Frjáls verslun - 01.10.1967, Qupperneq 61
FRJÁLS VEBZLUN
61
VÍÐS VEGAR AÐ
HAFNIR
í SAMKEPPNI.
Geysi hörð samkeppni er háð
milli hafnarborga við Norðursjó
og Ermasund, miðstöðva heims-
verzlunarinnar í 5 aldir. Um hafn-
ir EBE-landanna og Bretlands á
þessum slóðum fer t. d. tvöfalt
meiri útflutningur en frá allri N.-
Ameríku. Skipaumferð er þar í
hámarki í heiminum. Bylting hef-
ur átt sér stað í heimsverzluninni
vegna nýrrar flutningatækni og'
hafnargerðar.
Varningur, sem áður stóðstekki
samkeppni vegna flutningskostn-
aðar, er nú fluttur til markað-
anna langt að. Framleiðendur eru
berskjaldaðri fyrir innflutningi en
nokkru sinni fyrr. Alþjóðleg
verkaskipting eykst af sömu sök-
um.
íðnaðarmiðstöðvar. Hafnirnar
eru í auknum mæli að verða mið-
stöðvar iðnaðar, einkum olíu- og
stáliðnaðar. Um hann stendur
samkeppnin, auk hvers kyns við-
skipta og atvinnu, sem þróast í
skjóli hafnanna. Hafnargjöld eru
líka ætíð vinsæl í borgarsjóðinn.
Forystan. Rotterdam í Hollandi
og Antwerpen í Belgíu hafa for-
ystu í samkeppninni. í nágrenni
Rotterdam hefur bíla- og dráttar-
vélaiðnaður siglt í kjölfar stálinn-
flutningsins, sem fer um höfnina.
Landfræðileg lega tveggja fyrr-
nefndra borga er vissulega hag-
stæðust, en þær hafa einnig gert
mest til að hæna skipaeigendur að.
Brezku og frönsku borgirnar
nru verst staðsettar og hafa dreg-
izt aftur úr. Þá vilja þarlendir
kaupsýslumenn kenna yfirvöldun-
Um um, hversu halloka þær hafa
farið.
í sókn. Þýzku hafnarborgirnar,
ninkum Bremen og Hamborg hafa
náð talsvert góðum árangri miðað
við óhagræðið, sem þær hafa af
skiptingu Þýzkalands.
Með vaxandi viðskiptum aust-
urs og vesturs eru framtíðarmögu-
leikar þýzku borganna sagðir góð-
ir vegna legu þeirra á mörkum
þessara viðskiptaheilda.
*
INNKAUPAFERÐIR
ÍSLENDINGA.
Hvernig líta íslenzkar konur, á
innkaupaferð í Skotlandi, út í aug-
um Skotanna sjálfra? Skotarnir
eru eflaust heimildin fyrir eftir-
farandi klausu úr brezka tímarit-
inu „The Shoe & Leather News“
sem, eins og nafniðbendirtil,fjall-
ar um framleiðslu og sölu á skóm
og öðrum leðurvörum. Klausan er
þannig í lauslegri þýðingu, tekin
upp úr eintaki frá 7. september
s.l. ,sem Frjálsri verzlun barst frá
einum velunnara:
Skozkar verzlanir hafa orðið að-
njótandi gagnlegra viðskipta, sem
koma að norðan, einkum frá ís-
landi og Færeyjum og öðrumnorð-
lægum svæðum.
Togarasjómenn koma heim til
sín með sögur af því hvernig Skot-
ar klæða sig. Konunum líkar vel
það sem þær heyra. Þær halda til
Skotlands með næstu ferð, á sjó
eða í lofti. Þær gera innrásir í
verzlanir og' verzla glatt.
Verðlagið skiptir þær engu
máli. Gæðin eru aðalatriðið. Verzl-
unarfólkinu er sönn ánægja að
eiga við þær viðskipti, og margar
verzlanir hafa komist í ágæt við-
skiptasambönd með þessum hætti.
Kaupendurnir ganga alveg fram
hjá verzlunum í námunda við
höfnina en halda heldur inn til
miðbæjarverzlananna eða tiltízku-
verzlananna. Á sumrin kom þær
vikulega en á vetrum fækkar
ferðum niður í það að vera mán-
aðarlegar.
*
BÍLAVERKSMIÐJUR Á
FALLANDA FÆTI.
American Motors Corporation,
framleiðandi Rambler-bílanna,
stríðir við mikla fjárhagsörðug-
leika. Á s.l. 12 mánuðum nam
tapið á rekstrinum 60 milljónum
dala. Árið 1956 var AMC afar
hætt komið þó tapið væri helm-
ingi minna en nú.
Tap og gróði. Romney (núver-
andi ríkisstjóri) tók þá við for-
stjórastöðu í fyrirtækinu. Lét
hann hefja framleiðslu á nýrri
bílagerð, að stærð og verðflokki
milli evrópskra og bandarískra
bíla. Romney tókst að bjarga fyr-
irtækinu af brúninni og salan á
nýja Ramblernum var framúr-
skarandi góð. En brátt tóku aðrir
að framleiða bíla í sama flokki
og aftur hallaði undan fæti.
Nýr forstjóri, sem skipaður var
á áramótum, lét verða sitt fyrsta
verk að lækka í verði minnstu
gerðina, American. Kaupendur
tóku lækkuninni vel og salan
jókst, en í heild reyndist hún þó
20% minni en s.l. ár. Þá var gerð
tilraun til samkeppni við Ford
Mustang með framleiðslu á sport-
gerðinni Javelin, sem er töluvert
ódýrari bíll.
Kelvinator til sölu. Fjárhags-
grundvöllinn var reynt að bæta
með sölu dótturfyrirtækis AMC,
Kelvinator. Enginn kaupandi gaf
sig fram.
Studebaker -verksmiðjurnar
horfðust í augu við sama vanda
fyrir þremur árum og neyddust
til að hætta bílaframleiðslu og
lögðu fjármagn sitt í annað.
Sameining. Sumir spá nú að
AMC neyðist til sameiningar við
stærri bílaframleiðanda. Er sagt
að óhugnanlegt tap fyrirtækisins
kynni að líta dálaglega út á skatt-
skýrslum einhvers keppinautar-
ins.
-x