Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.1990, Blaðsíða 45
LAUGARDAGUR Í5. DESEMBER 1990.
58
Kristín kaupmaður.
Kaupmaður
Um kaupmann
Frá kaupmanni
Til Kristínar
Hún lítur ekki beinlínis út eins
og hver annar afgreiöslumaður,
nei, ekki Kristín sem er sjötíu og
fimm ára og ömmuleg í meiralagi
og selur bílavarahluti í verslun við
Brautarholt.
Hér er hún
„Það er geysilangt síöan ég byrj-
aði að selja bílavarahluti. Geysi-
langt,“ segir Kristín Ásmundsdótt-
ir, ættuð alla leið úr Mjóafirði, sem
kom til Reykjavíkur tuttugu og sex
ára og lærði hjúkrun og bókhald í
kvöldskóla og byijaði að vinna í
bílavarahlutaverslun fljótlega eftir
að börnin fimm byijuðu að koma
í heiminn.
Um hana
Kristínu er rórra en mörgum
kaupmanninum þrátt fyrir að hún
þræti ekki fyrir að annimar séu
jafnmiklar um þetta leyti árs og hjá
vitaverði um hásumar.
Frá henni
Héma Kristín, hvernig er það,
Umsjón:
Þorsteinn J.
Vilhjálmsson
getur ekki hugsast að þú sem kaup-
maður sért óánægð með hlutskipti
þitt í heiminum þegar engum dett-
ur í hug að kaupa dempara í des-
ember, ekki einu sinni í möndlu-
gjöf?
Til hennar
„Nei, nei, alls ekki,“ segir Kristín
Ásmundsdóttir, sem veit að í allri
verslun er einhvern tíma vetur og
kærir sig kollótta þótt hún sé ekki
samkeppnisfær sem stendur við
kaupmenn sem selja líkamsrækt-
artæki eða aðra lífshamingju um
þetta leyti árs, og fagna ekki fæð-
ingu frelsarans fyrr en síðustu
greiðslukortaafritunum hefur ver-
ið komið í verð.
Heimurinn og ég
ÚTBOÐ 'N
Grenivíkurvegur, Gljúfurá - Grenivík
■'Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í ofan-
greint verk. Lengd kafla 2,8 km, fylling 37.500
m3 og burðarlag 11.500 m3.
Verki skal lokið 1. október 1991.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins
á Akureyri og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og
með 18. þ.m.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00
þann 14. janúar 1991.
Vegamálastjóri
UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI: 681511 LUKKULlNA: 991000
VERTU MEÐ - ÞAÐ ER GALDURINN