Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.1990, Qupperneq 46
54
LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 1990.
Ferdir
Kaupmannahöfn:
Evrópa:
Snjónum kyngir niður
Samkvæmt tíðindum frá síöustu
viku snjóar enn í Evrópu og snjónum
kyngir niður á helstu skíðasvæðun-
um í Ölpunum. Þetta þykja góð tíð-
indi fyrir skíðaunnendur sem sjá
fram á góða vertíð í Evrópu eftir þrjá
snjólausa vetur í röð.
Gestgjafar á skíðastöðum Evrópu
núa saman höndunum og setja sig í
stellingar til þess að taka móti stærri
hópi gesta en þeir hafa séð í mörg ár.
-Pá
Ferðaskrifstofa Vestfjarða:
Kvartmilljón
fyrir upplýsingar
Hlynur Þór Magnússon, DV, ísaf.:
Upplýsingamiðstöð ferðamála hef-
ur ákveðið að veita Ferðaskrifstofu
Vestijarða 250 þúsund króna styrk
fyrir veitta þjónustu við gesti og
gangandi' síðastliðið sumar. Er
þetta viðurkenning á því að ferða-
skrifstofan sé upplýsingamiðstöð
en aðstandendur hennar hafa löng-
um bent á þann mikla tima sem fer
í að sinna almennri upplýsinga-
miölun án þess að greiðsla komi
fyrir.
Iitlahafmeyjan
verður kyrr
Þeir sem standa fyrir þátttöku
Dana í heimssýningunni í Sevilla á
Spáni 1992 töldu sig hafa fengið frá-
bæra hugmynd til þess að tryggja
aðsókn að danska básnum. Það átti
að taka litlu hafmeyjuna af stalli
sínum við Löngulínu og koma
henni fyrir á sýningarsvæðinu.
Þetta hefði þýtt fjögurra til sex
mánaða fjarveru fyrir þetta fræg-
asta tákn Kaupmannahafnar.
Nú hefur verið falliö frá þessum
áformum og þeir sem heimsækja
Kaupmannahöfn á komandi árum
geta andað léttar. Sú litla verður á
sínum stað. Yfirvöld, sem ráða
skipulagsmálum í Kaupmanna-
höfn, þvertóku fyrir að þetta yrði
látið eftir skipuleggjendum sýning-
arinnar.
Áætlanir gera ráð fyrir að á
næstu tveimur árum fjölgi ferða-
mönnum, sem heimsækja Kaup-
mannahöfn, um 118.000. Tæplega
8.000 heföu hins vegar hætt við að
koma ef hafmeyjan hefði skroppið
til Spánar.
„Mjög margir ferðamenn koma
til Kaupmannahafnar bara til þess
að fara í Tívolí og sjá litlu haf-
meyjuna," sagði Lars Engberg,
yfirmaður skipulagsmála í Kaup-
mannahöfn. „Okkur var boðiö að
fá eftirlíkingu af hinni raunveru-
legu hafmeyju til þess að setja á
steininn við Löngulínu á meöan en
mér finnst að miklu betra sé að
senda eftirlíkinguna til Spánar."
-Pá
FYLLINGÁREFNI
Höfum fyrirliggjandi grús á hagstæöu verði.
Gott efni, lítil rýmun, frostþolið og þjappast
vel- Ennfremur höfum við fyrirliggjandi
sand og möl af ýmsum grófleika.
Sævarhöfða 13 - sími 681833
Fleiri ferðamenn sóttu Vestfirði heim í sumar en nokkru sinni áður.
Vestfirðir:
Westem Horizon
Hlynur Þór Magnússon, DV, ísafírði:
Ferðamálasamtök Vestfjaröa hafa
á síðustu árum beitt sér fyrir ýmsum
nýjungum í feröaþjónustu á Vest-
fjörðum. Þar má nefna skipulagða
ferð undir nafninu Western Horizon
sem komið var á síðasliðið sumar.
Að.sögn formanns samtakanna, Ás-
laugar Alfreðsdóttur, hótelstjóra á
ísafirði, beittu Ferðamálasamtök
Vestfjarða og Vesturlands sér fyrir
þessum ferðum til þess að sýna öðr-
um ferðaskrifstofum fram á aö hægt
væri að efna til ferða um Vestfirði
en á því virtist sumum leika nokkur
vafi. Samtökin tóku þarna fjárhags-
lega áhættu en uppskáru erfiði sitt
því ferð þessari var vel tekið þegar
hún var kynnt fyrir ferðaskrifstofum
í haust og verður hún með í dæminu
næsta sumar líka. Þetta kom m.a.
fram á aðalfundi Ferðamálasamtaka
Vestfjaröa fyrir skömmu.
„Ég held að ferðaskrifstofur séu
farnar að skammast sín fyrir að hafa
ráðið ferðalöngum frá að sækja Vest-
firöi heim af því að þar væri alltaf
kuldi og þoka,“ segir Pétur Bjarna-
son sem sæti á í stjórn Ferðamála-
samtakanna. „Það eru allir samm-
mála um aö það hafi verið meiri
umferð ferðamanna um Vestfirði síð-
asta sumar en nokkru sinni fyrr. Við
verðum einnig vör við meiri áhuga
sveitarstjórnarmanna á aö leggja
ferðamálum lið og þaö kom meðal
annars fram í máli Haraldar L. Har-
aldssonar bæjarstjóra á ísafirði á
aðalfundinum,“ sagði Pétur.
En Ferðamálasamtökin hafa enn
næg verkefni og eitt af þeim er að fá
ferðamálafulltrúa í starf á Vestfjörö-
um. Ekki er langt síðan annað bar-
áttumál þeirra komst í höfn: tjald-
stæði viö Menntaskólann á ísafirði.
Þau hafa þegar sannað gildi sitt.