Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1962, Page 47
47
árabil og notast að einhverju leyti við ódýrar bráðabirgðar-
byggingar fyrst í stað. Mér er það ljóst, að þetta er óvinsælt
umræðuefni. Flestum fellur það illa nú á tímum, að rætt
sé um sparnað og það að leggja eitthvað á sig um stundar-
sakir, til þess að ná ákveðnu marki, er Hggur í nokkurri
fjarlægð.
Við skulum gera ráð fyrir jörð, þar sem allt þarf að
byggja frá grunni. Flestum mun þá þykja mest aðkallandi
að koma upp góðu, varanlegu íbúðarhúsi fyrir sig og fjöl-
skyldu sína og varla mun það þykja viðunandi minna en
3—4 góð herbergi, ásamt eldhúsi, búri, þvottahúsi og snyrt-
ingu ,með tilheyrandi göngum og geymslurúmi. Að sjálf-
sögðu verða svo að fylgja þessu flest þau þægindi, er nú-
tíminn gerir kröfur til, svo sem vatns- og skólpleiðslur,
miðstöðvarhitun, rafmagn o. s. frv.
Spurningin verður nú: Er þetta nauðsynlegt og fjárhags-
iega hyggilegt? Báðum spurningunum má svara neitandi.
Til samanburðar má benda á, að margar fjölskyldur í kaup-
stað verða að láta sér nægja til íbúðar 1—2 herbergi og eld-
hús jafnvel í kjallara, af því tekjurnar leyfa ekki rýmri og
dýrari íbúð. Og ég er sannfærður um, að frumbyggjar í
sveit geta vel bjargazt við eitt rúmgott herbergi og gott eld-
hús til bráðabirgðar, ásamt nokkuru geymslurúmi. Slíka
íbúð mætti gera á mjög einfaldan máta úr hverju því efni,
er handhægast væri og hendi næst, annað hvort sem sjálf-
stætt hús eða í hluta af húsrúmi, er síðar væri ætlað vax-
andi bústofni býlisins. Vel má gera slíka íbúð hlýja, raka-
lausa og fullkomlega heilsusamlega, þótt íburður sé ekki
meiri, og hún getur prýðilega fullnægt hlutverki sínu, ver-
ið hagkvæm og þægileg í notkun, þótt frumstæð sé. Auk
þessa skiptir meginmáli, að íbúðin sé ódýr og spari það
fjármagn, sem brýn þörf er fyrir í öðrum framkvæmdum
býlisins. Hlutverk hennar er ekki að vera varanleg, heldur
aðeins að leysa ákveðinn vanda á frumstæðan hátt. um
stundarsakir. Hún á að svara til þess íbúðarhúsrýmis, sem