Frjáls verslun - 01.12.1989, Side 10
FRETTIR
EIGNASALA SÍS:
MILUARÐUR ÚT ÚR ABALVERKTÖKUM
Frjáls verslun skýrði
frá því í byrjun nóvember
að ríkisstjórnin ætlaði að
koma SIS til hjálpar með
því að kaupa hlut þeirra í
Islenskum aðalverktök-
um fyrir 1200-1500 mill-
jónir króna. Sagt var að
aðeins væri beðið eftir
því að gengið yrði frá
kaupum Landsbankans á
Samvinnubankanum því
menn vildu hafa það mál í
höfn áður en gengið yrði
til kaupa á hlut SÍS í Aðal-
verktökum.
Þegar þessar línur eru
skrifaðar, rétt fyrir jól, er
Samvinnubankinn óseld-
ur. En heimildarmenn
blaðsins segja að fráfar-
andi bankaráð Lands-
bankans hafi einsett sér
að ganga frá kaupum á
Samvinnubankanum
fyrir áramót, en nýtt
bankaráð tekur við í árs-
byrjun og er talið allsend-
is óvíst að meirihluti
verði þá fyrir kaupum á
bankanum.
Áform SÍS og ríkis-
stjórnarinnar varðandi
íslenska aðalverktaka
FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ OG VISA:
SPARNAÐUR MEÐ GREIÐSLUKORTUM
Fjármálaráðuneytið og
VISA-ísland hafa gert
með sér samstarfssamn-
ing um notkun VISA-
greiðslukorta til reglu-
legs sparnaðar með kaup-
um á spariskírteinum
ríkissjóðs. Það mun vera
einstætt að greiðslukort
séu notuð til sparnaðar,
og hefur árangur af
samkomulagi um þessa
skipan frá því í vor þegar
vakið athygli meðal
kunnáttumanna erlend-
is.
Fyrirkomulagið er
þannig að greiðslukort
með bankaábyrgð eru
notuð til að kaupa spari-
skírteini af ákveðinni
gerð með reglubundnum
hætti og á tilsettum tíma
hverju sinni. Þessi sparn-
aðarleið opnaðist þegar
tekið var upp áskriftar-
kerfi að spariskírteinum
ríkissjóðs.
Hæsta einstaka færsl-
an í VISA-kerfinu er ein-
mitt vegna spariskír-
teinakaupa af þessu tagi.
Hún nemur kr.
1,325,000.
Meðfylgjandi mynd var
tekin þegar Ólafur Ragn-
ar Grímsson og Einar S.
Einarsson undirrituðu
samstarfssamninginn að
viðstöddum Pétri Krist-
inssyni, Sigurgeiri Jóns-
syni og Einari Sigurjóns-
syni.
eru sögð ganga út á það að
SÍS fái til sín einn millj-
arð króna út úr Aðalverk-
tökum, þegar búið verður
að ganga frá sölu Sam-
vinnubankans til Lands-
bankans. Ætlunin mun
vera sú að láta íslenska
aðalverktaka greiða eig-
endum fyrirtækisins út
hluta af eiginfjárstöð-
unni, sem að miklu leiti
er á bankareikningum, og
að því loknu kaupi ríkið
hluta af eign SÍS í fyrir-
tækinu, en þó ekki allan
hlutann eins og rætt var
um í byrjun. Tilkynnt hef-
ur verið að ætlunin sé að
ljúka samningum milli
ríkisins og eignaraðila í
Islenskum aðalverktök-
um fyrir aðalfund í vor.
Með þessu móti á að ná
1 milljarði króna í að laga
fjárhagsstöðu SÍS og
munu flestir vera sam-
mála um að ekki veiti af.
Stóra spurningin er sú
hvort takast muni að ná
samkomulagi um að
ganga frá sölu á Sam-
vinnubankanum til
Landsbankans fyrir ára-
mót því ekki er víst að
meirihluti verði fyrir
bankakaupum í nýju
bankaráði og þar með
mundi málið stranda.
LEIÐRÉTTING
Á listum Frjálsrar verslunar um stærstu fyrirtækin á Islandi árið 1988 er villa í lista yfir hæstu launin. Þar segir að heildarlaun hjá Iðn- þróunarsjóði hafi verið 17,3 milljónir króna vegna 6 starfsmanna. Hið rétta er að heildarlaunin námu 12,3 milljónum og voru meðallaun til starfs- manna sjóðsins því kr. 2,050 þús. á árinu 1988.
10