Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.1990, Blaðsíða 43
r£^lfM{ÍM^lífe(ik5MáMftÍERJ19á).
%
er oröinn gáfaðri en jafnframt ill-
kvittnari. Sem hermaður er hann
mjög kaldhæðinn og veraldarvan-
ur.“
Þættirnir hafa notið mikilla vin-
sælda í Bretlandi og má fastlega
búast við því að Blackadder, Bal-
drekur og félagar haldi áfram að
ramba gegnum söguna. Kannski
liggur leið þeirra næst inn í fram-
tíðina. Hver veit?
Helstu leikarar í þáttunum um
Blackadder eru Rowan Atkinsson
sem leikur aðalhlutverkið.
Baldrick er leikinn af Tony Robin-
son. Aðrir eru Tim Mclnnerny,
Hugh Laurie og Stephen Fry.
Richard Curtis og Rowan Atkin-
son eru handritshöfundar en leik-
stjóri er Martin Shardlow.
-Pá
Þættirnir um Svörtu nöðruna,
Captain Blackadder, sem eru á dag-
skrá ríkissjónvarpsins, eru eitt
skýrasta dæmið um breska gaman-
semi sem sjónvarpsáhorfendur
eiga völ á í dag.
Þetta er fjórða þáttaröðin sem
gerð er um söguhetjuna Blackadd-
er og félaga hans. í fyrstu þremur
röðunum var sögunum valið svið
meðal aðalsmanna á Bretlandi fyrr
á öldum og við hirðir konunga.
Þættirnir sem nú er veriö að sýna
gerast í fyrri heimsstyrjöldinni.
Blackadder og félagar hans er
staddir í skotgröfum bak við ensku
víglínuna.
Blackadder er ekki skemmt yfir
stríðinu. Hans helsta markmið er
að komast burt með einum eða
öðrum hætti. Hann vill komast
heim til gamla góða Englands og
setjast við tedrykkju og krikketleik
eins og fólki af hans stétt sæmir.
Blackadder til þjónustu reiðubúinn.
Takist það ekki er lágmarkskrafan
sú að þurfa að minnsta kosti ekki
að berjast. Félagi hans og undir-
maður Baldrekur er enn mættur
til leiks eins og í fyrri þáttum. Hann
er skítugri og bólugrafnari en
nokkru sinni fyrr. Sá sem helst
stendur í vegi fyrir því að þeir
kumpánar geti haft það verulega
gott í subbulegum þægindum skot-
grafanna er Melchett kafteinn. Kaf-
teinninn telur æðsta stig mann-
legrar reisnar aö deyja í bardaga.
Þarna er einnig fávitinn Darling
kafteinn aðstoðarmaður Melchett.
„Blackadder hefur tekið nokkr-
um breytingum frá þvi fyrstu þætt-
irnir voru gerðir,“ segir Rowan
Atkinson sem leikur aðalhlutverk-
ið. „í fyrstu var hann hreinræktað
fífl en hann hefur tekið sig á. Hann
r ^
OLYMPUS
VIDEOTÖKUVÉLAR
ALSJÁLFVIRKAR
UÓSNÆMI: 7 LUX - AÐDRÁTTAR-
LINSA: 8 x ZOOM - SJÁLFVIRKUR
FOCUS — TÍMA- OG DAGSETNINGAR-
MÖGULEIKAR — TITILTEXTUN: 5 LITIR
— LENGD UPPTÖKU: 90 MÍNÚTUR — RAF-
HLAÐA/HLEÐSLUTÆKI/MILUSNÚRA FYR-
IR SJÓNVARP OG MÝNDBANDSTÆKI —
VEGUR AÐEINS: U KG.
SÉRTILBOÐ KR. 59.950 STGR.
CS3 Afborgunarskilmálar [j|]
VÖNDUÐ VERSLUN
ÁTT ÞÚ VIN
innanlands
eða erlendis sem þú vilt
láta eiga
kyrrðarstund
um jólin?
OLA
SÁLMAR
ÍSLENSKIR
JÓLASÁLMAR
með kirkjukór
Lágafellssóknar.
Kemur þægilega
á óvart.
MELISSA
örbylgjuofn
kr. 16.995
NOVA
djúpsteikingarpottar
frákr. 8.200
KITCHEN AID
hrærivélar
kr. 22.686
MARK
vasadiskó
frákr. 2.200
&SAMBANDSINS
HOLTAGÖRÐUM SÍMI 68 55 50
VIÐ MIKLAGARÐ