Þjóðviljinn - 24.12.1968, Side 39

Þjóðviljinn - 24.12.1968, Side 39
hefur auðvitað tekið það eftir Lárusi Hansen. Að þessari fyrstu gjörð Heimskringlu komu íslend- ingar ekki neitt, og þegar hún var, eins og önnur íslenzk fornfræði, komin í Kaupmannahafnarhá- skóla og Arngrímur lærði kominn til sögunnar, þá vissi hann ekki til þess, að Snorri Sturluson hefði samið neina konungabók. Það hefur enginn maður á íslandi nokkurn tíma getað borið vitni um að Snorri hafi samið bókina, það mundi því flestum þykja að málið væri rannsóknar- efni og frekast fyrir íslendinga, er svo vel margt vita um forn- bókagjörð. Það hefur ekki orðið, nema þeim Konráð Maurer og Guðbrandi Vigfússyni þótti það ekki einsýnt mál, að bókin væri eftir Snorra, en þá og fleiri fræga og góða menn þykir lítið að marka í fræðum nú á tímum. Hér er ekki rúm til að gera grein á útgáfum Heimskringlu, en rétt er að geta þess, að svoköll- uð Fornritaútgáfa gaf bókina út, að forsjá íslenzks vísindamanns, vel að merkja nútíðarvísinda- manns. Er þar fræðimola um bók- ina að finna, sem og víða annars- staðar. En þótt hér sé mikið mál á Snorri ferð, þá er það byggt á svo mikl- um misskilningi, að það kemur að engum notum um gjörð bókar- innar; þar er ekki minnzt á svo mikið sem líkur fyrir því að Snorri hafi samið bókina, þar skal trúin ein gilda. „Það þykir full- víst að Snorri hafi samið bók- ina" segir þar. Það er látið nægja en sagt þó í vísindamannsins hóg- værð „að fyrir því liggi ekki svo augljós rök" en þau rök eru hvorki sýnd né rýnd. Þar segir þó að eitt liandritið byrji þann- ig: „Hér hefur upp konunga sög- ur eftir sögu Ara prests hins fróða". „En á þeim orðum verður ekkert mark tekið" segir þessi út- gefandi, og gildir nú gamla skrift- in ekki mikið. Mundi margur hafa talið, að fram hjá þessum vitnisburði um bókina yrði eigi með öllu gengið, ef vísindunum ætti að þjóna, en þá er það að gömul speki gildir að ekki bregður mær vana sínum. ★ En nú er að snúa sér að því litla, sem hægt er að segja f stuttri blaðagrein. Bókin byrjar á for- mála og formálinn byrjar þannig: — „Á bók þessi lét ek rita fornar frásagnir um höfðingja þá, er ríki hafa haft á Norðurlöndum ok danska tungu hafa mælt." — Það þarf ekki mikla fornmennta þekkingu til að greina það, að þetta er alls ekki skrifað á 13. öld, heldur með því fyrsta sem ritað er á íslandi, og sanna það orðin „bók þessi" í stað þessari og höfðingjar í stað konunga. Þótt þetta sé merkilegt, sker þó annað enn frekar í augu í formálanum. „Lét ek rita", segir þar, en stuttu síðar: „En þótt vér vitum eigt sannandi", „þá vimm vér dæmi til". Hér er allt í einu eintölu for- nafnið ek orðið að fleirtölu for- nafni vér. „Tökum vér það allt fyrir satt, er í þeim kvæðum finnst um ferðir þeirra og orust- ur'\ Og síðan um Ara fróða. „Ok þykkir mér hans saga öll merki- legust". Og formálanum lýkur með þessum orðum. „En kvæðin þykkja mér sízt úr stað færð", og tekur hér til hins upphaflega mál- fars í formálanum. Hér er það Ijóst mál að tveir aðilar hafa um formálann fjallað með nokkru millibili á tíma, því ósamkvæmni í texta verður óvíða vart í forn- bókum íslendinga, þótt þess gæti í Heimskringlu. Eftir þessu hafa fræðimenn tekið, þó ekki útgef- andi fornritaútgáfunnar, en þeir hafa bara starað á það, og mér ferst víst ekki að gera annað frek- ar um stutta smnd. Sjálf bókin byrjar svo á viss- Benedikt Gíslason. um flokki konunga, er kallast Ynglingar og var Óðinn þeirra fyrstur eða Ingvi, sem hann kaU- ast hér. Er þetta eingöngu ættar- saga í karllegg, og eingöngu smá- konungar sem taldir em og fáir einir af slíkum á þessum tíma. Þetta er sannkallað konungatal og búa flestir í Svíþjóð, og nær til Hálfdánar svarta, föður Haraldar hárfagra og er Hálfdán svarti 17. ættliður frá Ingva. Nú segir frá því í formálanum, að Ari fróði hafi samið konungatal og sjálfur segist Ari hafa samið konunga- ævi í formálanum fyrir íslend- ingabók, og segir, að það rit hafi fylgt hinni fyrri fslendingabók, og þar með hafi fylgt á ættartala. Þessari ættartölu eykur Ari við íslendingabók, sem við höfum nú, og em þar taldir konungarnir, sem saga gengur af í Ynglingasögu Heimskringlu. Það er skrítið ef mönnum þarf að blandast hugur um það, eftir þessar upplýsingar, að Ynglingasaga er konungaævi Ara fróða. Ynglingasaga endar á Ólafi Geirstaðaálfi, er var bróðir Hálfdánar svarta, fyrir utan Iítils- háttar grein á Rögnvaldi heiðum- hára. Þessa ættartölu kallar Ari Iangfeðgatal í bókarauka fslend- ingabókar, og er hans eigin ættar- tala allt frá Óðni, en þar sleppir Ari konungaævunum er Ólafur er, Geirstaðaálfur, því hann er forfaðir Ara, en ekki Hálfdán svarti og síðastur konungur á Norðurlöndum af forfeðrum Ara, í formálanum segir beinum orðum, að þessi, sem lét rita bók- ina, hefur konungatal Ara með höndum. Það sem enn er athug- Framhald á bls. 81. JÓLABLAÐ - 39
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.