Frjáls verslun - 01.10.1967, Blaðsíða 24
24
FRJÁLB Verzlljn
Stjórn Loftlei'öa: Kristinn Olsen (lengst til vinstri), Einar Árnason,
Kristján Guðlaugsson, Alfreð Elíasson, Sigurður Helgason.
varð það til þess, að Kristján hélt
að sér höndum í kosningabarátt-
unni. En eftir að kom til misklíð-
ar msð honum og aðaleigendunum
vegna forsetakosninganna, ákvað
hann að hætta hjá Vísi, endahafði
hann ýmsum öðrum verkefnum að
sinna.
Kristján rak um þessar mundir
iögfræðiskrifstofu jafnframt störf-
um sínum hjá Vísi. Hann hafði
gegnt formennsku í Málflutnings-
mannafélagi íslands, sat í Yfir-
skattanefnd Reykjavíkur og tók
þátt í stjórn og rekstri nokkurra
fyrirtækja. Var hann meðal hvata-
manna að stofnun Hvals h.f. í
Hvalfirði, og hefur setið frá upp-
hafi 1 stjórn félagsins. Hann situr
nú í stjórn Félagsprentsmiðjunnar
h.f. og Anilínprents h.f. og allmörg-
um öðrum fyrirtækjum. En mesta
reynslu í rekstri fyrirtækja telur
hann sig hafa fengið, er hann
gerði út togarann íslending, og
hafi sú reynsla orðið honum,
ásamt lögfræðinni, að mestu liði
við störfin hjá Loftleiðum.
IV.
Eitt af þeim málum, sem Kristj-
án tók að sér var málið fyrir þá
Alfreð Elíasson og Kristin Olsen,
eins og áður var frá greint. Og
samskipti þeirra félaga enduðu
með því, að Kristján gekk inn í
rekstur félagsins og varð stjórnar-
formaður Loftleiða árið 1953 og
hefur verið það síðan.
Matthías Jochumsson átti sér
eitt sinn þá ósk heitasta að verða
kaupmaður og geta séð nafn sitt
á stóru skilti fyrir ofan búðar-
dyrnar. Hann varð stórskáld.
Kristján Guðlaugsson óskaði sér
að verða skáld, en varð fram-
kvæmdamaður og stjórnarformað-
ur stærsta fyrirtækis landsins.
Þannig fer oft öðruvísi en ætlað
er í fyrstu, og stundum hafa þeir,
sem náð hafa lengst í starfi, innst
inni viljað allt annað.
Er Kristján er inntur eftir því,
hvort hann vildi heldur hafa orð-
ið skáld og fagurkeri en fram-
kvæmdamaður og lögfræðingur,
yppir hann öxlum og brosir að
jafnkjánalegri spurningu. En þó
er hann enn sami hugsjónamað-
urinn, sem eitt sinn kvað róman-
tísk ljóð.
Ýmsir þeir, sem náð hafa langt
í lífinu, eru sama marki brenndir:
áræðnir, djarfir, duglegir ogvilja-
sterkir. Þeir, sem þekkja Kristján
Guðlaugsson, segja hann hafa
þessa hæfileika til að bera í ríkum
mæli, en kveða hann jafnframt
samvinnuþýðan og þægilegan í
umgengni við fólk. Árangur hans
í lífinu stafi ekki minnst af þess-
um kostum.
Loftleiðir h.f. hafa eflzt og
styrkzt jafnt og þétt síðan 1953.
Velta félagsins var nálega 950
milljónir króna s. 1. ár.
Þegar Kristján er spurður að
því, hver sé eiginlega hlutur hans í
uppbyggingu og rekstri Loftleiða,
lætur hann ekkert uppi; segir,
að þetta hafi þróazt, stjórnin hafi
verið samstillt og þegar Loftleiðir
hófu millilandaflug hafi tíminn
verið heppilegur.
Stjórnendur Loftleiða h.f. eru
allir færir menn, uppfylla ítrustu
skyldur og aldrei hefur borið
skugga á samvinnuna, sem hefur
varað í 14 ár. Völdu starfsliði á
félagið einnig á að skipa.
En verkin sýna merkin.