.
Einn nefndarmanna, Hannes Pét-
ursson geðlæknir, sagði sig úr nefnd-
inni. Hann gaf ekki formlega skýr-
ingu á úrsögn sinni við nefndar-
menn.
-ÓTT
Jólasveinar fara nú um borg og bæ til þess að hitta börnin. Það er vissara að hafa skóinn á réttum stað i gluggan-
um. En ef maður er litill og i kerru er ekki víst að allt þetta umstang komist til skila. DV-mynd Hanna
Júlíus Hafstein borgarfúlltrúi:
Það er ekkert búið að selja þetta hús
. - séekkertathugavertviðaökannamarkaöinn
„Ég á ekki nema hluta hússins, upp
undir 20 prósent af allri byggingunni
Lágmúla 6-8. Og ég hef ekki enn
ákveöið að selja minn hluta. Ég er
bara að kanna hvernig markaðurinn
er. Það kemur Uka til greina að leigja
húsnæöiö. Ennfremur er verið að
kanna meö frekari fyrirgreiðslu til
að ljúka við bygginguna,“ sagði Júl-
íus Hafstein, kaupmaður og borgar-
fuUtrúi, sem hefur sett verslunar-
húsnæöi sitt við Lágmúla í Reykjavík
á söluskrá.
Fyrir rúmu ári, þegar bygging
hússins hófst, urðu mjög harðar deil-
ur um þetta hús, lóðaúthlutunina
undir það og afgreiðslu byggingar-
leyfis. Þá var Júlíus ásakaður um að
notfæra sér aðstöðu sína sem borgar-
fulltrúi. Þá var sagt að hann ætlaði
sér ekkert með lóðina og húsið nema
braska með það. Hann og Ólafur H.
Jónsson áttu húsið saman. Nú hefur
-Ólafur selt sinn hlut og Júlíus sett
sinn hlut á söluskrá.
í fyrra neitaði Júlíus þessum ásök-
unum. Hann sagði þá í fjölmiðlum
að hann ætlaði ekki að selja bygging-
una. „Hún er ekki til sölu,“ sagði
Júlíus í samtah við DV.
- í fyrra sagðistu ekki ætla að selja
húsið, hvaö hefur breyst?
„Það var líka alveg rétt. Það stóð
ekkert til að selja húsið í fyrra. Þaö
er nú liðið rúmt ár síðan þetta var
sagt og margt hefur breyst á þeim
tíma. Eg sé í rauninni heldur ekkert
athugavert við það þótt ég kanni verð
og sölumöguleika á húsnæðinu,"
sagði Júlíus.
- Þú varst ásakaöur í fyrra um að
hafa notfært þér aðstöðu þína sem
borgarfulltrúi. Þú ætlaðir þér aldrei
neitt annað en að braska með húsið.
Er það ekki að koma í ljós að svo var?
„Þetta var og er allt saman rangt.
í fyrsta lagi var ég ekki borgarfull-
trúi þegar ég sótti um og fékk lóðina
fyrir rúmlega fimm og hálfu ári. Þá
voru engar athugasemdir gerðar við
þá úthlutun. Þetta upphlaup í fyrra
var bara til þess að koma á mig póh-
tísku höggi. En ég vona að ég hafi
nógu breytt bak til að hrista það af
mér. Og ég vil endurtaka það sem ég
sagöi áðan. Það er ekki búið að selja
húsiö og alls óvíst að það verði gert,“
sagði Júlíus Hafstein.
-S.dór
Tveir slösuðust á Keff lavíkurf lugvelli
Tveir íslenskir piltar, 17 og 18 ára,
slösuðust þegar bifreið, sem þeir óku,
valt við Flugvallarbraut á Keflavík-
urflugvehi um hádegisbihð í gær.
Sá yngri ók bílnum, Fiat Uno, sem
valt þegar hann skah á uppsteyptu
ræsi. Við höggið kastaðist sá sem sat
í farþegasætinu út úr bifreiðinni.
Hann hlaut meiðsh á öxl og brjósti
og var fluttur á Landakotsspítala th
rannsóknar þar sem tahð var að
hann hefði hlotið innvortis meiðsli.
Ökumaðurinn kvartaði undan
eymslum í baki. Hann slasaðist einn-
ig á fæti. Bíllinn fór nánast í tvennt
við óhappið og er gjörónýtur.
-ÓTT
Steingrímur Njálsson
sækir um reynslulausn
- samkvæmt dómi á afplánun aö ljúka 11. febrúar
Steingrímur Njálsson, sem var í
nóvember dæmdur í tólf mánaða
fangelsi í Hæstarétti fyrir kynferðis-
afbrot gagnvart ungum dreng, hefur
sótt um reynslulausn úr fangelsinu
á Litla-Hrauni þar sem hann er í af-
plánun. Fullnustumatsnefnd, sem
fjallar um slíkar umsóknir, tekur
málið fyrir á mánudag.
Maöurinn var handtekinn í febrú-
armánuði og úrskurðaður í gæslu-
varðhald. Hann hlaut síðan 18 mán-
aða fangelsisdóm í Sakadómi Reykja-
víkur og var gert að sæta öryggis-
gæslu að lokinni refsingu. Steingrím-
ur áfrýjaöi dóminum til Hæstaréttar.
Þar var dómur undirréttar mildaöur
og hann dæmdur til að sæta 12 mán-
aða fangelsisvist. Kröfu ríkissak-
sóknara um öryggisgæslu var hafnað
á þeim forsendum að ákæruvaldið
hafi ekki gert grein fyrir á hvaða
hátt slíkri gæslu yrði háttað. Aðstaða
fyrir slíka gæslu er ekki fyrir hendi
hér á landi.
Eftir því sem DV kemst næst eru
litlar líkur á aö umsókn mannsins
hljóti náð fyrir augum fuhnustu-
matsnefndar enda er sakarferih
mannsins með þeim hætti. Stein-
grímur hefur nú verið dæmdur fyrir
kynferðisafbrot gagnvart 15 ungum
drengjum. Afplánunartími hans í
fangelsinu rennur út þann 11. febrú-
ar næstkomandi. Hann verður þá
frjálsmaðuráný. -ÓTT
Hæstaréttardómur í gær vegna iðgjalda af gámum:
Tryggingafélag greiði þrotabúi
Hafskips 2,1 milljón með vöxtum
Hæstiréttur hefur dæmt í tveimur
málum sem Reykvísk endurtrygging
og þrotabú Hafskips ákváðu að láta
reyna á fyrir dómstólum vegna viö-
skipta sinna og gjaldþrots Hafskips.
Málin snerust um sjáífsábyrgð vegna
skipa Hafskips annars vegar og end-
urgreiðslu tryggingafélagsins á ið-
gjöldum af gámum Hafskips hins
vegar.
Hæstaréttur dæmdi Reykvíska
endurtryggingu í gær til að greiða
þrotabúi Hafskips rúmar tvær millj-
ónir króna meö vöxtum frá árinu
1986 vegna endurgreiðslu á trygg-
ingaiögjöldum. Tryggingafélagið
áfrýjaði héraösdóminum. Hæstirétt-
ur dæmdi það til að greiða 500 þús-
und krónur í málskostnað í héraöi
og fyrir Hæstarétti. Dóminn kváðu
upp hæstaréttardómaramir Guð-
mundur Jónsson, Guðrún Erlends-
dóttir, Haraldur Henryssson og
Hrafn Bragason. Hjörtur Torfason
skilaöi sératkvæði.
í vor dæmdi Hæstiréttur hins vegar
í máli sem snerist um kröfu Hafskips
um aö sjálfsábyrgð tryggingafélags-
ins yrði 50 þúsund dollarar vegna
skipa félagsins. Krafa tryggingafé-
lagsins var að ábyrgðin næmi aðeins
25 þúsund dollurum. Niðurstaða
Hæstiréttar var að síðarnefnda upp-
hæðin skyldi standa. -ÓTT
Fjárlögin hækkuðu um
tæpar 900 milljónir
Fjárlögin voru til 2. umræöu í sam-
einuðu þingi í gær og afgreitt th hinn-
ar þriðju. I meðfórum Alþingis hafa
fjárlögin hækkað um rétt tæpar 900
mhljónir króna og geta hækkaö enn
við 3. umræðu þeirra. Hvergi var um
mjög stórar upphæðir að ræða þar
sem útgjöld voru aukin en fjöldi
þeirra skóla, menningarstofnana og
annarra aðila, sem fengu hækkuð
framlög frá því sem gert var ráð fyr-
ir í fjárlagafrumvarpinu þegar það
var lagt fram, er ótrúlega mikhl. Því
sannaðist hér gamla máltækið „safn-
ast þegar saman kemur".
„Það er nú venja að margir hðir
sem fjárveitinganefnd hefur th um-
fjöllunar í fjárlagafrumvarpinu
hækki við 2. umræöu. Hins vegar
verður svo tekin lota á því næstu
daga hvemig endanlegt útlit frum-
varpsins verður,“ sagði Ólafur Ragn-
ar Grímsson fjármálaráðherra að
lokinni 2. umræðu um fjárlagafrum-
varpið í gær.
Hann sagðist vonast til að ekki yrði
um mikla hækkun á frumvarpinu að
ræða við 3. umræðu þess í næstu
viku. Stefnt er að því aö afgreiða fjár-
lagafrumvarpið fyrir jól. Hann sagði
að það færi þó aldrei hjá því að ein-
hveijir liöir hækkuðu.
- Hvemig á aö mæta þessari út-
gjaldahækkun?
„Ég ætla nú ekki aö greina frá því
á þessu stigi. Það er verið að endur-
skoða tekjuáætlunina í ljósi þessara
hækkanaeinsogvenjaer". -S.dór