Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1952, Page 17

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1952, Page 17
17 eftir í Ræktunarfélaginu, en sérsamband Eyfirðinga og vest- ustu hreppa Suður-Þingeyjarsýslu var stofnað 1932. En áður en það yrði var gerð skipulagsbreyting á Ræktunarfélaginu, sem fékk lagagildi 1932. Var þá lokið öðru tímabili í sögu félagsins. Samkvæmt hinni nýju skipan 1932 varð Rf. Nl. aftur félag einstaklinga, þ. e. ævifélaga, því að ársfélagar voru löngu úr sögunni. Til þess var ætlast að ævifélagar mynduðu deildir, sem að öllum jafnaði skyldu ná yfir eitt sveitarfélag, þó gat deildarsvæðið náð yfir stærra svæði, ef hentugt þætti. Hver deild hafði rétt til að senda einn fulltrúa á aðalfund fyrir hverja 20 félagsmenn eða helmingsbrot af 20. Til þess að halda uppi tengslunum við búnaðarsamböndin var svo kveðið á, að formenn búnaðarsambandanna og búnaðar- þingsfulltrúar þeirra hefðu fidltrúaréttindi á aðalfundum félagsins, ennfremur að búnaðarsambiindunum skyldi gef- inn kostur á að birta skýrslur um starfsemi sína í Ársritinu gegn vægu gjaldi. Félagssvæðið skyldi vera óbreytt. Það kom brátt í ljós að þessi nýja skipan var einungis að nafninu til. Búnaðarsamböndin utan Eyjafjarðar neyttu lítt réttar síns að senda fulltrúa á aðalfundi, og eftir 1938 sendi ekkert þeirra skýrslur sínar til birtingar í Ársritinu nema Búnaðarsamband Eyjafjarðar. Var félagið þannig að miklu leyti höggvið úr tengslum við þau, sem þó engan veg- inn var tilætlunin, þegar breytingin var gerð. Fáar ævi- félagadeildir voru stofnaðar, og starfsemi þeirra varð lítil, sem vænta máti, þar sem þær höfðu engin sérstök viðfangs- efni. Þær fáu deildir, sem stiirfuðu, liættu brátt að senda full- trúa á aðalfund, nema Akureyrardeildin, sem var langfjöl- mennust. Varð það oft svo í reyndinni, að fulltrúar liennar sátu einir aðalfundinn. Félagatalan hélzt þó lengstum í horfinu, en nýir félagar bættust engu síður við utan félags- svæðisins en innan. Tekjur félagsins af ævitillagasjóði voru sáralitlar, enda óx sjóðurinn hægt, því að tillagið var lágt 2

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.