Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.1990, Page 29
LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 1990.
Henni er skotið úr jafnstórum skot-
hylkjum og er þrisvar sinnum léttari
og fer með þrisvar sinnum meiri
hraða eða 3000 m á sek. Þá veit ég
það. Ég hef sannarlega orðið margs
vísari þessa síðustu daga.
Þótt þessi ágæti læknir sé einkum
hingað kominn til að taka á móti
frönskum ráðherra lætur hann engu
að síður í ljósi ánægju sína yfir að
hitta nú í fyrsta skipti á ævinni mann
frá íslandi. Áður en hann fer með
okkur inn í annað herbergi til að
sýna okkur frekari gögn, segir hann
okkur ýmislegt um sjúkrahúsið. Hér
starfa 28 læknar og 250 hjúkruna-
rfræðingar, og síðan Intifada hófst r
desember 1987 hafa 1000 sjúklingar
verið lagðir hér inn vegna sára sem
þeir hafa hlotið í viðskiptum við ísra-
elsher, auk þess sem um 3000 hafa
fengið gert að minniháttar sárum
eftir barsmíðar, táragasárásir og
byssuskothríð. Hann dregur fram
skýrslur um aldur þessara u.þ.b. 1000
fórnarlamba stríðsins, og þar kemur
fram að flestir eru um tvítugt og all-
stór hópur innan við 16 ára aldur.
Unglingar
fórnarlömb átaka
En nú erum við komin inn í annað
herbergi og hann ætlar að sýna okk-
ur nokkrar röntgenmyndir máh sínu
til sönnunar. Til hliðar við dyrnar
eru myndir af 5 eða 6 palestínskum
drengjum, gullfallegum piltum sem
allir hafa látið lífið hér á spítalanum
síðustu dagana af völdum þessara
„meinlitlu" trakteringa plastkúlu-
morðingianna sem hér fara um borg
og bý nótt sem nýtan dag í vírnets-
bifreiðum sínum amerískum, með
sín evrópsku og amerísku vopn, oft
fullkomnuð af snilhgáfu þeirra
sjálfra. Hverja myndina annarri
skelfilegri ber fyrir augu, gúmmí-
kúlur á stærð við fremsta köggul
þumalfmgurs sjást sem hvítir fíring-
ir sitjandi innan höfuðkúpunnar og
á einni myndinni eru þær 6. Sundurt-
ættir fótleggir á tveimur myndanna
og sundraðir lærleggir á annarri.
Eitt skotið hafði hæft konu, sem var
að forða barni sínu tveggja ára inn
undan gasárás sem skyndilega hafði
hafist rétt við húsdyr hennar.
Og nú er haldið upp á 3. hæð. Þar
hitti ég 8 unga pilta bæði frá Gaza
og víðar að, sem hér Uggja örkumla
fyrir Ufstíð. Einn 17 ára lamaður fyr-
ir neðan mitti með skot í mænu, ann-
ar 12 ára með lamaðan hægri fót,
aðrir með sundraða lærleggi, hand-
leggsbrotnir, og sá yngsti, 10 ára, með
nýtt andlit eftir áð gassprengja hafði
tætt af honum andlitið.
Um leið og ég kveð spyr ég einn
þessara pUta hvort ég eigi að skUa
einhveiju tU ungra pilta og annarra
heima á íslandi. „Segðu þéim að þeir
séu engar hetjur þessir ísraelsku
hermenn, þeir eru huglausir svo
lengi sem þeir beita þessum aðferð-
um gegn okkur óvopnuðum, þótt við
reynum að sýna viðbjóð okkar og
fyrirlitningu á þeim mönnum sem
ræna okkur öllum mannréttindum,
menntun og eigin landi og reyna að
svipta okkur sjálfsvirðingunni líka.“
Mér er dimmt fyrir sjónum þegar
ég geng út í sólskinið og reyni að
jafna mig í skugga tijánna sem
breiða greinar sínar með fjólubláum
blómum yflr mig. Ég kaupi ávaxta-
safa af ungum'pútum sem hafa sett
upp stasjón sína við hliðið að spíta-
lanum þar sem þeir steikjá pylsur
og rista brauð á viðarkolum. Síðan
ökum við suður á brún Olíufjallsins,
en þaðan er stórfenglegt útsýni yfir
Jerúsalemsborg. Áður en ég held
niður af fjallinu finnst mér maður frá
Nazaret horfa mæddur yfir borgina
fornu.
Gengið í Getsemane
Við höldum nú áfram ofan flug-
brattan stíg og á vinstri hönd er Get-
semanegarðurinn. Neðst i brekkunni
þar sem gengið er inn í garðinn hgfa
minjagripasalar sett upp búðir sínar.
Ég geng inn í garðinn og lít yfir fjöl-
skrúðugan suðrænan gróður, blóm
og rósarunna og gömul ólífutré,
kræklótt og margskipt. Eins og
margar tijátegundir geta ólífutré náð
mjög háum aldri, og sum trén sem
hér vaxa eru tahn vera um 1500 ára
gömul. Varla getur þó tréð sem Júdas
hengdi sig í staðið hér enn. Róm-
verski hershöfðinginn Títus, sem
eyddi Jerúsalemsborg árið 70, lét
höggva allan skóg á þessu svæði og
notaði viðinn til að kynda elda að
kalksteinsmúrum borgarinnar svo
að þeir sprungu og hrundu auðveld-
lega fyrir múrbijótum Rómveija.
Inni í Getsemanegarðinum stendur
Allraþjóðakirkjan, og fleiri kirkjur
sem mér gafst ekki tími til að skoða.
En inn í hana fór ég og hlýddi þar
messu um stund. Hér gildir sama
reglan og í moskunum fógru, að leið-
sögumönnum er bannað að fylla hú-
sið skvaldri, enda er hér friður og
helgi innan dyra. Nafn sitt dregur
kirkjan af því að 12 þjóðir stóðu að
byggingu hennar árið 1924. Hún er
einnig þekkt undir nafninu Píslar-
kirkjan og stendur á grunni tveggja
eldri kirkna frá 4. og 12. öld. Inni í
kór þessarar kirkju getur að líta
klettinn þar sem Kristur baðst fyrir
og háði sitt sálarstríð nóttina áður
en hann var svikinn og handtekinn.
Purpuralit birta sáldrast töfrafull í
gegnum alabastursglugga. Enn má
sjá undir gleri í gólfrnu mósaík úr
bysantínsku kirkjunni er hér stóð
fyrir 1600 árum.
GröfMaríu
guðsmóður
Ég geng út úr kirkjunni og fer um
garðinn á ný. Við rætur Olíufjallsins
er gröf Maríu guðsmóður. Sagt er að
hér hafi verið kirkja á 6. öld yfir gröf-
inni, en krossfarar sem komu hingað
fundu rústir einar. Þeir byggðu nýja
kirkju, sem eftir að krossferðum lauk
var í umsjá ýmissa klausturreglna
og kirkjudeida, og raunar múslíma
líka, enda segir sagan að Múhameð
hafi séð ljós yfir gröfmni á næturför-
inni frægu frá Medína til Jerúsalem.
(Ath. millifyrirsagnir eru blaðsins.)
' ■ ■■ L;'
V *
: -
sps^
■
Ungur piitur á al-Makassed sjúkrahúsi með sundurtættan fót eftir skothrið
israelskra lögreglumanna.
m\a
£3ólsturgorðín
Garðshorni við Fossvogskirkjugarð,
sími 16541-
GLÆSILEG HÚSGÖGN
HÖFUM STÆKKAÐ VERSLUNINA
MEÐ NÝJUM OG STÓRGLÆSILEGUM HÚSGÖGNUM