Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1962, Síða 37
37
þar sem lílraen sambönd óhreinindanna, binda meginhluta
þess súrefnis, sem losnar úr klórsamböndunum og á að
drepa bakteríurnar.
Kostir klórsambandanna hafa gert þau eftirsótt við dauð-
hreinsun á mjólkuráhöldum hjá framleiðendum mjólkur-
innar. Þó er því ekki að neita, að klór hefur líka sínar
skuggahliðar. Þannig er klór næstum eina efnið, sem vald-
ið getur tjóni á ryðfríu stáli. Klór tærir líka afumín svo
yfirborð þess verður ójafnt og holótt. Að lokum hefur klór
tilhneigingu til að stuðla að steinmyndun í mjaltatækjun-
um.
Saltpéturssýra. Því meir, sem fortinað járn og kopar-
blendingur hverfa úr sögunni í gerð mjólkurtækja, en í
staðinn kemur ryðfrítt stál og alumín, verður mögulegt að
nota sterkari dauðhreinsunarefni.
í því sambandi hefur saltpéturssýra reynzt hafa ýmsa
kosti. Hún er mjög dauðhreinsandi, og sé hún notuð á rétt-
an hátt hverfur öll steinsöfnun algerlega úr mjaltavélum
og mjólkuríötum. Steinsöfnunin torveldar þvott og dauð-
hreinsun, svo þetta atriði léttir hirðinguna og er heilbrigð-
islega séð mjög til bóta. Saltpéturssýran heldur alumíni og
ryðfríu stáli sléttu og gljáandi og sem nýju, í stað þess að
gera það óskyggnt og hrjúft, eins og klórinn gerir.
Ókostir eru þó líka nokkrir: Salpéturssýran brennir og
verður því að notast með mikilli varúð. Sterka sýru má
aldrei blanda með öðru en hreinu vatni. Saltpéturssýru má
aðeins nota á tæki, þar sem allir málmhlutar eru úr al-
umíni eða ryðfríu stáli. Gúmmíin verða að vera af góðri
gerð til þess að þola sýruna og tækin eiga að vera vet hrein
fyrir dauðhreinsunina. Ekki má nota saltpéturssýru við júg-
urþvott.
Þegar saltpéturssýrublanda er fullnotuð og henni er
fleygt, verður að minnast þess, að sýran getur smám saman
eyðilagt sementsgólf og niðurföll. Rétt er því að geyma