Frjáls verslun - 01.05.1995, Blaðsíða 29
segir Ami um framgöngu fyrirtækis-
ins. Eftir að fyrirtækið hafi verið með
skíðaumboð um tíma var því hætt og
snúið sér að golfinu, sem fyrirtækið
er kannski þekktast fyrir, og er golf-
mót í Leirunni hjá Golfklúbbi Suður-
nesja, „Dunlop Maxfly Open“, á veg-
um þess sem er elsta samfellda golf-
mótið á íslandi í 25 ár. Fyrirtækið
hefur átt samstarf við verslanir lengst
af og stefnan hefur verið að styrkja
það og láta búðimar sjá um þjónustu í
sínu byggðarlagi. Ámi telur að það sé
mikið atriði að veita þjónustu í byggð-
arlaginu en það skapi atvinnu og menn
skilji í dag mikilvægi þess. Varðandi
markaðssetningu hefur fyrirtækið
auglýst í fjölmiðlum, í kvikmyndahús-
um, staðið fyrir íþróttamótum, styrkt
einstaklinga og lið. „Við höfum haft
sérstakt dálæti á kvenfólkinu," segir
Ámi og rifjar upp þegar ákveðið var
að fyrirtækið flytti inn fyrstu hlaupa-
skó kvenna, en einhverjir töldu þá að
lagervandamál myndu skapast við
aukna breidd í framleiðslunnni og í
dag telur Árni að þeir séu með a.m.k.
5 eða 6 tegundir af hlaupaskóm
kvenna. Nike-úrvalið í dag er talið
vera á bilinu 110 til 120 og spannar
allar íþróttir. Árni telur misjafnt
hvernig framleiðendur styðji og segir
að fyrirtækið leggi meira upp úr því að
fá betri verð og ráða því sjálfir hvað
þeir geri. Hjá fyrirtækinu eru á samn-
ingi t.d. körfuboltalandsliðið, knatt-
spymulandsliðið, blaklandsliðið, hand-
knattleiksdeild Víkings og Breiðablik í
knattspymu karla og kvenna.
í körfuboltanum er fyrirtækið með
samstarfssamninga við 8 af 10 liðum í
úrvalsdeildinni. „Menn verða alltaf að
gera sér grein fyrir því hvað lið skapar
miklar tekjur og mikla sölu ef það eru
bara styrkir og engin sala er betra að
sleppa þessu,“ segir framkvæmda-
stjórinn. Aukning er í sölu á þessu ári
eftir tvö „flöt“ ár. Fyrirframpantanir
hafa aukist og þróunin í sölu er meiri í
grófum vörum, grófum skóm og úti-
vistarvörum, enda búið að sýna sig að
hreyfmg er holl, og sem betur fer
fyrir þjóðfélagið er almenningur orðin
mjög meðvitaður um hreyfingu, “ seg-
ir Árni. Með betri samningum og
meira magni hefur tekist að lækka
skóna á sl. ári, en stöðugt gengi hefur
líka haft góð áhrif.
LflGEAR
Sportís hefur umboð fyrir LA Gear
á Islandi, sem þeir fengu ’89, en einn-
ig er fyrirtækið með O’NeilI- og
Everlast-vörur. Helstu vörutegund-
irnar í merki LA Gear eru íþrótta-
skór, þó ekki hlaupaskór. Árið ’90 var
fyrsta alvöruárið hjá umboðinu og
birti það 40-50 lifandi auglýsingar í
sjónvarpi og síðar var auglýst í bíóun-
um. Auglýsingaherferðin skilaði mikl-
um árangri og markaðssetning gekk
mjög vel, samkvæmt Skúla Bjöms-
syni eiganda umboðsins, og ástæður
þessa telur hann vera að merkið hafi
komið „ferskt“ inn á markaðinn, en á
sama tíma var körfuboltinn auk þess í
uppsveiflu. Körfuboltastjörnur eins
og Kareem Abdul Jabbar og Hakeem
Olajuwon hjá Huston Rockets aug-
lýsa fyrir fyrirtækið. Sala í byijun var
mjög góð, að mati Skúla, og fór hún
fram úr björtustu vonum. Framleið-
andi styður umboðið ekki, það þarf að
kaupa allt auglýsingaefni. Lykilatriði
markaðssetningar hefur verið að
veita verslunum góða þjónustu og
vera ekki í smásölunni, þannig að um-
boðið keppi ekki við verslanirnar, auk
þess sem gæði og hönnun skiptir máli
í markaðssetningu. Sala í dag er vax-
andi aftur og telur Skúli að vorið nú sé
betra en í fyrra í þeim efnum. Horfur
eru góðar og merkið fer vaxandi.
loho
„Fyrir rúmlega 10 árum fékk E.G.
heildverslunin umboð fyrir Lotto-
merkið, sem er með vörur eins og
skó og fatnað, en besta salan er í í
knattspymuskóm,“ segir Elías Gísla-
son eigandi umboðsins. í markaðs-
setningu var áhersla lögð á bamaskó í
byrjun, en hjólin fóru að snúast hratt,
þegar umboðið fór með vörur sínar í
knattspyrnuna með liði íþróttabanda-
lags Akraness fyrir 4 árum. Árangur
markaðssetningar kom smátt og
smátt í ljós, en Lotto hefur slegið í
gegn í ítölsku knattspyrnunni með
stjörnum t.d. eins og Ruud Gullit.
Helstu ástæður góðrar markaðssetn-
ingar telur Eíías vera að staðið hafi
verið vel að þessu, auk þess sem
hann hafi verið hagsýnn og boðið
sanngjörn verð með góða vöru. Varð-
Þekktir íþróttamenn hafa ævinlega
verið fengnir til að auglýsa íþrótta-
fatnað. Þannig auglýsir íþróttamað-
ur ársins, Magnús Scheving, hinn
þekkta fatnað, Russel Athletic - og
selur vel.
andi sölu í byrjun var eitt skref tekið
fyrir í einu, en framleiðandi styður
fyrirtækið ekki í markaðssetningu á
heimamarkaði þótt hann auglýsi á al-
þjóðamælikvarða, sem umboðið telur
sig hafa hag af. Sala í dag gengur
ágætlega, t.d. í knattspymunni, og
aukin áhersla er lögð á handbolta,
körfubolta, auk áherslu á sölu í
hlaupaskóm.
MIZUN0
„K. Kjartansson h.f. fékk umboð
fyrir sín þekktustu merki ’92 - ’94, þar
á meðal Mizuno. Mizuno er japanskt
fyrirtæki með skó, íþróttafatnað,
golfvörur o.fl., en auk þess hefur K.
Kjartansson h.f. umboð fyrir ítalskt
merki Errea, sem er með íþrótta-
29