Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1962, Page 100

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1962, Page 100
100 segir Eggert Ólafsson, þær hafa verið borðaðar með „harð- fiski, mjólk, flautum og smjöri". Á Suðausturlandi voru gerðar út langar ferðir til að safna hvannrótunum. Var það kallað að fara á rótarfjall Óbr. grasafjall). Enn hittist þetta örnefni á nokkrum stöð- um í Skaftafellssýslu. Öft var rótinni safnað svo hestburðum skipti og flutt heim á bæina, þar sem hún var þurrkuð og loks grafin í mold og geymd þannig til vetrarins. Hefur líklega verið farið í leiðangra þessa snemmsumars eða á vorin. Sums staðar virðist hafa tíðkazt, að borða njólana, svo sem á Mýrum vestra. Svo segir Eggert, að þar voru „stöngl- arnir skornir þvert yfir í sneiðar og étnir hráir, með nýju sméri eins og þeir koma fyrir af jörðunni“. Svipaðs siðar getur Linné frá Lapplandi. Njólinn mun vera beztur ungur. Er hann þá mjúkur og mergmikill. Hreinsa má af honum yzta lagið og borða síð- an merginn, sem er bragðgóður og hressandi. Með aldrin- um trénar stöngullinn og verður þá óætur. Loks má nota unga blaðstilka og blöð, sem annað græn- meti, en lítið mun hafa kveðið að slíkri notkun hér. Þess var áður getið, að hvönnin hafi verið orðin þekkt lækningajurt á miðöldum. Heimildir eru fyrir því, að hinn frægi Paracelsus hafi notað jurtina gegn pestinni (svarta- dauða) í Mílanó 1510. Síðan er hvannarinnar jafnan getið sem pestarmeðals. Skyldu menn tyggja rótina jafnan, til að koma í veg fyrir smitun. Hið sama gilti og um flesta smitnæma sjúkdóma, svo sem kvef og inflúenzu. Hefur trúin á læknisdóma hvannarinnar verið sterk víða um lönd, allt til þessa dags. Víða erlendis má fá hvannarætur í apótekum, en þær kallast á apótekaramáli radix angelicae. Þá er einnig seld hvanntinktura og hvannfræ. Hér á landi munu læknisdómar hvannarinnar fremur lít- ið hafa verið aktaðir, en þó munu læknisfróðir menn hafa
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.