Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1995, Blaðsíða 18

Frjáls verslun - 01.05.1995, Blaðsíða 18
FJARMAL Haraldur Haraldsson í Andra og Jóhann J. Ólafsson eru þungavigtarmenn í núverandi meirihluta. ann með Sigurjóni, voru ekki óvanir því að vera í meirihluta. Þeir Jón Ólafsson, Haraldur í Andra og Jóhann J. Ólafsson, ásamt fleirum, höfðu verið í meirihlutanum á árunum 1990 til 1992. Þeir keyptu félagið snemma árs 1990 af Eignarhaldsfélagi Versl- unarbankans og reistu félagið við. EINS 0G ÞRUMA ÚR HEIÐSKÍRU LOFTI Þrátt fyrir að samningurinn hafí komið eins og þruma úr heiðskíru lofti í viðskiptalífinu 28. apríl var aðdrag- andi að honum eins og í öllum samn- ingum. Þetta byrjaði allt á því að allur minnihlutinn, stundum nefndur Þórs- merkurhópurinn, lét bréfin í heild sinni í einkasölu til bandaríska verð- bréfafyrirtækisins Oppenheimer í New York fyrir mörgum mánuðum. Oppenheimer fyrirtækið fór, eins og gengur, að leita hófanna vestra að hugsanlegum kaupendum að bréfum minnihlutans. En til að gera langt mál stutt kom Útherji, félag meirihlutans, að málinu sem endaði svo loks með hinum sögulega samningi í endaðan apríl. Vegna ákvæðsins um að Útherji hf. fái tíma til 27. júlí til að staðgreiða bréfin eru kaupin, teknískt séð, ekki enn í endanlegri höfn. Ætla verður að gangi samningurinn eftir náist langþráður - og kærkominn - friður um stöðina. Nánast frá upp- hafi hefur saga hennar verið eins og sápuópera eða góður reyfari sem sem engan enda tekur. Nýir þættir hafa verið skrifaðir jafnóðum. SÁPUÓPERAN UM STÖÐ 2 HÓFST STRAX ÁRIÐ1986 Sápuóperan um Stöð 2 hófst árið 1986 þegar ofurhugamir Jón Óttar Ragnarsson, Hans Kristján Árnason og Ólafur H. Jónsson stofnuðu Stöð 2 með nánast ekkert eigið fé. Útsend- ingar hófust haustið 1986. Stofn- kostnaður var mikill og át hið litla eig- ið fé strax upp. Stöðin byrjaði því strax að skulda og reyndist það mesti dragbíturinn næstu þrjú árin. Raunar urðu skuld- irnar til þess að Jón Óttar og félagar misstu fyrirtækið úr höndum sér. Með öðrum orðum; þremenningarnir sem kynntu eldana á Stöð 2 nutu þeirra ekki nema í rúmlega þrjú ár. En eitt mega þeir þremenningar Jón Óttar, Hans Kristján og Ólafur H. Jónsson eiga þrátt fyrir að hafa komið félaginu í mikla skuldasúpu. Þeim tókst á ævintýranlegan hátt að selja landsmönnum myndlykla að stöðinni. Það var vel gert - og verður aldrei frá þeim tekið sem afrek í viðskiptum. UM 40 ÞÚSUND ÁSKRIFENDUR ÁAÐEINS RÚMUM 2 ÁRUM Á rúmum tveimur árum voru áskrifendur; eigendur myndlykla, komnir í um 40 þúsund. Fyrir þetta afrek var Jón Óttar sjónvarpsstjóri útnefndur markaðsmaður Norður- landa fyrir tilstuðlan íslenska mark- aðsklúbbsins. I auglýsingum var sagt „að stöðin væri komin til að vera“. Það voru orð að sönnu - þrátt fyrir skuldir. Vart þarf að rifja það upp að skuldir Stöðvar 2 voru mestar við Verslunar- bankann og það var raunar hann í gegnum Eignarhaldsfélag sitt sem tók fyrirtækið að lokum úr höndum þremenninganna og seldi það snemma árs 1990 til fylkinga kaup- manna undir forystu þeirra Haralds Haraldssonar í Andra, þáverandi for- manns í Félagi íslenskra stórkaup- manna, JóhannsJ. Ólafssonar, þáver- andi formanns Verslunarráðs, Guð- jóns Oddssonar, þáverandi formanns Kaupmannasamtaka íslands, ogjóns Ólafssonar í Skífunni. Það, sem rak mest á eftir Verslun- arbankanum við að koma málum sín- um á hreint í Stöð 2, var sameining Verslunarbankans, Iðnaðarbankans, Alþýðubankans og Útvegsbankans hf. í einn banka í upphafi ársins 1990; fslandsbanka. Bankarnir fjórir hófu um mitt sumar 1989 að kortleggja eignir og „vandræðabörn" sín áður en til sameiningarinnar kæmi, 1. janúar 1990. HASARINN MIKLIÁ GAMLÁRSDAG1989 Ekki verður svo imprað á sögunni að ekki sé minnst á sögulegar viðræð- ur í nóvember og desember 1989 á milli Verslunarbankans og nokkurra aðila, Heklu, VífilfeOs, Hagkaups, Prentsmiðjunnar Odda og Áma Sam- úelssonar í Bíóhöllinni, um kaup á meirihlutanum í Stöð 2. Foringi þessa hóps var Ingimundur Sigfússon, þá- verandi forstjóri Heklu. Samningar virtust vera að takast þegar allt hljóp í hnút - bankinn taldi sig ekki fá nægi- lega gott tilboð frá hópnum. Viðræðunum lauk síðan á mjög dramatískan hátt á gamlársdag 1989; engin kaup. Eftir að hópur Ingimund- ar gekk af fundi Verslunarbankans kom hann saman í kaffi úti á Hótel Loftleiðum og úr varð formleg stofn- un Áramótahópsins. Stöð 2 var hópn- um geymd en ekki gleymd. Hluti hópsins kom aðeins við sögu í íslenska útvarpsfélaginu í gegnum Sýn í byijun maí 1990. En sem hópur komu Áramótafyrirtækin við sögu stöðvarinnar sumarið 1992 er þau keyptu 100 milljóna króna eignarhluta Eignarhaldsfélags Verslunarbankans ásamt fleiri fyrirtækjum. Útvíkkaður 18
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.