Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1952, Page 10
10
Úr tilraunastöðinni 1904.
með sáningu grasfræs. Tilraunir voru og þá gerðar á nokkr-
um stöðum með áburð, og segir Sigurður Sigurðsson það
vera í fyrsta sinni, sem tilbúinn áburður hafi verið reyndur
á Norðurlandi. Þá var einnig byrjað á gróðursetningu trjáa
í landi félagsins, undirbúin ræktun gulrófnafræs, tilraunir
gerðar með kartöflur og hafin siifnun á innlendu grasfræi.
Sigurður ferðaðist þegar á fyrsta ári félagsins um mikinn
hluta Norðurlands, leiðbeindi bændum um ræktunarfram-
kvæmdir, og kynnti sér nákvæmlega hag landbúnaðarins,
einkum ræktunarmálanna. Er ferðaskýrsla hans harla fróð-
leg, og sýnir hún ljóslega, hversu mikið átak þurfti að gera,
til þess að koma ræktunarmálunum í viðunanlegt horf. Þá
valdi hann einnig staði og sagði fyrir um undirbúning fjög-
urra héraðstilraunastöðva, sem vera skyldu eins konar útibú