Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.1990, Blaðsíða 12
12
LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 1990.
Erlendbóksjá
Frá fyrra
heimsstríði
í þessu safnriti birtast sýnis-
horn ritverka eftir meira en átta-
tíu höfunda. Hér ægir saman
brotum úr skáldsögum, bréfum,
ritgerðum og dagbókum. Hið
eina, sem sameinar höfundana,
er hrikaleg reynsla af stríðinu
sem átti að enda öll stríð, fyrri
heimsstyrjöldinni.
Inn á milli eru kaflar úr verkum
heimsfrægra listamanna. Nægir
að nefna Colette, D. H. Lawrence,
Jules Romains, Rosu Luxemburg,
Erich Maria Remarque, Jaroslav
Hasek, Robert Graves, Siegfried
Sassoon, Joseph Conrad, Ernest
Hemingway, Céline, Paul Klee,
William Faulkner.
Það er vissulega forvitnilegt að
kynnast því með- hve ólíkum
hætti höfundar meðhöndluðu í
verkum sínum þá hrikalegii tíma
þegar blómi evrópskrar æsku lét
lífið í skotgröfum fyrra heims-
stríðsins.
Á hinn bóginn gefa sýnishornin
oftar en ekki afar takmarkaða
mynd af þeim verkum sem þau
eru hluti af. í því felast reyndar
almennt gallar sýnisbóka af
þessu tagi.
THE PENGUIN BOOK OF FIRST
WORLD WAR PROSE.
Ritstjórar: Jon Glover og Jon Sllkin.
Penguin Books, 1990.
Sígild bamabók
Rúm öld er liðin frá því Louisa
May Alcott sendi frá sér skáld-
söguna Little Women. Hún birtist
í tvennu lagi árin 1868 og 1869 og
hlaut þegar geipimiklar vinsæld-
ir.
í sögunni, sem Louisa byggði á
persónum og atburðum úr eigin
lífi, segir frá æskuárum fjögurra
að ýmsu leyti ólíkra systra sem
alast upp á fátæku heimili. Ein
systranna, Jo, er eins konar
sjálfsmynd höfundarins.
Alcott-fjölskyldan bjó í Concord
í Massachusetts í Bandaríkjun-
um og voru systurnar fjórar eins
og í sögunni. Louisa var önnur í
röðinni og hlaut menntun hjá fóð-
ur sínum sem hélt að henni ritum
bandarískra höfunda á borö við
Enjerson, Hawthorne, og Thore-
au.
Hún þurfti að vinna margvísleg
störf til að hjálpa fjölskyldunni
fjárhagslega, gerðist hjúkrunar-
kona í borgarastyrjöldinni og
sagði frá þeirri reýnslu í fyrstu
bók sinni. Síðan skrifaði hún
nokkur skáldverk, en það var
fyrst með Little Women sem hún
sló í gegn.
Þetta er vönduð útgáfa sögunn-
ar. Henni fylgir ítarlegur formáli
og skýringar í bókarlok.
LITTLE WOMEN.
Hölundur: Louisa May Alcott.
Penguln Books, 1990.
Helstu kiljumar
hjáBretum!990
Árið er að renna sitt skeið á enda
og hefðbundin upprifjun góðs og ills
á árinu er víða í garigi.
Gagnrýnendur breskra blaða hafa
undanfarið litið yfir bókauppskeruna
1990 en hún er sem kunnugt er nokk-
uð jöfn yfir árið þar á bæ. Virt breskt
bókablað hefur þannig birt lista um
ríflega 50 pappírskiljur sem taldar eru
þær helstu á árinu. Margar þeirra
hafa verið og eru til sölu í bókaversl-
unum hér. Allnokkrar kiljanna hafa
auk heldur komið.fil umljöllunar í
Erlendri bóksjá DV á árinu.
Kíkjum því aðeins nánar á þessa
góðbókaskrá.
Skáldsögur
Ríflega tuttugu skáldsögur eru á
listanum. í þeim félagsskap eru:
Fire Down Below, lokabindið í þrí-
leik William Golding um sögulega
siglingu ungs Englendings frá Bret-
landi til Ástralíu.
Any Old Iron þar sem Anthony
Burgess fylgir sverði Artúrs kon-
ungs, Excalibur, gegnum aldirnar.
Focault’s Pendulum sem hefur að
-geyma spennandi för söguhetju Um-
berto Eco hins margfróða gegnum
þoku hindurvitna og samsæriskenn-
inga að fornu og nýju.
A History of the World in 10 '4
Chapters þar sem Julian Barnes ýtir
úr vör á örkinni hans Nóa og siglir
svo gegnum tíðina.
Billy Bathgate, snjöll frásögn E. L.
Doctorow af ungum dreng sem elst
upp uridir verndarvæng alræmds
mafíuforingja í New York.
Split Images, nýjasta spennusaga
Elmore Loenard, eins besta spennu-
sagnahöfundar Bandaríkjanna um
þessar mundir.
My Secret History, sem gagnrýn-
endur telja bestu skáldsögu Paul
Theroux.
Á listanum eru tvær sögur sem
þýddar hafa verið á íslensku: The
Russia House, nýjasti njósnareyfari
John le Carré, og endurminningar
yfirþjóns Kazuo Ishiguro í The
Remains of the Day.
Góðar ævisögur
Margar frábærar ævisögur komu
út í paþpírskiljum á árinu á Bret-
landi.
Á áðurnefndum lista eru m.a. ævi-
sögur nokkurra skálda:
Fyrsta bindi ævisögu rithöfundar-
ins Graham Greene eftir Norman
Sherry. Við bókarlok er Greene orð-
inn 35 ára.
The Search for Love, fyrsta bindi
ævisögu írska skáldsins Bernharu
Shaw eftir Michael Holroyd.
Kunn bók Ian Gibsons um ævi Fed-
erico Garcia Lorca.
Ævisaga Simone de Beauvoir eftir
Claude Francis og Fernande Contier.
Og tvær sjálfsævisögur núlifandi
bandarískra rithöfunda: Self-Con-
ciousness eftir John Updike og The
Facts eftir Philip Roth.
Þá kom fyrsta bindi ævisögu Mac-
millans, fyrrum forsætisráðherra
Breta, eftir Alistair Horne, út í kilju
á árinu. Það nær til ársins 1956.
Fræði- og ferðabækur
Loks er ástæða til að nefna nokkrar
fræði- og ferðabækur sem áðurnefnt
blað taldi með þeim bestu á árinu.
Citizens eftir Simon Schama er þar'
efst á blaði, en þar er fjallað um
frönsku stjórnarbyltinguna á gagn-
rýninn hátt.
Tvær bækur um síðari heimsstyrj-
öldina. Annars vegar The Second
World War eftir John Keegan, en hún
er sögð besta úttekt á hernaöarátök-
unum sem gerð hafi verið til þessa.
Hins vegar Wartime: Understanding
and Behaviour in the Second World
War eftir Paul Fussel sem sýnir fram
á langvarandi neikvæð áhrif styrj-
aldarinnar á hugsunarhátt og hegð-
an manna.
All the Wrong Places eftir ljóð-
skáldið og blaðamanninn James Fen-
ton er merkilegt safn ritsmíða hans
um sögulega viðburði sem hann var
sjálfur vitni að, svo sem falli Saigon-
borgar og flótta Markosarhjónanna
frá Filippseyjum.
William Ðalrymple segir frá
merkri ferð sinni í fótspor Marko
Polo frá Jersúsalem til Peking í In
Xanadu, og Carló Gébler lýsir öku-
ferð um Kúbu Kastrós í Driving
Through Cuba.
Þetta eru sem sagt nokkrar þeirra
pappírskilja sem komið hafa út á
Bretlandi á því herrans ári 1990 og
merkilegar teljast.
Metsölukiljur
Bretland
Skáldsögur:
1. Umberto Eco:
FOUCAULTS PENDULUM.
2. Terry Pratchett:
GUARDSt GUARÐS!
3. Catherlne Cookson:
THE BLACK CANDLE.
4. Michael Dobbs:
HOUSE OF CARDS.
5. Barbara Taylor Bradford:
THE WOMEN IN HIS LIFÉ.
6. Rosamunde Pllcher:
THE BLUE BEDROOM.
7. Jenniler Lynch:
THE SECRET DIARV OF LAURA
PALMER.
8. Sue Townsend:
TRUE CONFESSIONS OF ADRIAN
ALBERT MOLE.
9. Stephen Klng:
THE DARK HALF.
10. J. Barnes:
A HISTORV OF THE WORLD IN
107, CHAPTERS.
SUNDAY BOOK.
9. C. Peattle & R. Taylor:
ALEX III: SON OF ALEX.
10 Tom Jalne:
THE GOOD FOOD GUIDE 1991.
(Byggt á The Sunday Tlmes)
Bandaríkin
Skáldsögur:
1. V.C. Andrews:
DAWN.
2. Dean R. Koontz:
THE BAD PLACE.
3. Danielle Steel:
DADDY.
4. Johanna Lindsey:
GENTLE ROGUE.
5. Phlllp Frledman:
reasonAble doubt.
6. Slephen King;
THE DARK HALF.
7. Joe Weber:
DEFCON ONE.
8. Tom WoHe:
THE BONFIRE OF THE VANITIES.
9. Stephen King:
IT. '
Rít almenns eðlis:
1. Giles:
GILES CARTOONS.
2. Hannah Hauxwcll:
SEASONS OF MY LIFE.
3. Peter Mayle:
A YEAR IN PROVENCE.
4. Oenis Healey:
THE TIME OF MY LIFE.
5. Robln Day:
THE GRAND INQUISITOR.
6. S. Fry & H. Laurle:
Á BIT OF FRY AND LAURIE.
7. Chrls Oonald:
THE VIZ BILLY THE FISH FOOT-
BALL YEARBOOK.
8. 8111 Watterson:
THE CALVIN & HOBBES LAZY
10. Aríhur C. Clarke & Gentry Lee.
RAMA II.
11. Davld Eddlngs:
SORCERESS OF DARSHIVA.
12. Cllve Barker:
THE GREAT AND SECRET SHOW.
13. Victoria Holt:
THE CAPTIVE.
14. Jennlter Lynch:
THE SECRET DIARY OF LAURA
PALMER.
15. Altan Gurganus:
OLDEST LIVING CONFEOERATE
WIDOW TELLS ALL.
Rit almenns eðlis:
1. Robert Fulghum:
ALL I REALLY NEED TO KNOW I
LEARNED IN KINDERGARTEN.
2. Jill Ker Conyvay:
THE ROAD FROM COOHAIN.
3. M. Scott Peck:
THE ROAD LESS TRAVELED.
4. Patty Duke & Kenneth Turan:
CALL ME ANNA.
5. Thomas L. Friedman:
FROM BEIRUT TO JERUSALEM.
6. Michael Lewis:
LIAR’S POKER.
7. Cllft Stoll:
THE CUCKOO’S EGG.
8. R. J. Groden & H.E. Livlngstone:
HIGH. TREASON.
9 Anals Nln.
HENRY AND JUNE.
10. Stephen Hawking:
A BRIEF HISTORY OF TIME.
11. Tracy Kldder:
AMONG SCHOOLCHILDREN.
(Byggl á Nsw York Times Book Reviow)
Danmörk
Skáldsögur:
1. Jorn Rlel:
SKR0NER FRA ET REJSELIV.
2. Jean M. Auel:
HESTENES DAL.
3. Jean M. Auel:
HULEBJ0RNENS KLAN.
4. Jean M. Auel:
MAMMUTJÆGERNE.
5. Isabel Allende:
EVA LUNA.
6. Ib Michael:
KILROY KILROY: ’
7. Benazir Bhufto:
0STENS DATTER.
8. Slmon Wiesenthal:
RETFÆRDIGHED - IKKE HÆVN.
9. Peler Hoeg:
FORESTILLING OM DET
TYVENDE ARHUNDREDE.
10. Ib Michaol:
KEJSERFORTÆLLINGER.
(Byggt á Politlken Sendag)
Umsjón: Elías Snæland Jónsson
.........I
Svik og njósnir
Jack Higgins, sem frægastur er
fyrir stríðssöguna The Eagle Has
Landed, fjallar í þessari nýju
spennusögu um njósnir, svik
og ástir í síðari heimsstyrjöld-
inni.
Þegar sagan gerist eru banda-
menn í óða önn aö undirbúa innr-
ás á meginland Evrópu, D-daginn
svonefnda. Þeim er mikiö í mun
að blekkja andstæöinginn og láta
hann búa sig undir innrás á öðr-
um staö en þar sem fyrirætlað er
að leggja að landi.
Um sama leyti er Rommel hers-
höfðingi, sem Hitler hefur falið
að undirbúa varnir Þjóðverja
gegn innrásarliðinu, með mikil-
vægan undirbúningsfund sem
bandamenn vilja fá fréttir af.
Njósnarar eru sendir yfir Erm-
arsundið. En fljótlega kemur í
ljós aö ekki er allt sem sýnist og
maðkur í mysunni hjá njósnafor-
ingjum bandamanna sem víla
ekki fyrir sér að senda fólk í
klærnar á Gestapo ef þaö þjónar
„æðri“ markmiöum.
Þetta er spennandi saga, eins
og við mátti búast, en jafnframt
trúverðug.
COLD HARBOUR.
Höfundur: Jack Higgins.
Pann
Dulspeki íslams
Þótt hátt í áttatíu ár séu liðin
frá því að þessi bók kom fyrst út
er hún enn í dag talin með ein-
fóldustu og skýrustu úthstunum
vestrænna manna á dulspeki ísl-
ams. Höfundurinn, Nicholson,
var á sinni tíö fremstur sérfræö-
inga á vesturlöndum í sufisma,
en svo nefnist dulspeki íslams,
og ritaði þar um margar bækur.
Sufisminn, sem reyndar hefur
einnig náð hugum ýmissa sem
ekki játast undir íslam, á rætur
sínar að rekja aftur til Múhameös
spámanns. En þar gætir einnig
áhrifa frá öðrum trúarbrögðum,
þar á meðal frá kristni.
Dulspekin náði fljótt verulegri
útbreiðslu, ekki síst á tímum ver-
aldlegrar eymdar, stríðs og hung-
urs, og á sér enn marga iðkendur.
Nicholson rekur hér megin-
þætti sufismans, með ítarlegum
tilvitnunum í Kóraninn og önnur
rit íslams, og vísar lesendum inn
á það einstigi sem. þræða verður
til aö ná leiðarenda - en þá hefur
sálin aðskilið sig frá öllu því sem
ekki er guö og þar með sameinast
honum með einum eða öðrum
hætti.
THE MYSTICS OF ISLAM.
Höfundur: Reynold A. Nicholson.
Penguln Books, 1989.