Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.1990, Page 4
LAWlMMtitm 16. 'ÍÍfeSÉÍtöfcft 19*.
Fréttir dv
1 Umboðsmaður Alþingis um Póst og síma:
Eftirlitshlutverk með
keppinautum óeðlilegt
Póstur og sími neita ásökunum Verslunarráðs Islands
Umboðsmaöur Alþingis ;segir í
greinargerð sem hann hefur sent frá
sér að hann telji óeðlilegt að Póstur
og sími hafi samkvæmt lögum eftir-
litshlutverk með varningi keppi-
nauta og lögboðna verslunarstarf-
semi á því sviði. Segir hann ástæðu
til að endurskoða þetta með hliðsjón
af þeim viðhorfum sem fram koma í
lögum nr. 56/1978 um verðlag, sam-
keppnishömlur og óréttmæta við-
skiptahætti.
Þetta álit umboðsmanns Alþingis
er komiö til vegna kvörtunar sem
honum barst frá aðila sem flytur inn
símtæki sem Póstur og sími synjaði
um viðurkenningu en veitti síðan
öðrum aðila viðurkenningu á ná-
kvæmlega sams konar símtæki.
Á fimmtudaginn skýrði DV frá
bréfi sem Verslunarráð íslands sendi
samgönguráðherra og kvartaði yfir
flölmörgu varðandi þjónustu Pósts
og síma. Einnig því að söludeild Pósts
og síma væri að reyna að ná til sín
umboðum fyrir flarskiptatæki sem
aörir aðilar hafa hér á landi.
Nú hefur upplýsingafulltrúi Pósts
og síma sent frá sér svarbréf við þess-
um ásökunum Verslunarráðsins. Þar
segir meðal annars að Póstur og sími
neiti því alfarið að reynt hafi verið
að ná umboðum frá seljendum not-
endabúnaðar og að Póstur og sími
mismuni viðskiptavinum sínum eins
og haldið er fram í bréfinu og greint
var frá i DV.
Þá segir ennfremur að Póstur og
sími hafi selt Cetelco farsíma síðan
í júní 1989 og Storno farsíma síðan
haustið 1989. Þá segir að erlendir
framleiðendur farsíma hafi leitaö til
Pósts og síma um sölu á sínum tækj-
um. Segir jafnframt að Póstur og sími
hafi síðastliðið vor lækkað verulega
verðið á farsímum sem hann selur.
Bréf Verslunarráðsins var ritað í
apríl í fyrra og þar var einmitt bent
á að Póstur og sími hefði ekki selt
farsíma en væri að taka það upp. Þá
hafa starfsmenn Verslunarráðsins
haidiö því fram við DV að Póstur og
sími geti lækkaö verð á farsímum því
hann nái því upp í gjöldum þeim sem
alhr farsímanotendur verða að
greiða til stofnunarinnar. Þetta geti
aðrir söluaðilar farsíma ekki gert.
í bréfi upplýsingafulltrúans segir
að síðan Verslunarráðið sendi bréfið
til samgönguráðherra hafi ekki bor-
ist kvartanir vegna prófunardeildar-
innar. Einnig að yfirleitt gangi fljótt
og vel að afgreiða umsóknir um sí-
manúmer og línu þótt ekki sé alltaf
hægt að tryggja aö alltaf séu til lausar
línur. Þar sitji allir við sama borð,
enda viti þeir ekki hvort síðar verði
tengt við línurnar símabúnaöur eða
myndsenditæki frá Pósti og síma eða
einhverjum öörum söluaðila. -S.dór
Nú styttist til jóla og verslun að komast i hámark. Það má þvi búast við mikilli ös i verslunum í dag. Myndin var
tekin við skreyttan Laugaveginn i Reykjavík. DV-mynd GVA
Þrýstingstapið í Hafnarfjarðaræð:
Útfellmg reyndist orsökin
- pípurnar verða hreinsaðar næsta sumar
Sérfræðingar, sem unnið hafa að
rannsókn á þrýstingstapinu sem
varð á Hafnarflarðaræð síðasthðna
helgi, lögðu í gær fram álit á fundi
stjórnar Hitaveitu Reykjavíkur. Það
reyndist rétt sem menn grunaði,
magnesíumsíhkatútfelling var í æð-
inni og hindraði rennsli.
Gunnar H. Kristinsson hitaveitu-
stjóri segir að menn hafi ekki viljað
trúa að þetta gæti verið raunin og
hefur neitað í samtölum viö DV að
svo geti mögulega verið. Það kemur
svo í flós núna að útfelling stíflaði
pípur og síur.
I skýrslu Orkustofnunar frá árinu
1988 segir að vitað sé að vandamál
komi upp vegna magnesíumsílikats-
útfellinga í þeim hitavgitum sem
nota upphitað ferskvatn eins og gert
er í Nesjavahaveitu. í skýrslunni seg-
ir einnig aö koma megi í veg fyrir
slíkt til dæmis með íblöndun þéttrar
gufu sem lækkar sýrustig. Gunnar
segir að menn hafi vitað um þessa
hættu. „Auðvitað höfum viö verið að
gera þessar ráðstafanir. Útfehing-
arnar hættu í kringum 20. nóvember
þegar menn komust niður á passlegt
sýrustig. Allt sem féll út á fyrstu
fimmtíu dögunum situr nú í pípun-
um. Við eigum ekki von á meiri út-
fellingum.“
Þrátt fyrir að útfellingar eigi að
vera hættar segir Gunnar að fólk
geti búist við drullu og skít í pípum
og síum í vetur. „Það verður hreins-
að jafnóðum. En Hafnarflarðaræðin
lagast um leið og aukadælustöðin
verður sett upp. Það hefur verið
nægur þrýstingur í Reykjavík en
kvartanir þaöan eru vegna óhrein-
inda.“
Ekki er hægt að gera neinar ráð-
stafanir nú til að hreinsa pípurnar.
„Það eru hugmyndir um að gera það
næsta sumar en við getum ekki farið
að rífa pípurnar upp um miðjan vet-
ur,“ segir Gunnar H. Kristinsson.
-ns
Borgarspítalinn:
Óraunhæft að banna reykingar alveg
„Það hafa verið ákveðnar frekari
takmarkanir en veriö hafa á reyking-
um á spítalanum frá og með áramót-
um. Gestum verður alveg bannað að
reykja. Starfsfólki verður heimilt að
reykja í einu herbergi og sjúkhngar
mega reykja á tilteknum stöðum.
Þeir hafa mátt það hingað til en frá
áramótum verða enn frekari tak-
markanir á reykingum sjúkhnga,"
sagði Magnús Skúlason, aðstoðar-
framkvæmdastjóri Borgarspítalans,
í samtali við DV.
Magnús segir að komið hafi til tals
að banna reykingar algerlega á spít-
alanum en frá því hafi verið horfið.
Gerð var könnun um reykingar með-
al starfsfólks spítalans. Helstu niður-
stöður urðu þær að fólk var almennt
á móti reykingum en var um leið
ekki tilbúið að banna þær alveg.
„Þessar aögerðir okkar eru alveg í
samræmi við niðurstöður könnunar-
innar. Frekari takmarkanir á
reykingum er ákvörðun stjórnar
Borgarspítalans en stjórnin sam-
þykkti tillögur starfsmannaráðs þar
um. Starfsmannaráði þótti óraun-
hæft að banna reykingar alveg í 1.
áfanga og vildi einnig koma til móts
við vifla fólks eins og hann kom fram
í könnuninni."
-hlh
Samgönguráðherra:
Póstur og sími mun áfram
selja notendabúnað
Steingrímur J. Sigfússon hefur
svarað fyrirspurn frá Friðriki Sóp-
hussyni alþingismanni varðandi
nokkur atriði er snerta Póst og síma.
Friðrik spurði hvort ákvörðun
hefði verið tekin, eða væri á döfinni,
um aö breyta lögum þannig að próf-
un á notendabúnaði í flarskiptum
færðist til óháðs aðila.
í svari ráðherra kemur fram aö svo
er ekki. Aftur á móti er að vænta
reglugerðar um að þessi verkefni
heyri til sjálfstæðrar deildar sem
verði undir stjórn pósts og síma-
málastjóra og samgönguráðuneytis-
ins. Bendir ráðherra á að í vændum
sé á vegum símstjórna í Vestur-
Evrópu að setja á stofn sjálfstæða
staðalstofnun. Staðlar hennar verði
teknir upp í öllum löndum Evrópu
og því þurfi ekki að prófa notenda-
búnað nema i einu landi.
Þá svarar ráðherra því neitandi
hvort til standi að afnema úr lögum
skyldu Pósts og síma um að sefla
notendabúnaö. Segir ráðherra að það
sé stefna Evrópubandalagsins um
skipan flarskiptamála í Evrópu, sem
er til umræðu við EFTA ríkin, að
símamálastjórnirnar taki þátt í sam-
keppni með sölu notendabúnaðar og
flarskiptaþjónustu. -S.dór
Forsætisráöherra:
Tilbúnir að bjóða Reykja-
vík sem f undarstað
- ogaðlýsayfirstuömngiviöEystrasaltsríkin
„Þessi ósk Landsbergis kom ekki
á dagskrá ríkisstjórnarfundarins í
morgun eins og til stóð. Fundi, sem
halda átti með foringjum Eystra-
saltsríkjanna og Sovétríkjanna í gær,
var frestað. Þess vegna var ekki
tímabært að taka ósk Landsbergis
fyrir í morgun. Við þurfum að vita
úrsht þess fundar áður en við tökum
ákvörðun. Hitt er svo annað mál að
við erum tilbúnir til að lýsa yfir
stuðningi við sjálfstæðisbaráttu
Eystrasaltsríkjanna eins og við höf-
um gert áður. Ég veit að þeir meta
mikils stuðningsyfirlýsingu frá okk-
ur. Og það stendur sem ég hef áður
sagt að við erum tilbúnir til að bjóða
Reykjavík fram sem fundarstaö til
viðræðna forsvarsmanna Eystra-
saltsríkjanna og Sovétríkjanna ef um
þær næst samkomulag," sagði Stein-
grímur Hermannsson forsætisráð-
herra í gær.
Eins og skýrt var frá í DV hefur
Landsbergis, forseti Litháens, beðið
íslensku ríkisstjórnina um stuðn-
ingsyfirlýsingu i sjálfstæðisbaráttu
Eystrasaltsríkjanna. Hann fór einnig
fram á að íslenska ríkisstjórnin byði
Reykjavík fram sem fundarstað.
•Greinilegt er á svari forsætisráð-
herra að þessi ósk fær jákvæðar und-
irtektir hjá islensku ríkisstjórninni.
-S.dór
Sambandiö:
Nýtt hlutaf élag í stað
sjávarafurðadeildar
Nýtt hlutafélag var stofnað í gær
og ber það nafniö íslenskar sjávaraf-
urðir hf. Frá og með áramótum mun
þaö taka við starfsemi sjávarafurða-
deildar Sambandsins sem þá verður
lögð niður. Stofnendur félagsins eru
framleiðendur í Félagi Sambands-
fiskframleiðenda og Samband ís-
lenskra samvinnufélaga en að auki
standa aö því flögur kaupfélög og
nokkrir framleiðendur sem selt hafa
í gegnum Sambandiö.
í sflóm fyrirtækisins voru kosnir
þeir Tryggvi Finnsson formaöur,
Sigurður Markússon, Guðjón B. 01-
afsson, Hermann Hansson, Gísli Jó-
natansson, Rögnvaldur Friðbjörns-
son og Jón Guðmundsson.
Á stofnfundinum kom fram að inn-
borgað hlutafé í félagið er rúmlega
600 milflónir en jafnframt var kjör-
inni stjórn veitt heimild til að auka
það í 700 milflónir. Þá var samþykkt
aö hið nýja félag keypti 60% hlut
Sambandsins í Iceland Seafood Corp-
oration í Bandaríkjunum og 55% hlut
þess í Iceland Seafood Ltd. í Huh.
-kaa