Frjáls verslun - 01.12.1989, Side 21
AKUREYRIN MEÐ 6000 TONN
- RŒTT VIÐ ÞORSTEIN VILHELMSSON SKIPSTJÓRA
í brúnni á Akureyrinni. Þorsteinn Vilhelmsson, skipstjóri, annar frá
vinstri.
Einn af mönnum ársins 1989
og eigendum Samherja hf. er
Þorsteinn Vilhelmsson skip-
stjóri. Vegna valsins á mönnum
ársins náði Frjáls verslun tali af
honum þar sem hann var við
veiðar á Akureyrinni norður af
Kögri í kulda og ís. Við spurðum
hann fyrst, hvemig hefði gengið
á þessu ári.
„Akureyrin fiskar um 6000 tonn á
þessu ári sem er svipað og í fyrra.
Þessi árangur næst vegna þess að við
höfum aflað okkur kvóta og útgerðin
hefur gengið áfallalaust. Við höfum
verið heppnir, skipið hefur gengið og
við erum með góðan mannskap. Það
er ekki hægt að kvarta og ekki er
hægt að segja annað en þetta hafi
gengið ljómandi vel í ár, eins og lengst
af þessi sex ár sem við höfum verið í
útgerð. Ég hef verið skipstjóri á Ak-
í upphafi tók það okkur nokkum
tíma að læra á skipið og þessa nýju
tækni. Við, sem erum sjómenn á
frystitogurum, þurfum að tileinka
okkur önnur vinnubrögð en þeir sem
veiða eingöngu en vinna ekki fiskinn
um borð. Við þurfum að umgangast
hráefnið af meiri gætni og við getum
ekki bara hugsað um að fiska. Þetta
gengur vel og allir um borð em sér
þess fullkomlega meðvitaðir að vinna
okkar er í matvælaiðnaði allan tí-
mann. Þetta hafa okkar menn skilið
og það er eitt af lykilatriðunum. Skiln-
ingur á þessu hefur einnig veruleg
áhrif á kjör sjómannanna."
Er Þorsteinn bjartsýnn á áfram-
haldandi velgengni?
„Ég hef helst áhyggjur af því að það
er minni fiskur í sjónum en verið hefur
á undanfömum árum. Nú er beitt
miklu meiri tækni til að ná því afla-
magni sem nú næst. Það þarf að hafa
mun meira fyrir því en áður vegna
þess að það er minna af fiski í sjónum.
Sérstaklega finnst mér áberandi hvað
það er miklu minna af karfa. Ég er
hræddur við stofninn. Þorskurinn
kemur og fer þannig að það er erfið-
ara að segja til um hann. Ég er ekki að
tala um hrun, heldur minnkun. Ég er
sannfærður um að friðun sjávarspen-
dýra hefur þama stórkostleg áhrif til
hins verra. Sjómenn verða varir við
miklu meira af hval í sjónum en var til
skamms túna. Ég óttast þá aukningu
alveg rosalega. Hvalurinn étur frá
okkur fiskinn og selurinn gerir stór-
bölvun líka. Svo étur hvalurinn einnig
fæðuna frá fiskinum, en hann tekur
stóran toll af loðnu, svifi og smádýr-
um. Friðun sjávarspendýra er komin
út í öfgar og veldur því að lífsbjörgin
verður með þessu áframhaldi tekin af
okkur íslendingum í miklum mæli.
Stjómmálamenn verða að gera upp
hug sinn, hvort þeim þykir vænna um
hvalinn eða framtíð íslensku þjóðar-
innar. “
ureyrinni allan tímann og úthaldið hef-
ur verið 6-10 mánuðir á ári hjá mér en
l.stýrimaður leysir mig af og er með
skipið á móti mér þegar ég er í landi
að sinna öðrum verkefnum.
sú að menn ársins 1989 í atvinnulífinu á
íslandi séu frændumir þrír, sem eiga og
reka útgerðarfélagið Samherja hf. á Ak-
ureyri, þeir Þorsteinn Már Baldvinsson
framkvæmdastjóri, Þorsteinn Vil-
helmsson skipstjóri og Kristján Vil-
helmsson vélfræðingur.
Ferill þeirra í útgerðinni er ekki nema
sex ár, en hann er afar glæsilegur. Þeir
hafa á þessurn árum byggt upp öflugt og
traust fyrirtæki sem rekið hefur verið
með hagnaði allan tímann og skilað mikl-
um verðmætum íþjóðarbúið. Þeir félag-
ar eru aðeins 35 og 37 ára að aldri og
hófu atvinnurekstur sinn með tvær
hendur tómar. Uppbygging fyrirtækis-
ins hefur verið markviss og ótrúlega ör
og árið 1989 er metár í umsvifum og
starfsemi Samheija hf.
21