Frjáls verslun - 01.10.1967, Qupperneq 8
Q
FKJÁLS VERZLUN
SKOÐANAKÖNNUN F.V.
NORRÆN SAMVINNA
Umræður um norræna sam-
vinnu eru engan veginn nýjar af
nálinni, en jukust að mun í sum-
ar, þegar deila SAS og Loftleiða
var sem mest í sviðsljósinu; fólki
fannst framkoma frændþjóðanna
ólík bræðraþeli því sem fjölyrt
er um í tyllidagaræðum og á sam-
norrænum mótum og fundum. Og
einhvern veginn þótti manni
norræn samvinna næsta fánýt þá
dagana, sem deilan var í há-
marki — eða var hér kannski að-
eins um stundarbræði að ræða?
Frjáls verzlun ákvað að kanna
hug fólksins til norræns samstarfs
og gerði drög að nokkrum spurn-
ingum.
Nú eru skoðanakannanir næsta
fátíðar hérlendis, og var það því
nokkrum vandkvæðum bundið að
undirbúa slíka skoðanakönnun,
svo að vel færi og mark yrði á
takandi. Torfi Ásgeirsson, starfs-
maður hjá Efnahagsstofnuninni,
varð blaðinu að miklu liði við all-
an undirbúning, en hann er einn
örfárra fslendinga, sem hafa aflað
sér þekkingar á skipulagi og úr-
vinnslu skoðanakannana, og miðl-
aði hann F.V. góðfúslega af þekk-
ingu sinni.
Að vísu var ljóst frá upphafi,
að eigi myndi unnt að leita til
þess hlutfallslega fjölda, sem
æskilegur er, eigi skoðanakönnun-
in að gefa nákvæma ' mynd af
vilja og afstöðu heillar þjóðar.
Var afráðið að einskorða þessa
könnun við 100 íbúa Reykjavíkur-
svæðisins og skyldu þeir valdir af
handahófi.
Auk þess, að svara var óskað
við spurningunum um norræna
samvinnu, var leitað upplýsinga
um aldur, atvinnu og menntun og
einnig athugasemda frá viðkom-
andi, ef einhverjar væru.
Starfsmenn F.V. hringdu síðan
af handahófi, og þegar náðst hafði
í einhvern fullorðinn, var hann
leiddur í allan sannleika um skoð-
anakönnunina og afstaða hans til
norrænnar samvinnu könnuð.
Aldur. Af þeim 100, sem svör-
uðu spurningum F.V., voru 67
karlar, en 33 konur. Var fólkið á
aldrinum 19—78 ára, og er aldurs-
skiptingin þessi:
19—35 ára 37
36—50 — 27
50—78 — 36
Störf. Fólkið er úr öllum stétt-
um, eins og sjá má af eftirfarandi:
Bílstjórar .......... . 4
Blaðamenn ............... 2
Eftirlaunamenn .......... 3
Flugmenn ................ 2
Forstjórar og fulltrúar . . 5
Hjúkrunarkonur .......... 1
Húsmæður ................27
Iðnaðarmenn .............12
Kaupmenn ................ 5
Kennarar, bókaverðir . . 6
Nemendur ............... 7
Sjcmenn ................ 2
Skrifstofufólk ......... 8
Stórkaupmenn............ 1
Tæknifræðingar ......... 1
Verkamenn .............. 7
Verkfræðingar .......... 1
Verzlunarmenn .. . . 6
Samtals 100
Menntun:
Barnaskólapróf ........ 22
Gagnfræðapróf
(þ. á m. unglingapróf) . . 43
Verzlunarskólapróf
(almennt og stúd.pr.) . . 13
Stúdentspróf úr
menntaskóla ........... 8
Háskólapróf ............ 7
Samvinnuskólapróf ... 1
Kennaraskólapróf ....... 5
Kvennaskólanám........ 1
Samtals 100
Athygli skal vakin á því, að
miðað er við síðasta próf, sem við-
komandi hefur tekið, jafnvel þótt
Hvort er norræn samvinna í orði eða á borði?