Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.1990, Qupperneq 64
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Augiýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
Frjálst,óháð dagblað
LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 1990.
Byggung í Hæstarétti:
Kaupandigreiði
„bakreikninginn“
, Hæstiréttur hefur dæmt í máli sem
Byggung höföaði á hendur íbúöar-
kaupanda vegna lokagreiöslu af íbúö
sem maðurinn keypti af byggingar-
fyrirtækinu við Seilugranda í
Reykjavík - svokölluöum „bakreikn-
ingi“.
Héraðsdómur var staðfestur en
málskostnaður látinn niður falla.
Manninum var gert að greiða 118
þúsund krónur með verðbótum og
vöxtum frá 1987. Byggingarsam-
vinnufélagið stefndi nokkrum aðil-
um vegna greiðslna af íbúðum sem
kaupendur kölluðu „bakreikninga“.
Umræddur maður gerði samning
við Byggung árið 1981 ásamt fjölda
annarra kaupenda. 1986 kom bak-
reikningur sem kaupandinn greiddi.
'Síðar kom annar reikningur sem
maðurinn ákvað að láta reyna á fyr-
ir dómstólum. Birgir Jóhannesson
sagði við DV í gær að með dómnum
væri allt eins hægt að gera ráð fyrir
að Byggung gæti nú sent bakreikn-
inga að vild. „Samt fara margir verr
út úr þessum reikningum en ég,“
sagðihann. -ÓTT
LOKI
Var hann bláeygður?
Kona fann óvæntan „gest“ 1 íbúð sinni í Holtunum 1 gær:
Sá snák skríða eftir
baðherbergisgólfinu
- Við bara horfðumst í augu, sagði meindýraeyðirinn
Ungri konu, sem býr í Holtunum Konan lokaði baðherbergishurð- Þykktin er eitthvað svipuð og sver- smyglað til landsins en dýrið síðan
í Reykjavík, brá heldur óþyrmilega inni á eftir sér og hringdi á mein- leiki blýants,“ sagði Guðmundur komistmeðrörumeðaleiðsluminn
i gærmorgun þegar hún sá hvar dýraeyði fráReykjavikurborg. Þeg- Björnsson meindýraeyðir í samtali í ofangreinda íbúð. Þeir sem gerst
snákur skreið eftir baðherbergis- ar hann kom á staðinn var „ormur- við DV þegar hann var spurður þekkja til svona dýra töldu að hér
gólfmu í íbúð hennar. Þegar hún inn“ horfxnn. Hann kom þó i ljós hvaða dýr hér væri um að ræða. væri um meinleysiskvikindi að
fór inn í baðherbergið sá hún eitt- skömmu síðar. Guðmundur segist vera með öllu ræða - þó beri að fara að öllu með
hvað sem líktist ormi. í fyrstu taldi „Ég sá höfuðið á honum þegar óvanur að fást við svona dýr, enda gát.
hún að þarna hefði verið „einhver hann gægðist út um gat við sturtu- felst starf hans aðallega í að eyða : -ÓTT
30M0 sentímetra langur ormur botninn. Við horfðumst bara í skorkvikindum. Hami telur að
með guiri rönd á hakinu.“ augu.Þettalíktisthelstlitlumsnák. snáknum hafi einhvern tíma verið
„Stúfur var sá fjórði, stubburinn sá ..Stúfur var stundvís í gær og kom til byggða á réttum tíma. Hann kom
að sjálfsögðu við á Þjóðminjasafninu eins og bræður hans hafa gert undanfarna daga. Börnin, sem heimsótt
hafa Þjóðminjasafnið, hafa verið mjög hrifin af bræðrunum og ekki síst af Stúfi karlinum. Ekki er þó laust við feimni
i svip þessara barna þegar Stúfur gerir sig kumpánlegan. DV-mynd GVA
Síbrotamaður:
Dæmdur í 18
mánaðafangelsi
Hæstiréttur hefur dæmt 34 ára
mann í átján mánaða fangelsi fyrir
skjalafals og fleiri afbrot. Maðurinn
hefur margoft komið við sögu lög-
reglu vegna tékkafalsana, þjófnaðar-
mála og ölvunaraksturs.
Hæstiréttur staðfesti dóm Saka-
dóms Reykjavíkur frá því fyrr á ár-
inu en þar var hann dæmdur til að
sæta sömu refsingu. Hæstiréttur
dæmdi manninn til að greiða áfrýj-
unarkostnað ásamt 45 þúsund krón-
um til skipaðs verjanda síns og sömu
upphæðar til saksóknara. Dóminn
kváðu upp hæstaréttardómararnir
Guðmundur Jónsson, Guðrún Er-
lendsdóttir, Haraldur Henrysson,
Hjörtur Torfason og Hrafn Bragason.
Sakborningurinn á annan dóm yfir
höfði sér í héraði. Hann hefur stund-
að að fara á vinnustaði og stela veskj-
um og fleiru. Upp úr krafsinu hefur
hann meðal annars haft ávísanahefti
og greiöslukort sem hann hefur síðan
misnotað. Fimm ákærur hafa verið
gefnar út á hendur manninum vegna
fjölda annarra afbrotamála og verða
þau tekin fyrir í Sakadómi Reykja-
víkurínæstuviku. -ÓTT
Veðrið á sunnudag og mánudag:
Kólnandi veður eftir helgi
Á sunnudag er gert ráð fyrir suðvestanhvassviðri eða stinningskalda. Von er á skúrum eða slydduéljum suðvestan- og
vestanlands en úrkomulaust verður annars staðar. Hiti verður á bihnu 1 til 3 stig. Á mánudag verður fremur hæg suðvestan-
átt og smáél suðvestan- og vestanlands en úrkomulaust annars staðar. Frost verður á bilinu -2 til -4 stig.