Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1952, Page 60

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1952, Page 60
60 búnaðarfélög. Með þessari tilhögun væri hægt að dreifa fræðslunni yfir miklu lengra tímabil og skapa henni miklu betri aðstiiðu heldur en unnt er að fá út í einstökum bún- aðarfélögum. Ennfremur væri auðveldara að fá starfskrafta og auka fjölbreytnina á þennan hátt. Myndasýningar af ýmsu tagi eru mikið í móð og vinsælar. Fólk vill horfa frekar en hlusta. Skemmtiatriði, önnur en þurra búfræði, mætti hafa til þess að fjörga upp og til þess að hæna að yngri kyn- slóðina. 2. Þrátt fyrir þetta, getur verið réttmætt, þar sem áhugi er fyrir því, að halda fræðslufundi út í búnaðarfélögunum, en þá þarf að breyta tilhögun þeirra. Það má ekki blanda saman fræðslustarfsemi og öðrum félagsstörfum. Fundirnir gætu verið blandaðir fræðslu- og skemmtifundir. Fræðsluatriðin gætu aðallega verið í því fólgin að svara fyrirspurnum og sýna myndir og útskýra þær, þar sem hægt er að koma slíku við. Fámennari búnaðaríélög ættu að reyna að sameina sig um slík fundarhöld. Fundirnir eiga að vera almennir, ekki aðeins bundnir við bændur eða búnaðarfélaga. Fundirnir eiga að geta hafizt fyrr en nú tíðkast, t. d. um kl. 10 árdegis, en þá þarf að gera ráðstafanir til þess, að fólk geti fengið hressingu á fundarstaðnum. Kvöldfundir geta einnig komið til greina. 3. Ástæða er til að vekja athygli á tveimur eða þremur nýj- um fyrirbærum í búnaðarfræðslu, sem enn eru ung að árum en lofa góðu. Eitt eru námsskeið þau fyrir unga menn, sem haldin hafa verið á vegum Búnaðarsambands Suðurlands og stjórnað hefur verið af ráðunautum sambandsins. Nántsskeið þessi hafa staðið í nokkrar vikur, og hafa nemendurnir feng- ið tilsögn í helztu greinum landbúnaðarins og þótt ná mikl- um árangri á skömmum tíma. Áþekk námsskeið mætti auð- vitað halda í ýmsum sérgreinum landbúnaðarins. Annað atriðið er búnaðarfræðsla við framhaldsskóla ýmiss konar, sem leitt hefur til þess, að búfræðilega

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.