Frjáls verslun - 01.10.1967, Síða 45
IFRJÁLS VERZLUN
45
ars vegar kostnaður við gerðhenn-
■ar og hins vegar greiðsla til sjón-
varpsins fyrir flutning hennar.
Hvað fyrra atriðið áhrærir, erþað
vitanlega mjög misjafnt, hver
kostnaður við gerð auglýsingar
verður. Þar skiptir meginmáli,
hvort um er að ræða kyrr- eða
kvikmyndir. Sé um auglýsinga-
kvikmynd að ræða, þarf að inna
af hendi greiðslu til myndatöku-
og hljóðupptökumanna, aukþeirra
sem fram koma í auglýsingunni
eða flytja textann með henni. Má
gera ráð fyrir, að tilbúningur
vandaðrar auglýsingar af þessu
tagi kosti nokkra tugi þúsunda.
Sú leið er einnig íarin að fá hing-
að erlendar auglýsingakvikmynd-
ir og setja við þær íslenzkt tal,
og gefur það augaleið, að sá aug-
lýsingaháttur er mun ódýrari. í
þriðja lagi eru það svo kyrrmynd-
irnar. Gerð þeirra er tiltölulega
ódýr og skiptir sá kostnaður aldrei
mörgum þúsundum.
Auglýsingaskrifstofa sjónvarps-
ins hefur skrá yfir nokkra aðila,
sem fást við gerð sjónvarpsaug-
lýsinga og skiptir þar í tvö horn
eftir því, hvort um er að ræða
gerð kyrr- eða kvikmynda. Þessir
aðilar eru:
Kyrrmyndagerð:
Myndiðn s.f., sími 35670
Þorvaldur Ágústsson, sími 36388
Kvikmyndagerð:
Ásgeir Long, sími 52277
Gísli Gestsson, sími 40309
Auglýsingastofa
Gísla B. Björnssonar, sími 11517
Gjaldskrá. Þá er að athuga kostn-
aðinn, sem fylgir flutningi auglýs-
inganna í sjónvarpi. í upphafi fer-
ils síns sendi sjónvarpið frá sér-
gjaldskrá, sem almennt þótti allt
of há, og var því gripið til þess á
miðjum síðasta vetri að lækkaalla
taxta um 25%. Gildir sú gjaldskrá
fram til 31. des. næstkomandi.
Gjaldskráin fer hér á eftir, og skal
tekið fram, að engu skiptir, hvort
um er að ræða kyrr- eða kvik-
mynd.
„SJÓNVARPSSKÓGURINN“
7 sek. kr. 1.631.00
10 — — 2.513.00
12 — — 2.940.00
15 — — 3.187.00
20 — — 3.945.00
30 — — 4.950.00
35 — — 5.850.00
íslenzka sjónvarpið nær nú til 20.000 heimila. Sjónvarpsauglýsing nær
því til stórs hóps neytenda, og áhrif sjónvarpsauglýsinga munu enn
vaxa með aukinni tækni og kunnáttu í gerð þeirra og með aukinni
útbreiðslu sjónvarpsins. — Þessi mynd er tekin af fjölbýlishúsum í
Reykjavík og sýnir hinn mikla fjölda sjónvarpsloftneta. Kannski mætti
kalla myndina „sjónvarpsskóginn“.