Frjáls verslun - 01.12.1989, Page 74
TOLVUR
TÆKISEM FJÖLRITAR DISKLINGA
Það munu líklega fáir telja það
skemmtilega vinnu að forma og taka
100 afrit af disklingi. Þetta verða sum-
ir þó að gera og það jafnvel oft. Verkið
tekur mikinn tíma sé það gert í venju-
legri tölvu. En það eru til tæki sem
vinna verkið fyrir mann. Eitt þeirra
nefnist „Desktop Diskcopier" en það
er framleitt af bandaríska fyrirtækinu
Mountain Computer í Kalifomíu og til
sölu hjá Tæknivali h.f. í Reykjavík.
Tækið hentar þeim sem þurfa um eða
yfir 200 afrit af disklingum á mánuði.
Það mun taka innan við 10 mínútur
að undirbúa diskritann fyrir hvert
verkefni sem er að forma, afrita og
bera saman frumrit og afrit. Diskrit-
inn er tengdur IBM PC, Apple eða
samhæfðri tölvu sem er ræst með
meðfylgjandi hugbúnaði. Síðan raðast
disklingarnir upp þar sem afritunin er
að öllu leyti sjálfvirk. Ekki þarf að
vera við tækið til eftirlits á meðan það
afritar, aðeins þarf að bæta diskling-
um í hólfið þegar það hefur tæmst.
Disklingum er einfaldlega komið
fyrir í hólfi ofan á tækinu, frumritið er
sett í disklingadrif tölvunnar og afritin
safnast fyrir í hólfi framan á því.
Diskritinn er fáanlegur fyrir 8, 5,25
eða 3,5 tommu disklinga og getur
skilað afriti með 13 sekúndna millibili
að jafnaði. Hólfið tekur 35 disklinga í
einu. Tækið vegur rúmlega 19 kg og
mál þess eru 23x30x62 sm.
NÚ GETUR ÞÚ BORGAÐ
RAFMAGNS- OG
HITAVEITUREIKNINGINN
MED BODGREWSLUM SAMKORTS
Hafðu samband við skrifstofur Rafmagnsveitu Reykjavíkur
og Hitaveitu Reykjavíkur.
RAFMAGNSVEITA
REYKJAVÍKUR
SUÐURLANDSBRAUT 34 SlMI 68 62 22
!|R HITAVEITA REYKJAVIKUR
GRENSÁSVEGI 1, SÍMI 600100
l|>
74