Frjáls verslun - 01.05.1995, Blaðsíða 21
of Central London. Þar var hann þó
ekki lengur en tæpt ár, fór heim og
hóf vinnu sem innkaupamaður hjá
Hagkaup. Af frekara hefðbundu
skólanámi átti ekki eftir að verða.
Þrátt fyrir uppreisnaranda mennta-
skólaáranna féll eplið ekki langt frá
eikinni. Sigurður Gísli tók við fyrir-
tæki föður síns þótt aldrei hafi verið
þrýst á hann að gera það. Hefðu ör-
lögin ekki hagað því þannig að hann
ynni við fjölskyldufyrirtækið hefði
hann, að mati kunningja hans, vafa-
laust stofnað eigið fyrirtæki.
Sigurður Gísli starfaði sem inn-
kaupamaður Hagkaups 1976-1979 og
innkaupastjóri sérvöru til 1981. Hann
var framkvæmdastjóri 1981 til 1984
og stjórnarformaður Hagkaups 1984.
Hann hefur setið í sambandsstjórn
Vinnuveitendasambands íslands og
framkvæmdastjóm og aðal- og fram-
kvæmdastjórn Verslunarráðs ís-
lands.
Óskar Magnússon, forstjóri Hag-
kaups, kynntist Sigurði fyrst í Vogun-
um, þegar þeir voru strákar og aftur á
menntaskólaárunum. Óskar minnist
þess að hafa platað Sigurð Gísla í
skiptum á leikaramyndum þegar þeir
voru smáguttar, grunlaus um að sá
hinn sami ætti eftir að ráða hann í
vinnu síðar meir. „Ég fékk tvær Elv-
ismyndir hjá Sigurði í skiptum fyrir
eina af Roy Rogers," segir Óskar og
hlær.
NET FJÖLSKYLDUFYRIRTÆKJA
Fyrir nokrum árum var byijað á
umfangsmiklum skipulagsbreyting-
um í fyrirtækinu. Að sögn samstarfs-
manns var Sigurður Gísli höfundur
þessara breytinga. Síðan hefur því
verið fylgt mjög fast eftir að hvert
fyrirtæki héldi sjálfstæði sínu. En öllu
er þó stjórnað frá móðurfyrirtækinu,
Hofi hf. þar sem Sigurður Gísli og Jón
bróðir hans halda um taumana.
Hof sf. á Hagkaup hf., Miklatorg
hf. (Ikea), Álfheima hf. (Kosta Boda)
og Þyrpingu hf. (fasteignaumsýsla).
Þá á Hof hluta í vatnsfyrirtækinu
Þórsbrunni, ásamt Vífilfelli og
Reykjavíkurborg, hluta í Jara sf.
(skyndibitastaðir í Kringlunni), hluta í
Dómínós Pizza á íslandi (ásamt Sigur-
jóni Sighvatssyni og Skúla Þorvalds-
syni á Hótel Holti) og Kjötvinnsluna í
NÆRMYND
Síðumúla. Þá á Hof hluta í Samskipum
og olíufyrirtækinu Orkunni, sem
stofnað var til þegar umræðan um
hingaðkomu kanadíska olíufyrirtæk-
isins Erwing stóð sem hæst. Síðast
en ekki síst á Hof fjárfestingafyrir-
tækið Þor hf. sem aftur á helminginn í
Bónusi sf. á móti Jóhannesi Jónssyni
og fjölskyldu hans.
En það er ekki bara að Sigurður
Gísli stjórni keðju fjölskyldufyritækja
heldur er fjölskyldan aðili að nokkrum
vinsælustu fyrirtækjum landsins.
Bónus og Hagkaup eru vinsælustu
fyrirtæki landsins, skv. Gallup-könn-
un fyrir Frjálsa verslun. Ikea er einnig
ofarlega á listanum.
Aður en varð af helmingskaupum
Hagkaupsmanna í Bónusi hafði Jó-
hannes Jónsson ekki haft nein kynni af
Sigurði Gísla, aðeins fylgst með hon-
um úr fjarlægð.
Jóhannes undirstrikar að Sigurður
sé alveg afskiptalaus hvað rekstur
Bónuss varðar, þar á bæ hafi menn
alveg frjálsar hendur. Hann segir Sig-
urð vera mjög skipulegan í störfum
sínum og hafa góða yfirsýn. En um-
fram allt sé hann afar venjulegur mað-
ur sem laus sé við allan flottræfils-
eða spjátrungshátt. „Hann er að-
haldssamur og passasamur í einkalíf-
inu og hefur síður en svo ofmetnast af
Sigurður Gísli Pálmason er fæddur í Reykjavík 13. ágúst 1954. Hann er elstur
fjögurra systkina. Hann ólst upp í blokk í Álfheimum og gekk í Langholtsskóla.
Rætt var um hann sem gæruúlpukomma á menntaskólaárunum í MR.
21