Frjáls verslun - 01.12.1989, Page 14
FORSIÐUGREIN
Menn ársins 1989 í atvinnulífinu
á Islandi að mati Frjálsrar versl-
unar og Stöðvar 2 hafa aðeins
rekið fyrirtæki sitt, Samherja
hf. á Akureyri, í sex ár. Þeir eru
frændur og aðeins 35 og 37 ára
að aldri. Þorsteinn Már Baldv-
insson, framkvæmdastjóri fé-
lagsins, er skipaverkfræðingur
og jafnframt stýrimaður að
mennt. Þorsteinn Vilhelmsson
er skipstjóri á Akureyrinni og
Kristján Vilhelmsson vélfræð-
ingur var fyrst yfirvélstjóri á Ak-
ureyrinni, en er nú kominn í
land og sér um viðhald og af-
greiðslu allra skipa Samherja
hf. Þeir félagar eiga um 98%
hlutafjár í félaginu að jöfnum
hluta.
Þeir frændur eiga ættir að rekja til
sjómanna langt aftur. Hér verða ættir
þeirra ekki raktar lengra en að nefna
að feður þeirra eru tvíburabræðumir
Vilhelm Þorsteinsson framkvæmda-
stjóri hjá Útgerðarfélagi Akureyringa
hf. og Baldvin Þorsteinsson fyrrum
skipstjóri á Súlunni EA.
Á sex árum hafa þeir gert Sam-
herja hf. að einu allra öflugasta
og glæsilegasta útgerðar-
fyrirtæki landsins. Þeir
hafa byggt það úr
engu og upp í að
vera stórveldi
á íslenskan
mæli-
kvarða á svo skömmum tíma. Árang-
ur þeirra er engin tilviljun, eins og
fram kemur hér á eftir.
Ævintýrið hófst vorið 1983 þegar
þeir keyptu togarann Guðstein sem
þá hafði legið lengi aðgerðarlaus og
skuldum vafinn. Guðsteinn var einn af
pólsku togurunum sem hingað komu,
en skrokkar þeirra og aðalvélar eru
talin mjög sterk. Áður en kaupin voru
gerð höfðu þeir frændur skoðað skip-
ið gaumgæfilega og lagt mat sitt á þær
breytingar og viðgerðir sem gera
þurfti. Þeir lögðu ítarlegar áætlanir
sínar fyrir Landsbanka íslands og
fleiri. Það merkilega gerðist að bank-
inn ákvað að veðja á þessa ungu og
galvösku menn þó þeir ættu engar
eignir til að leggja fram í fyrirtækið.
Einar Ingvarsson og Jónas Haralz
höfðu með þeirra mál að gera í bank-
Samherjafrændur
frá Akureyri menn
ársins 1989 í
íslensku
viðskiptalrfi
TEXTI: HELGI MAGNÚSSON MYNDIR: KRISTJÁN EINARSSON O.FL.
14