Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1952, Page 57

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1952, Page 57
57 jarðræktarmenn eða búfjárræktarmenn, eftir eins vetrar nám. Þótt það verði að viðurkennast, að íslenzkur landbún- aður sé og verði mest megnis á báðum þessum sviðum sam- tímis, getur þó upplag nemendanna verið svo einhliða, að slík námsskipting sé réttmæt. •/. Það er athugunarvert, hvort nemendum skólanna er ekki íþyngt um of með skyldunámsgreinum, en í það horf hefur áreiðanlega stefnt að undanförnu við flesta skóla. Því má ekki gleyma, að veigamikill þáttur alls skólastarfs er vakningin og sjálft skólalífið, og því starfi þarf að ætla rúm, og það er hlutverk góðra kennara og góðrar skólastjórnar að stuðla að því að þetta rúm sé fyllt þannig, að það verði nem- endunum til þroska og þekkingarauka. 5. Verknámið á líklega að breytast verulega. I stað þess, sem nú gildir, eiga að koma 2—4 vikna námsskeið og sé hvert þeirra lielgað einu viðfangsefni. Þessum námsskeiðum má dreifa bæði á vetur og sumar. A vetrum má hafa námsskeið í ýmsum iðngreinum, smíðum ýmiss konar, bókbandi o. s. frv. Ennfremur námsskeið í hirðingu, viðgerð og meðferð véla, hirðingu búfjár, tamningu og ef til vill fleiru. A sumrin koma svo námsskeið í framræslu, jarðvinnslu, garðyrkju, heyvinnu o. fl. Krefjast má þess, að hver nemandi taki þátt í vissri tölu námsskeiða eftir frjálsu vali. Þá geta þeir valið úr það, sem þeir hafa mestan áhuga fyrir, og þurfa ekki að stunda verknám í því, sem þeir ef til vill hafa numið heima, áður en þeir komu í skólann. Þar geta þeir látið bóknámið nægja. Sá þáttur búnaðarfræðslunnar, sem fram fer í bændaskól- unum, er aðeins nokkur hluti hennar og nær til tiltölulega fárra. Meginhluti búnaðarfræðslunnar fer fram í gegnum búnaðarrit, erindaflutning í útvarpi, á námsskeiðum, bænda- fundum, við ýmsa skóla eða stofnanir og í persónulegum við- tölum. Fæstir gera sér ljósa grein fyrir, hve drjúg og víðtæk

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.