Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1962, Síða 16
lf>
Stuðlamyndin sýnir, að hún er illa undirbúin eða vélmjalt-
irnar eru hafnar of fljótt. Kýrin selur ekki fullkomlega fyrr
en á 3. mínútunni. Svo virðist sem mjaltarinn komi ekki
til þess að aðstoða vélina fyrr en á 5. mínútunni, og vélin
er tekin of seint af kúnni. Mjaltirnar hafa tekið 6 mínútur.
Hálfum mánuði síðar eða 29/9 eru mjaltirnar miklu betri.
Undirbúningurinn hefur verið á réttum tíma og mjöltun-
um lýkur á eðlilegan hátt. Mjaltatíminn hefur stytzt um 2
mínútur eða 33%.
Svona línurit sannfærir mjaltarann um gildi þess að
mjólka rétt og sýnir honum enn fremur, að ef til vill er
hægt að ná enn betri árangri.
Athyglisverðast við þetta dæmi, en engan veginn óal-
gengt, er það, að samtímis því, sem mjaltatíminn er orðinn
styttri og mjólkurmagnið á mínútu hefur aukizt, þá hefur
kýrin grætt sig úr 7.5 kg í 8.3 kg. Þetta undirstrikar þá
staðreynd, að betri mjaltir auka nær ætíð afköstin.
Mjaltavélin.
Vél, sem látn er starfa á mjólkurfærum kýrinnar, verður
að starfa af fyllstu nákvæmni, til þess að valda ekki tjóni.
Þetta gildir í raun og veru um alla hluta mjaltavélarinn-
ar, þótt hér verði einkum rætt um þá hluta hennar, sem
koma í beina snertingu við kvina og valda mestu um það,
hvernig áhrif mjaltirnar hafa á hana.
Soghaninn.
Sogdælan veldur nauðsynlegu sogi í leiðslunum og sér
um, að það sé alltaf meira en nægilegt. Spenarnir mega
hins vegar ekki verða fyrir óþarflega miklu sogi. Þess vegna
eru leiðslurnar útbúnar með sérstiikum ventli — sogventl-
inum —, sem hleypir lofti inn í leiðslurnar ef lágþrýsting-