Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.1990, Síða 10
10
LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 1990.
Myndbönd
Tvær nýjar kvikmyndir koma á
mikilli hraðferö inn á listann. Önn-
ur þeirra, Look Who’s Talking, er
sjálfsagt búin að vera einhver allra
vinsælasta kvikmyndin sem sýnd
var í bíóhúsum á höfuðborgar-
svæðinu á þessu' ári, enda er hér
um smellna íjölskyldumynd að
ræða. Hin er Nuns on the Run,
bráöskemmtileg bresk gaman-
mynd sem nánar er fjallað um hér
á síðunni. Að öðru leyti er lítið að
gerast, en nokkrar góðar myndir
eru væntanlega í síöustu viku fyrir
jól.
1 (1) Hunt for Red October
2 (2) An Innocent Man
3 (-) Look Who’s Talking
4 (3) Born on the Fourth of July
5 (4) See No Evil, Hear No Evil
6 (-) Nuns on the Run
7 (8) Harlem Nights
8 (6) Steel Magnolias
9 (10) Downtown
10 (7) Sea of Love
★★!4
Fyndnir hrakfallabálkar
WILT
Útgefandi: Haskolabió.
Leikstjóri Michael Tuckner.
Aðalhlutverk: Griff Rhys Jones, Mel
Smith, Alison Steadman og Diana Qu-
ick.
Bresk, 1989 - sýningartími 92 mín.
Bönnuð börnum innan 12 ára.
Þegar breskum tekst vel upp í
gerð grínmynda er ekki til betri
kvikmyndahúmor. Sum atriðin í
Wilt eru gædd þessum óborganlega
húmor og í heild er myndin stór-
sniðug þótt eins og oftast í farsa-
kenndum kvikmyndum komi fyrir
atriði þar sem húmorinn dettur
niður en þau er fá hér.
Henry Wilt er kennari sem býr
með ráðríkri eiginkonu og í byrjun
er það engin hugsun sem sækir
jafnfast á hann eins og hvernig
hann eigi að losna viö eiginkonuna.
Einn daginn, eftir að hjónunum
hafði lent saman hjá vinafólki,
hverfur eiginkonan. Aöur en aum-
ingja Wilt getur snúið sér við er
hann handtekinn og ásakaður um
morö, enda hafði sést til hans s'ting-
andi hníf hvað eftir annað í kven-
mannslíkama. Það sem vitnin sáu
ekki var að þetta var brúða í kven-
líki sem vægast sagt hafði gert
Wilt lífið leitt. Lögregluþjónninn,
sem fær málið til meðferðar, hefur
aldrei heyrt aðra eins 'sögu og er
ákveöinn í að knýja fram játningu
hjá Wilt (en þá fengi hann stöðu-
hækkun).
Það er ekki síst skemmtilegum
töktum aðalleikaranna Griff Rhys
Jones og Mel Smith að þakka
hversu fyndinn Wilt er. Þeir ná
góðum tökum á skemmtilegum
hrakfallabálkum. Sérstaklega er
það Mel Smith sem nær þessum
fína farsaleik sem ábyggilega á eft-
ir að fleyta horium langt. Þá hefur
hann einnig sérstakt útht sem
hjálpar mikið í gamanleik. -HK
'jg*
dfl|i Æ
Nútímasjórán
ACT OF PIRACY
Útgefandi: Háskólabió.
Leikstjóri: John Bud Cardos.
Aóalhlutverk: Gary Busey, Belinda Bau-
er, Ray Sharkey og Nancy Mulford.
Bandarísk, 1988 - sýningartimi 100 mín.
Bönnuö börnum innan 16 ára.
í Act of Piracy leikur Gary Bus-
ey, fyrrverandi Vietnam-hermann-
inn Ted sem er hálfgerður vand-
ræðaseggur. Eiginkonan hefur far-
ið frá honum með tvö börn þeirra
og nú er svo komið fyrir honum
að hann varður að selja einu al-
mennilegu eignina sína, snekkju
sem hefur verið hans stolt og yndi.
Hann á að sigla henni til Ástralíu
þar sem kaupandinn bíður hennar.
Ted fær að hafa börnin sín með
og haldið er af stað í ferð sem á að
veröa skemmtiferð. Strax fyrstu
nóttina ræðst hópur nútímasjó-
ræningja á skipið og drepur alla
nema börnin tvö og Ted, sem allir
halda að hafi verið drepinn. Hon-
um er bjargað og þegar lögreglan
getur lítiö aðhafst í málinu grípur
hann til eigin ráða ásamt sinni
fyrrverandi og leitar uppi sjóræn-
ingjana.
Miðað við fyrirfram hugmyndir
kom Act of Piracy nokkuð á óvart.
Myndin hélt spennu allan sýning-
artímann og sum atriðin geta vel
sómt sér í kvikmynd sem meira er
lagt í. Nokkrir lausir endar eru þó
í handriti en í þessu tilfelli kemur
það ekki að sök.
Leikarar standa sig yfirleitt með
prýði. Sérstaklega er minnisstæður
leikur Ray Sharkey í hlutverki
„skæruliðaforingjans“. Verri
manngerð hefur maður varla séð í
kvikmynd. Hvernig hann fór með
unnustu sína þegar honum sinnað-
ist við hana líður mönnum seint
úr minni. Gary Busey er kannski
heldur þunglamalegur í hlutverki
hetjunnar en skilar textanum vel.
í heild er Act of Piracy hin besta
afþreying. -HK
Kjarnakonur
STEEL MAGNOLIAS
Útgefandi: Bíómyndir
Leiksljóri:. Herbert Ross eftir handriti
Robert Harling
Aöalhlutverk: Sally Field, Dolly Parton,
Shirley McLaine, Daryl Hannah, Olymp-
ia Dukakis og Julia Roberts.
Leyfö öllum aldurshópum
Bandarísk - 1989
Sýningartimi 114 mínútur
Mynd þessi er gerð eftir leikriti sem
fékk mjög góðar viðtökur vestra.
Hér er fjallað um sex vinkonur sem
búa í htlum bæ í Louisiana í Banda-
ríkjunum. Þær eiga eins og aðrir
við sín vandamál að stríða en vin-
áttan gerir þeim kleift að deila gleði
og sorgum og styðja hver aðra. Hér
er horft á lífið frá sjónarhóli
kvenna og karlmenn koma lítið eða
ekkert við sögu nema sem skraut-
legar aukapersónur sem litlu máli
skipta.
Mikið stjörnulið prýðir myndina
og hvergi slegið af. Sally Field og
Julia Roberts eru í einna stærstum
hlutverkum og standa sig báðar
mjög vel. Field hefur sýnt og sann-
að að hún er frábær leikkona. Shir-
ley McLaine leikur einn mesta pil-
svarg og fýlupoka sem sést hefur á
tjaldinu í áratugi og er hreint dá-
samleg. Olympia Dukakis og
Darryl Hannah eru mjög góðar.
Einna síst er að mínu mati Dolly
Parton en það er kannski sérviska.
Mér hefur aldrei þótt hún góð leik-
kona. Hlutverkin eru frá hendi
höfundar öh mjög vel skrifuð og
heilsteyptar persónur skapaðar.
Þrátt fyrir að allar höfuðpersón-
urnar tilheyri hinu mjúka kyni
verður tæplega sagt að tekin sé
mjög feminísk afstaða. Það er fyrst
og fremst verið að fjalla um fólk
og það mæðraveldi sem þarna gef-
ur að líta er miklu eldra en allar
jafnréttiskenningar. Leikstjórinn
gefur sér góðan tíma til þess að
segja söguna og er óhræddur við
að láta leikarana gefa tilfinningum
sínum lausan tauminn. Á köflum
jaðrar frásögnin við væmni en það
er í rauninni allt í lagi. Mér fannst
myndin heldur betri þegar ég sá
hana í annað skipti og hika ekki
við að mæla með henni við hvern
sem er. -Pá.
Nimnur á flótta
NUNS ON THE RUN
Útgefandi: Skifan
Leikstjórn og handrit: Jonathan Lynn
Aðalhlutverk: Eric Idle og Robbie Coltr-
ane
Leyfð ölium aldurshópum
Bresk - 1990
Sýningartimi 90 mínútur
Brian og Charhe eru orðnir leiðir
á vinnunni, stressinu og húsbónd-
anum og langar mest til að stinga
af frá öllu saman. Eirin galli er á
gjöf Njarðar. Þeir njóta engra eftir-
launaréttinda því Brian og Charlie
eru atvinnubankaræningjar. Því er
eina von þeirra að stela stórri pen-
ingaupphæð og stinga af til Ríó.
Þeir velja sér afar óheppilegt fórn-
arlamb því þeir stela stórri fúlgu
frá kínversku mafíunni. Þetta er
afar óheppilegt því þessum sömu
peningum ætlaði Case, húsbóndi
Charlie og Brians, að stela.
Þeir félagar eru því á flótta undan
fjölda manns og svo fer að þeir leíta
skjóls í nærliggjandi nunnuk-
laustri. Þar ákveða þeir að bíða af
sér mestu lætin dulbúnir sem
nunnur. Vinkona Brians, hálfblind
þjónustustúlka sem stöðugt er að
týna gleraugunum sínum, flækist í
málið auk þess sem félagarnir
verða fórnarlömb fjáröflunar
nunnanna.
Eric Idle lék í fjölda Monty Pyt-
hon mynda og skyldleikinn er aug-
ljós. Mörg atriðanna minna bein-
línis á þær frægu gamanmyndir og
húmorinn er á köflum af sama
toga. Idle og Coltrane fara á kostum
í nunnubúningunum og hafa kirkj-
una óspart aö skotspæni. Sögu-
þráðurinn er léttgeggjaður og far-
sakenndur en fyrst og fremst er
myndin óborganlega fyndin. Hér
er gamanmynd sem óhætt er að
mæla með við hvern sem er.
Grunsamlegur nágranni
CURIOSITY KILLS
Útgefandi: Laugarásbíó.
Leikstjóri: Colin Bucksey.
Aðalhlutverk: C. Thomas Howell, Rae
Dawn Chong, Courtney Cox og Jeff fa-
hey.
Bandarísk, 1989 - sýningartími 116 min.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
Þegar Curiosity Kills er skoðuð
er ekki laust við að hún veki upp
minningar um þekktar sakamála-
myndir. Ekki er samt um neina
beina eftirlíkingu að ræða heldur
er þemað klassískt og hefur oft
verið notað áður með góðum ár-
angri..
C. Thomas Howell leikur ijós-
myndarann Cat Thomas sem býr í
stóru fjölbýlishúsi þar sem lista-
menn hafa hreiðrað um sig. Sá sem
býr við hlið hans er málari og virð-
ir Cat hann mikið. Dag einn finnst
hann myrtur, að því er virðist að
ástæðulausu. Varla er búið að taka
líkið út úr íbúðinni þegar nýr leigj-
andi er kominn.
Nýi leigjandinn er myndarlegur
ungur maður, vel kæddur og ólíkur
öðrum leigjendum. Cat fær strax
illa bifur á honum og tekur upp á
því aö setja hljóðnema í loftræsti-
kerfið til að geta fylgst með hvað
fer þarna fram. Grunur Cat er fljót-
lega staðfestur og áður en hann
veit af er hann farinn að skipta sér
af máli þar sem eitt morð til eöa frá
skiptir engu máli.
Curiosity er að mörgu leyti vel
gerður þriller. Það er aðeins í lokin
að söguþráðurinn fer að virka
ósannfærandi, ánnars er héh um
ágæta skemmtun að ræða sem
unnendur spennumynda geta vel
sættsigvið. -HK
Vandræðaunglingar
THE DELINQUENTS
Útgefandi: Steinar
Leikstjóri: Chris Tomson
Aðalhlutverk: Kylie Minogue og Charlie
Schlatter
Áströlsk-bandarisk -1989. Sýningartími
100 mínútur
Bönnuð innan 12 ára
Lola Lovell er uppreisnargjarn
unglingur í Ástralíu árið 1957. Móð-
ir Lolu flakkar um og leikur á píanó
á krám og drekkur meira en góðu
hófi gegnir. Lola verður ástfangin
þegar hún er aðeins 15 ára gömul.
Þá kynnist hún Brownie Hansen
sem er óhamingjusamur jafnaldri
hennar. Sá á auma vist hjá móður
sinni og stjúpfóður sem lemur
Brownie eins og harðan fisk. Bles-
suð börnin eru náttúrulega stokkin
upp í rúm með það sama og áður
en nokkur maður fær rönd eða
hnjákoll við reist er Lola ófrísk.
Þau hlaupast saman á brott frá öllu
saman og halda að þar með leysist
öll þeirra vandamál. Móðir Lolu
hefur uppi á þeim, sendir þá stuttu
í fóstureyðingu og á betrunarhæli
og Brownie endar sem sjómaður.
Þetta er óttaleg vella. Þeir drama-
tísku atburðir, sem fjallað er um,
ná aldrei athygli áhorfandans og
lokaatriöið er eins og klippt út úr
Fýkur yfir hæðir. Tíminn óg tíðar-
andinn er mjög framandi og
ókunnugur og leikararnir oftlega í
hálfgerðum vandræðum með kli-
sjukenndan textann.